Fréttablaðið - 04.08.2011, Qupperneq 12
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
10-11 virðist vera eina mat-
vöruverslanakeðjan sem
setur verðmiða á forpakkað-
ar kjötvörur, að því er könn-
un Neytendastofu leiddi í
ljós. Samkeppnis eftirlitið
gerði sátt við framleiðend-
ur kjötvara fyrr á árinu um
að þeir verðmerktu ekki
framar forpakkaðar kjöt-
vörur með leiðbeinandi
verði. Það þýddi hins vegar
ekki að verslanir mættu
ekki sjálfar verðmerkja
vörurnar.
„Þetta virðist vera til fyrirmyndar
hjá 10-11. Þeir keyptu skanna sem
prentar út límmiða og setja mið-
ana sjálfir á vöruna,“ segir Þórunn
Anna Árnadóttir, sviðsstjóri á neyt-
endaréttarsviði Neytendastofu.
Sigurður Karlsson, rekstrarstjóri
10-11, segir þetta fyrst og fremst
hafa verið gert til þess að viðskipta-
vinir gætu séð verðið á einfaldan
hátt. „Þeir þurfa þá ekki að renna
vörunni undir verðskanna til þess
að sjá hvað hún kostar. Við höfum
ekki þurft að ráða aukamannskap
til þess að líma miða á vörurnar,“
greinir hann frá.
Þórunn Anna segir nokkrar
minni verslanir verðmerkja hverja
einingu en að verðskannar fyrir
neytendur séu komnir í margar
verslanir. Þyngd vörunnar er til-
greind á umbúðum og kílóverð á
hillu. Til þess að sjá hvað ákveð-
ið kjötstykki, sem er forpakkað,
kostar þurfa neytendur að renna
því undir skanna. „Það er hins
vegar mismunandi milli verslana
hversu margir og vel staðsettir
þeir eru. Í sumum tilvikum eru
þeir ekki nógu nálægt hillunum
þar sem vörurnar eru. Við höfum
sent verslunum ábendingar þar
sem þetta er ekki í lagi og munum
svo skoða þetta aftur.“
Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, segir að
farið hafi verið að tilmælum Neyt-
endastofu um að lækka verðskann-
ana. „Við fengum ábendingu um að
þeir væru of hátt uppi fyrir þá sem
eru í hjólastólum og létum lækka
þá.“
Að sögn Gunnars Inga þyrfti að
ráða fleira starfsfólk ef setja ætti
límmiða með verði á hverja for-
pakkaða kjötvöru. „Kostnaður yrði
meiri og það gæti leitt til hækkunar
vöruverðs.“
Gunnar Ingi tekur það fram
að hægt sé að skoða verð á öllum
vörum í verðskönnum.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir í pistli á heimasíðu
sinni að samkeppnin sé núna orðin
blindandi. Hann segir að sam-
kvæmt gamla laginu hafi allar
upplýsingar verið aðgengilegar án
fyrirhafnar og að breytingin hafi
almennt orðið til að hækka verðið
en ekki lækka það.
Þórunn kveðst ekki að öllu leyti
sammála ráðherranum. „Upplýs-
ingarnar voru ekki án fyrirhafn-
ar. Neytendur þurftu að reikna út
prósentuafslátt frá kílóverði og í
mörgum tilvikum var ekki sam-
ræmi milli þess afsláttar sem til-
greindur var á umbúðum og þess
sem veittur var á kassa. Neytenda-
stofa hefur reyndar fengið ábend-
ingar um að verð hafi hækkað en
það hefur ekki verið kannað nánar.
Það þyrfti jafnvel að gera í samráði
við Samkeppniseftirlitið sem gerði
þessa sátt til að stuðla að aukinni
samkeppni.“
Verðmerkja forpakkaðar
kjötvörur í búðunum
VERÐSKANNI Skannar eru stundum of langt frá hillunum þar sem forpökkuðu
kjötvörurnar eru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ef tyggjó festist í hárinu skaltu setja matarolíu eða
smjörlíki í hárið þar sem tyggjóklessan er til að
auðveldara sé að ná tyggjóinu úr hárinu. Bíddu í
tvær til þrjár mínútur og greiddu tyggjóið varlega úr
hárinu með greiðu. Þvoðu svo hárið með sjampói
á eftir.
Ef tyggjó festist hins vegar í fötum seturðu flíkina
í frysti og frystir. Þegar tyggjóið er alveg frosið getur
þú mulið það úr.
GÓÐ HÚSRÁÐ tyggjó í hári eða fötum
Greitt úr tyggjófl óka
Skeljungur reið á vaðið í gær og lækkaði verð á
bensíni og dísilolíu á bensínstöðvum Orkunnar
og Shell um 2 krónur. Líklegt er talið að Atlants-
olía, N1 og Olís fylgi fast á hæla Skeljungs.
