Fréttablaðið - 12.07.2011, Page 30
12. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR22
folk@frettabladid.is
6 DAGAR eru í útgáfu lagsins My Moment, en það er annað lag Youtube-stjörnunnar Rebeccu Black. Fyrsta lag Rebeccu, Friday, hlaut gríðarlega athygli um heim allan en það þykir með eindæmum lélegt.
Hægt verður að nálgast My Moment á Youtube-síðu söngkonunnar hinn 18. júlí.
Fyrsti þátturinn í nýjustu þáttaröðinni af Man vs. Wild þar
sem Hollywood-leikarinn Jake Gyllenhaal tekst á við
óblíð náttúruöflin á Íslandi var frumsýndur í Bandaríkj-
unum í nótt. Þátturinn var tekinn upp á Eyjafjallajökli
í byrjun apríl eins og Fréttablaðið hefur greint frá og
þar fer Gyllenhaal, klæddur fötum frá 66°Norður, á ystu
nöf ásamt þáttastjórnandanum Bear Gylls. Þátturinn var
sýndur á Discovery Channel og ljóst að um mikla land-
kynningu er að ræða fyrir Ísland. Sjálfur var Gyllenhaal
ánægður með Íslandsdvölina: „Þetta snýst fyrst og
fremst um að uppgötva nýja hluti,“ sagði hann í
fréttatilkynningu frá framleiðendum þáttanna.
Tónleikar portúgalska píanistans Mariu João Pires
og rússneska fiðluleikarans Maxim Vengerov
í Hörpunni á föstudagskvöld fá fjórar
stjörnur hjá gagnrýnanda breska dag-
blaðsins Daily Telegraph. Þar segir að
þrátt fyrir að fjölmargir frábærir
tónlistarmenn hafi komið
fram í Hörpunni hafi engir
tónleikar verið eins
spennandi og
þeirra Pires og
Vengerovs. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Listaháskólanemarnir
Harpa Björnsdóttir, Guðrún
Harðardóttir og Katrín
Eyjólfsdóttir hleypa lífi í
Bernhöftstorfuna og torgið
fyrir neðan Lækjarbrekku,
og bjóða landsmönnum að
spila spil þar í sumar.
„Það er merkilegt hvað þetta torg
hefur gleymst í gegnum tíðina en
við viljum minna á hversu sjarm-
erandi staðurinn er. Hér er til
dæmis alltaf logn og blíða,“ segir
Harpa Björnsdóttir, nemi í vöru-
hönnun við Listaháskóla Íslands
en á morgun ætlar hún, ásamt
samnemanda sínum Guðrúnu
Harðardóttur og myndlistarnem-
anum Katrínu Eyjólfsdóttur, að
endurvekja gamla taflið á torg-
inu fyrir neðan Bernhöftstorfuna.
„Við sóttum um verkefnið Torg
í biðstöðu hjá Reykjavíkurborg.
Um leið og við fengum úthlut-
að þessu torgi datt okkur í hug
að endurvekja taflið, sem staðið
hefur á þessum bletti í mörg ár,
og vinna út frá því eins konar
spilatorg.“
Verkefnið Torg í borg var sett
af stað á vegum Reykjavíkur-
borgar og gengur út á að finna
tímabundnar lausnir til að líf-
væða ákveðin almenningsrými í
borginni.
„Í kringum taflið erum við að
búa til palla þar sem staðsett
verða spil eins og Mylla, Bakk-
gammon og Lúdó. Ég vona að fólk
nýti sér þetta en Lækjarbrekka
verður með útisölu á drykkjar-
föngum nokkra daga í sumar
fyrir vegfarendur. Það ætti því
ekkert að standa í vegi fyrir að
fólk komi við á torginu og spili
saman.“
Spilatorgið opnar í dag klukk-
an 14.00 og er öllum velkomið að
kíkja. alfrun@frettabladid.is
Búa til spilatorg
í miðbænum
SPILATORG Í BORG Listaháskólanemarnir, frá vinstri, Harpa, Guðrún og Katrín setja
upp spilatorg neðan við Bernhöftstorfuna sem verður opnað í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Allar hellur Steypustöðvarinnar
eru framleiddar samkvæmt
viðurkenndum stöðlum.
4 400 400
FARÐU Á TOPPINN
Í SUMAR
VERÐ: 49.990 KR.
MEINDL ISLAND PRO GTX
Hálfstífir og margrómaðir.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
VERÐ: 19.990 KR.
TNF HEDGEHOG III.
Vinsælir í léttar göngur.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
MEÐ GORE-TEX: 26.990 KR.
HALTU ÞÉR GANGANDI Í SUMAR OG SKOÐAÐU LANDIÐ AF TINDUM FJALLANNA. MIKIÐ ÚRVAL AF SKÓM.
TILBOÐ: 33.990 KR.
MEINDL KANSAS GTX
Sérlega þægilegir og traustir.
Gore-Tex vatnsvörn.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
ALMENNT VERÐ: 39.990 KR.
TILBOÐ: 18.990 KR.
TREZETA MAYA
Vel vatnsvarðir og á góðu verði.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
ALMENNT VERÐ: 22.990 KR.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS