Fréttablaðið - 04.08.2011, Page 22

Fréttablaðið - 04.08.2011, Page 22
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR22 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, Auðbjörg Hannesdóttir Gaukshólum 2, Reykjavík, sem lést 27. júlí sl., verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 13.00. Ómar Guðmundsson Berglind M. Njálsdóttir Tómas Árni Ómarsson Auður Ómarsdóttir Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur, Hallgrímur Rafn Pétursson Háaleitisbraut 16, Reykjavík, lést 24. júlí síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 15.00 að hætti Ásatrúarmanna. Ragnheiður Hallgrímsdóttir Björg Pjetursdóttir Magnús Pétursson Júlíanna H. Friðjónsdóttir Guðfinna Pjetursdóttir Guðmann Bjarnason og systkinabörn Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Sigurbjörg Sigurðardóttir Hólmi, Mýrum Hornafirði, lést á Hjúkrunarheimilinu á Höfn þann 31. júlí. Útför hennar fer fram frá Brunnhólskirkju á Mýrum laugardaginn 6. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið á Höfn. Guðjón Sigurður Arason börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru kærleiksríku dóttur, móður, ömmu og systur, Lydíu Einarsdóttur Megi blessun Guðs vernda ykkur. Einar Ingvarsson Sigrún Rosenberg börn, barnabörn og systkini. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erla Ólafsdóttir hárgreiðslumeistari, Sóltúni 9, Reykjavík, lést sunnudaginn 31. júlí á dvalarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir um að láta líknarfélög njóta þess. Sigurður Sigurðsson Sigurður Sigurðsson Loida Luisa Walker Ochoa Anna Sigurðardóttir Sveinn Karlsson Ólafur Sigurðsson Valdís Finnsdóttir Haraldur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gylfi Þór Eiðsson Túngötu 9a, Eskifirði, lést á heimili sínu 1. ágúst síðastliðinn. Útför fer fram frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 6. ágúst kl. 11.00. Guðmundur Gylfason Sigrún Traustadóttir Eiður Þór Gylfason Kirstine Jensen Guðbjörn Gylfason Jónína Helga Ólafsdóttir Járnbrá Hrund Gylfadóttir Ari Sigursteinsson barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Friðrik Pétur Valdimarsson Tunguvegi 4, Njarðvík, lést á Bráðamóttöku Landspítala 30. júlí. Ólafía Friðriksdóttir Birgir Vilhjálmsson Þórunn Friðriksdóttir Ragnar Halldórsson Oddbjörg Friðriksdóttir Erlendur Borgþórsson Anna Hulda Friðriksdóttir Árni Kl. Eiðsson Sigrún Alda Jensdóttir Snorri Snorrason afa- og langafabörn. Listasafn ASÍ fagnar fimmtíu ára afmæli um þessar mundir og opnar af því tilefni sýninguna Fimmtíu góðæri þar sem verk 65 ólíkra listamanna frá ýmsum tímum verða til sýnis. „Safnið er auðugt og á margar af helstu ger- semum íslenskrar myndlistar. Við vild- um með sýningunni gefa sem breiðasta mynd af safneigninni okkar,“ segir Kristín G. Guðnadóttir forstöðumaður safnsins, en því tilheyra 2.600 verk. Safneignin hefur vaxið mikið á liðn- um áratugum en upphaf safnsins má rekja til þess þegar Ragnar Jónsson, oftast kenndur við Smára, gaf Alþýðu- sambandi Íslands 120 málverk árið 1961. „Hann hafði safnað málverkum frá mörgum af frægustu listamönnum þjóðarinnar og vildi að allir fengju að njóta þeirra. Hann treysti Alþýðusam- bandinu best til að koma því í kring,“ segir Kristín. Fyrstu árin var safnið til húsa á tveimur stöðum við Laugaveg en flutt- ist árið 1979 í nýtt húsnæði Alþýðu- sambandsins við Grensásveg 16. „Við það komst reksturinn í fastar skorður,“ segir Kristín. „Árið 1996 var Ásmundar- salur við Freyjugötu keyptur og eftir það hefur starfsemin blómstrað.“ Listamönnum er gefinn kostur á að sækja um að sýna í safninu og hefur fjöldi umsókna aukist ár frá ári. Nú berast að jafnaði um 80 umsóknir árlega um 10-12 sýningartímabil. „Áhersla hefur verið lögð á að hýsa vandaðar sýningar sem gefa marg- þætta innsýn í íslenska samtímalist og listhefð,” segir Kristín. Hún segir safnið frábrugðið öðrum söfnum að því leyti að settar eru á fót svokallaðar vinnustaðasýningar til að koma listinni út til fólksins. Þær eru á fjörtíu stöðum víðs vegar um land fólki til gleði og ánægju. Kristín segir safn- ið sjálft vel staðsett og í alfaraleið og það sé prýðilega sótt. „Að jafnaði er sett upp sýning á mánaðarfresti og því alltaf eitthvað nýtt að gerast. Afmælis- sýningin stendur til 11. september. vera@frettabladid.is LISTASAFN ASÍ: FAGNAR FIMMTÍU GÓÐUM ÁRUM MEÐ AFMÆLISSÝNINGU Breið mynd af safneigninni FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Merkisatburðir 1796 Hannes Finnsson Skálholtsbiskup deyr. Hann var einn menntaðasti Íslendingur sinnar tíðar. Af ritum hans má til dæmis nefna Um mannfækkun af hallærum á Íslandi. 1907 Ungmennafélag Íslands er stofnað og er fyrsti formaður þess Jóhannes Jósefsson. 1928 Ásta Jóhannesdóttir syndir frá Viðey til Reykjavíkur. Sund- ið tók tæpar tvær klukkustundir og er um fjórir kílómetrar. 1984 Efri-Volta tekur upp nafnið Búrkína Fasó. 1993 Alríkisdómari dæmir tvo lögreglumenn frá Los Angeles í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á réttindum Rodney King. BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti er 50 ára í dag. „Ég er ekki á móti öllum stríðum. Ég er hins vegar á móti heimskulegum stríðum og vanhugsuðum stríðum.“ 50

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.