Samkvæmt upplýsingum frá Skeljungi er
ástæða lækkunarinnar lægra heimsmarkaðs-
verðs á olíu í kjölfar nýrra birgðatalna í Banda-
ríkjunum. Ódýrasti bensínlítrinn kostaði í gær
240,40 krónur og var það hjá Orkunni.
■ Eldsneyti
Bensínverð lækkaði um tvær krónur í gær
Um 38 prósent flugferða Iceland
Express frá Keflavík í júlímán-
uði voru á áætlun. Meðalseinkun
brottfara var 34 mínútur og hlut-
fall þeirra véla sem komu í tíma
var 36 prósent. Eru þetta upp-
lýsingar frá vefsíðunni Turisti.
is, sem hefur meðal annars gert
kannanir á stundvísi flugfélaga.
Á síðasta þriðjungi júnímánað-
ar fór innan við fimmta hver vél
Iceland Express í loftið frá Kefla-
vík á réttum tíma. Eftir að þær
tölur voru birtar báðust forsvars-
menn félagsins afsökunar með
því að birta heilsíðuauglýsingu á
síðum íslenskra dagblaða. Þar kom
fram að markmiðið væri að þrjú
af hverjum fjórum flugum héldu
áætlun.
Samkvæmt mælingum Túrista
hélt Icelandair áætlun í 78 pró-
sentum tilvika þegar brottfarir frá
Keflavík voru skoðaðar í júlí. Með-
alseinkun var átta mínútur og hlut-
fall þeirra véla sem komu á tíma
var 73 prósent.
Samkvæmt lögum um loftferðir
ber flugrekanda að bjóða farþeg-
um bætur í einhverju formi, tefjist
flug þeirra um tvo klukkutíma eða
meira. Bætur fara eftir lengd tafar
og vegalengd flugs. - sv
Nýjar tölur sýna að flugvélar Iceland Express eru enn mikið á eftir áætlun:
Tæplega 40% ferða á áætlun
SKREYTT VÉL ICELAND EXPRESS Hlutfall þeirra véla flugfélagsins sem fóru samkvæmt
áætlun frá Keflavík var 38 prósent en 36 prósent komu á áætlun. MYND/ICELAND EXPRESS
Ekki er talið ráðlegt vegna saurgerlamengunar að drekka vatn
úr krananum á Hveravöllum án þess að sjóða það. Sigurjón
Þórðarson, fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra,
segir í samtali við fréttastofu RÚV að löngu tímabært sé að
koma upp betri aðstöðu á svæðinu. Ástandið sé algerlega
óviðunandi. Hann segir ástæður mengunarinnar vera af
ýmsum toga. Sorpmálin séu í ólagi, meðferð og geymsla á
olíu og veitingasalan og aðstaðan þar sé ekki boðleg. Fólki
á svæðinu er ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn áður en þess
er neytt.
■ Heilbrigðismál
Mengað vatn á Hveravöllum
100% VERÐ Á BÍÓMIÐA á venjulega kvikmyndasýningu hefur tvöfaldast síðan árið 1996. Þá kostaði miðinn 550 krónur en er nú 1.100 krónur.
Eigandi bifreiðar fær tjón sitt ekki bætt úr kaskótrygg-
ingu ökutækis verði hann fyrir því að dekkjunum sé
stolið undan bifreið hans. Er þetta samkvæmt skil-
málum tryggingafélaganna; Sjóvá, TM, Varðar og VÍS, og
kemur fram á vef Neytendasamtakanna.
Samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga er
algengast að óheimilt sé að víkja frá ákvæðum þeirra
með samningi, ef það leiðir til lakari stöðu þess ein-
staklings sem öðlast kröfu á hendur félaginu samkvæmt
samningnum. Þegar lögin mæla hins vegar ekki fyrir um tiltekin atriði, eins og
efni kaskótryggingar ökutækis, er tryggingafélögunum heimilt að semja um efni
tryggingar og um leið takmarkanir á henni. Tryggingafélögin geta því undanskilið
sig ábyrgð á tjóni tryggingartaka vegna þjófnaðar á dekkjum og felgum, að því
tilskildu að slíkar takmarkanir komi fram í skilmálum tryggingarinnar.
■ Tryggingar
Engar bætur fyrir þjófnað á dekkjum
Við höfum ekki þurft
að ráða aukamann-
skap til þess að líma miða á
vörurnar.
SIGURÐUR KARLSSON
REKSTRARSTJÓRI 10-11