Fréttablaðið - 04.08.2011, Qupperneq 48
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR36
sport@frettabladid.is
Pepsi-deild karla - staðan
KR 11 8 3 0 25-7 27
ÍBV 12 8 1 3 19-10 25
Valur 13 7 3 3 19-10 24
FH 13 6 4 3 27-18 22
Stjarnan 13 5 4 4 23-21 19
Fylkir 13 5 3 5 21-24 18
Keflavík 12 5 2 5 17-17 17
Þór 13 5 2 6 20-23 17
Breiðablik 13 4 3 6 20-25 15
Grindavík 13 3 3 7 16-27 12
Víkingur R. 13 1 5 7 10-22 8
Fram 13 1 3 9 7-20 6
Fylkisvöllur, áhorf.: 1.052
Fylkir ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–12 (4–5)
Varin skot Fjalar 2 – Albert 3
Horn 4–6
Aukaspyrnur fengnar 9–12
Rangstöður 3–2
ÍBV 4–3–3
Albert Sævarsson 7
Arnór Eyvar Ólafsson 6
Rasmus Christiansen 7
Eiður Aron Sigurbj. 7
(84., Yngvi Magnús -)
Matt Garner 6
Finnur Ólafsson 6
(42., Tony Mawejje 6)
Brynjar Gauti Guðj. 7
*Tryggvi Guðm. 8
Ian David Jeffs 5
Guðmundur Þórar. 6
Þórarinn Ingi Valdim. 7
(79., Denis Sytnik -)
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirsson 5
Andri Þór Jónsson 4
(78., Trausti Björn -)
Kristján Valdimarss. 4
(46., Þórir Hanness. 5)
Davíð Þór Ásbjörnss. 4
Kjartan Ág. Breiðdal 4
Ásgeir Börkur Ásgeirs. 5
Valur Fannar Gíslas. 4
Ingimundur Níels Ó. 3
(58., Rúrik Andri 5)
Ásgeir Örn Arnþórss. 4
Jóhann Þórhallsson 3
Albert Brynjar Ingas. 5
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson (8.)
0-2 Tryggvi Guðmundsson (24.),
0-3 Tryggvi Guðmundsson (43.)
1-3 Ásgeir Örn Arnþórsson (88.)
1-3
Guðmundur Ársæll (6)
Víkingsvöllur, áhorf.: 1.112
Víkingur Stjarnan
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 5–15 (3–3)
Varin skot Magnús 2 – Ingvar 2
Horn 3–9
Aukaspyrnur fengnar 12–10
Rangstöður 9–2
STJARNAN 4–3–3
Ingvar Jónsson 6
Baldvin Sturluson 5
(83.. Tryggvi Bjarnas. -)
Daníel Laxdal 6
Nikolaj Pedersen 5
Hörður Árnason 6
Þorvaldur Árnason 6
(76., Bjarki Páll Eyst. -)
*Jesper Jensen 8
Halldór Orri Björnss. 6
Jóhann Laxdal 6
Ellert Hreinsson 7
Garðar Jóhannsson 6
(83., Atli Jóhannss. -)
*Maður leiksins
VÍKINGUR 4–5–1
Magnús Þormar 6
Kristinn Jens Bjartm. 5
Gunnar Einarsson 5
Mark Rutgers 5
Hjalti Már Hauksson 3
Colin Marshall 6
Halldór Smári Sigurð. 4
(46., Kristinn Mag. 4)
Þorvaldur Sveinn Sv. 4
Viktor Jónsson 4
(36., Gunnar Helgi 4)
Magnús Páll Gunnars.4
(62., Björgólfur Takef. 7)
Helgi Sigurðsson 4
0-1 Sjálfsmark Gunnars Einars.(62.)
1-1 Björgólfur Takefusa (90.+5)
1-1
Valgeir Valgeirsson (5)
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.282
Breiðablik FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–14 (3–3)
Varin skot Ingvar 2 – Gunnleifur 2
Horn 7–7
Aukaspyrnur fengnar 12–17
Rangstöður 1–2
FH 4–3–3
Gunnleifur Gunnleifs. 7
Guðmundur Sævars. 6
Tommy Nielsen 6
Freyr Bjarnason 7
Björn Daníel Sverris. 6
Hákon Atli Hallfreðss. 7
Hólmar Örn Rúnarss. 7
Emil Pálsson 7
(69., Bjarki Gunnl. 5)
*Ólafur Páll Snorr. 8
Atli Guðnason 8
(82. Hannes Þorst. -)
Matthías Vilhjálmss. 6
*Maður leiksins
BREIÐAB. 4–3–3
Ingvar Þór Kale 7
Jökull I Elísabetarson 4
(74., Andri Yeoman -)
Þórður St. Hreiðarss. 4
Arnór Sv. Aðalsteinss. 5
Kristinn Jónsson 7
Finnur Orri Margeirs. 5
Guðmundur Kristjáns.4
Kristinn Steindórsson 5
Olgeir Sigurgeirsson 2
(55., Árni Vilhjálmss. 5)
Rafn Andri Haraldss. 4
(82., Viktor Unnar -)
Dylan McAllister 5
0-1 Emil Pálsson (30.)
0-1
Þóroddur Hjaltalín (6)
Þórsvöllur, áhorf.: 1.000
Þór Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 5–8 (2–3)
Varin skot Rajkovic 2 – Ögmundur 0
Horn 2–7
Aukaspyrnur fengnar 7–13
Rangstöður 0–1
FRAM 4–3–3
Ögmundur Kristinss. 3
Allan Lowing 4
Kristján Hauksson 4
Hlynur Atli Magnúss. 6
Sam Tillen 4
Halldór Hermann Jó. 4
(86., Jón Gunnar Eys. -)
Steven Lennon 4
Hólmbert Aron Friðj. 5
Arnar Gunnlaugsson 6
(86., Orri Gunnarss. -)
Almarr Ormarsson 4
(88. Hjálmar Þórar. -)
Samuel Hewson 3
*Maður leiksins
ÞÓR 4–3–3
Srdjan Rajkovic 8
Gísli Páll Helgason 7
Þorsteinn Ingason 7
Janez Vrenko 8
Ingi Freyr Hilmarsson 6
*Gunnar Már Guð. 8
Atli Sigurjónsson 6
Clark Keltie 6
David Disztl 6
(55., Jóhann Helgi H. 7)
Ármann Pétur Ævars. 6
(88., Baldvin Ólafss. -)
Sveinn Elías Jónsson 6
(55., Sigurður Marinó 7)
1-0 Gunnar Már Guðmundsson (6.),
2-0 Sigurður Marinó Kristjánss. (78.)
3-0 Jóhann Helgi Hannesson (89.)
3-0
Vilhjálmur Alvar Þór. (7)
Vodafonevöllur, áhorf.: 885
Valur Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 21–3 (5–2)
Varin skot Haraldur 1 – Óskar 4
Horn 9–1
Aukaspyrnur fengnar 9–5
Rangstöður 1–2
GRINDAV. 4–3–3
*Óskar Pétursson 7
Matthías Örn Friðrik. 4
Ólafur Örn Bjarnason 5
Jamie McCunnie 5
Alexander Magnúss. 6
(71., Bogi Rafn Einar. -)
Derek Young 4
Jóhann Helgason 6
Scott Ramsay 4
(61., Orri F. Hjaltalín 5)
Magnús Björgvinsson 5
Óli Baldur Bjarnason 4
Robert Winters 5
(81. Haukur Ingi Guð. -)
*Maður leiksins
VALUR 4–3–3
Haraldur Björnsson 5
Jónas Tór Næs 5
Atli Sveinn Þórarins. 5
Halldór Kristinn Hall. 5
Pól Justinussen 5
Rúnar Már Sigurjóns. 6
Guðjón Pétur Lýðss. 7
(81., Andri Fannar -)
Christian Mouritsen 4
Arnar Sveinn Geirss. 5
Ingólfur Sigurðsson 5
(86., Hörður Sveinss. -)
Matthías Guðmunds. 7
0-1 Magnús Björgvinsson (41.)
1-1 Matthías Guðmundsson (52.)
1-1
Örvar Sær Gíslason (4)
GUNNLEIFUR GUNNLEIFSSON , markvörður FH og aðalmarkvörður landsliðsins síðustu ár, var ekki valinn í landsliðið
fyrir vináttuleik við Ungverja í Búdapest í næstu viku. Grétar Rafn Steinsson er ekki heldur í liðinu en hann hefur tekið sér
persónulegt leyfi frá landsliðinu út þetta ár. Valsmaðurinn Haraldur Björnsson og KR-ingarnir Hannes Þór Halldórsson og
Guðmundur Reynir Gunnarsson koma hins vegar nýir inn hjá Ólafi Jóhannessyni. Það má sjá allan hópinn inn á Vísir.is.
