Atli - 01.06.1944, Qupperneq 1

Atli - 01.06.1944, Qupperneq 1
A T L I Búnaðarblað, gefið litaf ATLA, félagi íslenzkra nemenda við Landbdnaðarháskólann í Kaupmannahöfn. 1. árgangur -jání 1-944- 1. tölublað. FYLGT ÚR HLADI. ' Með 'þessu blaði hefur ATLI nýja starfsemi sem engan okkar óraði fyrir þegar við stofnuðum félagið fyrir riímum 4 árum. Síðan þá höfum við haldið 35 málfundi, og á þeim hafa verið flutt 60-70 er.indi og framsögur. Fundarsóknin hefur verið sérstakléga góð^og umræður fjör- ugar, og aldrei hefur verið erfitt að átvega fundarefni. Þaö eru breyttar aðstæður sem gera það æskilegt að við hefðum slíkt. málgagn sem hér er í uppsiglingu, og skal ég í stuttu máli rekja það helzta sem hefur hrint málinu af stað. Eins og við vitum allir hefur hringbókin gengið á milli manna frá nýári, og hefur þó ekki nema þriðjungur félagsmanna skrifað í hana enn sem komið er. Með þessu móti verður hringbókin mjög deinfara og þvi ófullnægjandi boðberi okkar á milli. En nú er það sýnt að þær á- stæður sem komu okkur til þess að setja hringbókina í umferð hafa breytzt þannig, að við höfum enn þá meiri þörf á einhverskonar mál- gagni. Áður 'en langt um liður verður helmingur félagsmanna búsettur utanbæjar, og er af þeim ástæðum hindraður í að taka þátt í félags- starfseminni. Með því að gefa út blað geta allir félagsmenn lagt fram ..\0 kraifta sína; og með rökræðum í blaðinu hjálpað hver öðrum aö kom- ast að kjarna málanna. Ennfremur ætti þetta að geta orðið okkur skóli til þess að skrifa skcimmlaust um fagleg mál ísl. lándbúnaðar. Á fundi í ATLA sem haldinn var 16. apríl var mér falin ritstjórn blaösins fyrst um sinn, og gefnar frjálsar hendur úm tilhögun þess. Eg hef hugsað mér að allt sem snertir ísl. landbúnað og á ein- hvern hátt geti orðiö honum til framþróunar verði rætt i blaðinu. Einnig verður gefið rúm .félags- og menningarmálum á svipaðan hátt og viö höfum haft þau með höndum 1 ATLA. Fréttir af félögum og starfi þeirra hér, verða ef til vill fLuttar öðru hverju í blaðinu, en annars mun blaðið sjálft verða að kynna sig, því að það þróast að líkindum með okkur, og við með því. Ég vona félagar að þið takið blaðinu vel og sýnið því áhuga og um- burðarlyndi. Allt ér undir því komið að þið sendið mér sem flestar og beztar greinar, og skrifiö helzt ótilkvaddir um allt sem þið haf- ið áhuga á. Flestir eða allir fórum viö að heiman með brennandi á- huga og einbeittán vilja til þess að vinna heildinni gagn. Viö skul- um varast að láta þennan áhuga dofna. Þaö væri raunalegur endir á okkar Hafnarvist ef við kæmum heim sem hálf-lífsleiðir menn án ann- arra áhugamála en þeirra, aö reyna hver um sig að fá vellaunaða, mak- indalega stöðu. Ég vit vel að ástand það sem stríöið hefúít skapað,

x

Atli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Atli
https://timarit.is/publication/676

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.