Fréttablaðið - 30.08.2011, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING30. ÁGÚST 2011 ÞRIÐJUDAGUR
HEILSUEFLANDI SKÓLI
Árleg ráðstefna um heilsu-
eflandi skóla verður haldin á
vegum Landlæknisembættisins
á Grand Hóteli föstudaginn 2.
september. Slík ráðstefna hefur
verið haldin þrjú undanfarin ár í
upphafi skólaárs.
Flutt verða erindi um marg-
víslegar hliðar þess að efla
heilsu nemenda í grunnskólum
og framhaldsskólum landsins.
Síðari hluta dags verða haldnar
vinnustofur þar sem kafað verð-
ur dýpra í meginviðfangsefni
heilsueflandi skóla, næringu,
hreyfingu, geðrækt, lífsleikni og
lífsstíl.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar
verður Clive Blair-Steven, sér-
fræðingur í félagslegri markaðs-
setningu (e. Social Marketing)
og stofnandi Social Marketing
Centre í Englandi á sínum tíma,
en hann er nú einn stjórnenda
hjá Strategic Social Marketing.
Frestur til að skrá sig á nám-
skeiðið rennur út í dag klukkan
17. Nánari upplýsingar á www.
landlaeknir.is
Margir hafa gengið með
draum í maganum um að
læra íþrótt sem þeir hafa
aldrei prófað. Í vetur eru
ótal námskeið í boði fyrir
fullorðna í hinum ýmsu
íþróttagreinum.
Skriðsund er hraðasta sundaðferð-
in og þykir til að mynda gera fólki
gott sem þjáist af vöðvabólgu. Þótt
flestir hafi lært skriðsundstökin í
grunnskóla eru þeir margir sem
hafa ekki viðhaldið þeirri kunn-
áttu og treysta sér ekki í sund-
ið. Fyrir þá er sniðugt að skella
sér á skriðsundsnámskeið, þar
sem farið er rækilega yfir hvernig
skriðsund skal synt.
Meðal þeirra námskeiða sem
eru í boði í vetur má nefna nám-
skeið í Árbæjarlaug sem hefst
6. september, en kennari þar er
Brynjólfur Björnsson. Sunddeild-
ir íþróttafélaganna hafa sumar
hverjar haldið skriðsundsnám-
skeið og má þar nefna KR, Sund-
deild Hamars í Hveragerði og
f leiri sem halda reglulega slík
námskeið. Sundskóli Sóleyjar er
þá annar vettvangur skriðsunds-
námskeiða og Lóló, einkaþjálfari í
Laugum, hefur haldið námskeið í
Laugardalslaug sem er næst á dag-
skrá 5. september.
Badminton er skemmtileg
og fjörug íþrótt sem hægt er að
stunda með maka, vinum og
vinnufélögum, en hér á landi
eru 29 íþrótta- og ungmenna-
félög um allt land sem bjóða upp
á badmintonæfingar. Í Reykjavík
er til dæmis Tennis- og badmin-
tonfélag Reykjavíkur með æfing-
ar í TBR-húsinu en á heimasíðu
Badmintonsambands Íslands er
að finna lista yfir þau félög á land-
inu sem eru með iðkendur.
Að lokum, fyrir þá sem eru
meira fyrir að hafa það huggu-
legt heima, má minnast á skák-
ina, sem er aldrei of seint að
byrja að læra. Skáknámskeið eru
gjarnan í boði hjá tómstundaskól-
um og sérstökum skákfélögum.
Upplýsingar um námskeið í
skák má til að mynda nálg-
ast hjá Skáksambandi Ís-
lands, Ská ka ka-
dem íu Re yk ja-
víkur, Skákskóla
Íslands og Taflfélagi
Reykjavíkur.
Aldrei of
seint að byrja
Badminton er fjörug
íþrótt sem gaman er að
draga besta vininn eða
makann með sér í.
Skák er frábær heilaleikfimi.
Skriðsund er skemmtilegt og gott fyrir þá sem þjást af vöðvabólgu. NORDICPHOTOS/GETTY
FUNDUR UM NÝJAN LANDSPÍTALA
Almennur kynn-
ingarfundur verður
á morgun um drög
að deiliskipulagi á lóð
Landspítala við Hring-
braut vegna nýbygg-
ingar sem þar á að rísa.
Fundurinn verður í
stofu 105 á Háskóla-
torgi og hefst klukkan
17.30. Forstjóri Land-
spítala, rektor Háskóla Íslands og fulltrúar hönnunarhópsins SPITAL
kynna byggingarverkefnið.
Kynningardagar verða í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg frá
1.-6. september þar sem hægt verður að skoða kynningarefni vegna
byggingar nýs Landspítala.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp-upplausn með greiðara og
einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með
öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?