FÓTBOLTI Eyjamenn ætla að fylgja
KR-ingum eftir í toppbaráttu Pepsi-
deildar karla og FH-ingar eru ekki
alveg búnir að segja sitt síðasta í
toppbaráttunni í sumar eftir sigur
á Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Valsmenn töpuðu hins vegar stigum
fjórða leikinn í röð og eru að missa
af lestinni.
ÍBV hefur oft áður gengið illa í
fyrsta leik eftir Þjóðhátíð á undan-
förnum árum en í þetta sinn gerðu
Eyjapeyjar einmitt hið gagnstæða
og pökkuðu slökum Fylkismönnum
saman í Árbænum í gær, 3-1.
Tryggvi Guðmundsson átti stór-
leik fyrir ÍBV en hann skoraði tvö
mörk og lagði það þriðja upp fyrir
Þórarin Inga Valdimarsson sem lék
óvænt í fremstu víglínu í gær.„Þetta
var mjög sannfærandi og fyrri hálf-
leikur með því betra sem við höfum
sýnt í sumar,“ sagði Heimir Hall-
grímsson, þjálfari ÍBV, eftir leik-
inn. „Þeir fengu nánast ekki færi í
leiknum nema kannski í lokin þegar
þeir skoruðu. Þá vorum við orðnir
kærulausir. En annars var varnar-
leikurinn góður og þetta var góður
sigur fyrir liðsheildina.“
Hann segir að verslunarmanna-
helgin hafi nýst liðinu vel. ÍBV tap-
aði fyrir Þór í bikarnum í síðustu
viku og gerði Heimir fimm breyt-
ingar á sínu liði fyrir leikinn í gær.
„Við æfðum stíft um helgina og ég
reyndi að velja þá sem voru tilbúnir
í bardagaleik eins og þeir verða oft
gegn Fylki í Árbænum.“
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis,
var eðlilega ósáttur við sína menn
og ítrekaði þá kröfu sína að leik-
menn legðu sig fram og myndu
berjast fyrir félagið. „Menn verða
að átta sig á því að þeir hafa sínum
skyldum að gegna,“ sagði Ólafur.
Hann nefndi reyndar einnig þá stað-
reynd að liðið hefur lítið sem ekk-
ert styrkt sig á undanförnum þrem-
ur árum. „Við höfum verið að sækja
mikið í yngri flokkana og það tekur
langan tíma að búa til gott lið úr því.
Félagið hefur ekki verið tilbúið að
sækja leikmenn og því hef ég ekki
úr neinu að moða. Það er einfaldlega
fullt af gæðum farið úr liðinu.“
Basl á Blikum
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru
komnir í níunda sæti Pepsi-deild-
arinnar eftir 0-1 tap gegn FH.
Eftir góða byrjun hrundi leikur
Blika. Liðið virkaði andlaust, menn
hengdu haus og liðið er augljóslega
rúið öllu sjálfstrausti.
„Þetta er eðlilega alvarleg staða.
Við verðum nú að líta í báðar áttir.
Ekki bara hvað er fyrir ofan held-
ur líka hvað sé fyrir neðan. Við
munum gera það. Ég mun halda
áfram að reyna að berja sjálfs-
traust í drengina. Það er það eina
sem við getum gert núna,“ sagði
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika,
eftir leikinn.
FH-ingar hefðu getað unnið
stærri sigur en spiluðu skynsam-
lega og sigldu sigrinum rólega og
varlega í höfn.
„Við náðum góðum tökum á leikn-
um um miðjan fyrri hálfleik og við
héldum þetta vel út. Blikarnir opn-
uðu okkur ekkert og við lönduð-
um þremur sanngjörnum stigum.
Það var líka ánægjulegt að halda
hreinu,“ sagði Heimir Guðjónsson,
þjálfari FH.
Valsmenn náðu aðeins stigi
Valsmenn náðu aðeins stigi gegn
Grindvíkingum á Hlíðarenda.
Grindvíkingar nýttu sitt eina færi
í leiknum undir lok fyrri hálfleiks
þegar Magnús Björgvinsson skall-
aði boltann í netið af stuttu færi.
Matthías Guðmundsson jafnaði
fyrir Valsmenn í upphafi síðari
hálfleiks. Heimamönnum, sem áttu
á þriðja tug marktilrauna, gekk illa
að hitta á markið og tókst ekki að
koma boltanum yfir línuna.
„Við vorum í sókn allan seinni
hálfleikinn og ég snerti ekki bolt-
ann. Það er svekkjandi að hafa ekki
náð að klára þetta,” sagði Haraldur
Björnsson markvörður Vals.
- esá, hbg, ktd, óój
Eyjamenn gefa ekkert eftir
Eyjamenn minnkuðu forskot KR-inga á toppnum í tvö stig eftir 3-1 sigur á Fylki
í Árbænum. FH vann Íslandsmeistara Blika og Grindavík tók stig á Hlíðarenda.
GÓÐUR Í GÆR Tryggvi Guðmundsson var í ham í Árbænum, skoraði tvö mörk og
lagði upp eitt. Hér er hann í baráttu við Kristján Valdimarsson í leiknum í Ábænum í
gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FÓTBOLTI Þórsarar eru á miklu skriði og fjar-
lægðust fallsætin með 3-0 sigri á Fram í
Pepsi-deildinni í gær. Norðanmenn eru hrein-
lega óstöðvandi á Þórsvellinum þessa dagana.
Framliðið er hins vegar í slæmum málum og
ekki er staða Víkinga mikið betri þrátt fyrir að
liðið næði í stig á móti Stjörnunni í gær. Björg-
ólfur Takefusa snéri aftur eftir slæm meiðsli
og skoraði jöfnunarmark Víkinga í uppbótar-
tíma eftir að hafa komið inn á sem varamaður
í leiknum.
Ótrúleg markvarsla Srjdans Rajkovic var
vendipunkturinn á Akureyri þar sem Þór vann
3-0 sigur á Fram. Gunnar Már Guðmundsson
kom Þór yfir en Srjdan varði stórkostlega
þegar Almarr Ormarsson komst einn í gegn
rétt fyrir hálfleikinn.
Þór skoraði svo tvö mörk undir lokin,
Sigurður Marínó Kristjánsson af stuttu færi
og Jóhann Helgi Hannesson með skoti sem fór
í varnarmann og inn.
Framarar voru mikið með boltann en virðast
ráðalausir á botni deildarinnar. Enn eitt tapið
staðreynd og ekkert nema fall blasir við í
Safamýrinni.
Þór er aftur á móti á góðu skriði og virðast
leikmenn vera í góðu líkamlegu formi. Þeir
berjast allan leikinn og uppskera eftir því,
mörk þeirra á lokamínútunum hafa verið mörg
og liðið siglir nú lygnan sjó um miðja deild.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, segir að
liðið sé samt nógu gott til að halda sér uppi.
„Við sýndum það til dæmis núna, við vorum
betri aðilinn gegn hinu liðinu sem sparkaði
langt og hátt og notaði löng innköst. Menn hafa
mismunandi hugmyndafræði í fótbolta og menn
leggja hlutina mismunandi upp. En þetta snýst
um að vinna leiki,“ sagði Þorvaldur sem skaut
einnig föstum skotum að dómara leiksins.
Víkingur stal sigri á móti Stjörnunni
Víkingur stal stigi af Stjörnunni þegar Björg-
ólfur Takefusa jafnaði metin á 95. mínútu og
tryggði 1-1 jafntefli. Stig sem getur gert gæfu-
muninn í fallbaráttunni ef Víkingur nær að
nýta það sem stökkpall þar sem liðið er enn
fjórum stigum á eftir Grindavík.
Stjarnan var mun sterkari aðilinn í leiknum
en það er ekki spurt að því og mjög mikilvægt
stig Víkings staðreynd.
„Þetta er stökkpallur fyrir framhaldið. Það
er ekkert áunnið en þetta er gott fyrir lið í
svona stöðu og með það sem hefur gengið á hér
í Víkinni frá því í vetur. Þetta gefur okkur byr
undir báða vængi og trú leikmanna eykst og
það viljum við byggja á til loka tímabils,“ sagði
Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkings, í leiks-
lok. - hþh, gmi
Varamaðurinn Björgólfur Takefusa tryggði Víkingum fyrsta stigið undir stjórn Bjarnólfs Lárussonar í gær:
Þórsarar eru komnir upp í áttunda sætið
FYRSTA STIGIÐ Í HÚS Bjarnólfur Lárusson, þjálfari
Víkinga, sést hér stjórna sínum mönnum í leiknum á
móti Stjörnunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG