Fréttablaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 6
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Nýir eigendur
óskast!
Verð kr. 2.190.000
Volkswagen Passat Highline
árg. 2005, ekinn 112 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
17” álfelgur
Sóllúga, leðuráklæði
Verð kr. 2.690.000
Subaru Legacy 4x4
árg. 2007, ekinn 101 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
Hlaðbakur (Station)
Húddhlíf
Verð kr. 1.490.000
Toyota Corolla
árg. 2006, ekinn 116 þús. km
1400cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 6.890.000
Toyota Land Cruiser GX 4x4
árg. 2008, ekinn 81 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Sóllúga
Kastaragrind, húddhlíf
Rúmgóður
Sparneytinn
Verð kr. 3.390.000
Kia Sorento Ex Classic 4x4
árg. 2006, ekinn 73 þús. km
2500cc, dísel, sjálfsk.
17” álfelgur
Loftkæling
Verð kr. 1.850.000
Honda Jazz
árg. 2008, ekinn 48 þús. km
1400cc, bensín, beinsk.
Samlitur
Sparneytinn
Verð kr. 4.690.000
Mercedes-Benz B-Class
árg. 2010, ekinn 8 þús. km
1800cc, NGT,* sjálfsk.
Hlaðinn aukabúnaði
Sparneytinn
Metan/bensín*
Kynntu þér úrval notaðra bíla á www.askja.is
Opið virka daga frá 9-18
Laugardaga frá 12-16
TILBO
ÐSBÍ
LL!
Kr. 6
.490.
000
DANMÖRK Einn lést og tveir særð-
ust í skotárás fyrir utan mosku í
Kaupmannahöfn í gærmorgun.
Árásin var gerð strax að lokinni
bænastund múslima, þegar fólk
streymdi út á bílastæði fyrir utan
mosku á Vesturbrú, í rólegu hverfi
í Kaupmannahöfn.
Að sögn dönsku lögreglunnar
upphófust einhvers konar deilur
milli tveggja hópa úti á bílastæð-
inu fljótlega eftir að morgunbæna-
stund lauk.
„Ég veit ekki hvort báðir hóparn-
ir voru inni í moskunni,“ segir Lau
Thrygesen, talsmaður lögreglunn-
ar. „Deilurnar snerust upp í átök og
síðan hófst skothríðin.“
Einn maður lét lífið, 24 ára gam-
all, en tveir særðust. Annar þeirra
flúði af vettvangi á bíl sínum en
fannst síðar á sjúkrahúsi í Malmö
í Svíþjóð.
Síðdegis í gær hafði enginn
verið handtekinn, en lögreglan
sagðist leita að nokkrum grun-
uðum. Árásarmaðurinn er talinn
vera um þrítugt, en hann flúði
einnig af vettvangi á bifreið.
Danska lögreglan hefur stað-
fest að hinn myrti hafi árið 2005
sjálfur hlotið dóm fyrir morðtil-
raun. Hann fékk fimm ára fang-
elsisdóm fyrir hnífstungu á Kóngs-
ins Nýjatorgi. Lögreglan segist þó
ekki telja að það atvik hafi tengst
atburðunum í gær.
Lögreglan telur að átökin hafi
tengst einhvers konar uppgjöri
sjoppueigenda í Kaupmannahöfn,
en tengist hvorki átökum glæpa-
gengja né trúardeilum af neinu
tagi.
Kuran Qureshi, einn þeirra sem
tóku þátt í bænastundinni, sagðist
í viðtali við danska sjónvarpið hafa
heyrt 15 til 20 skot þegar hann ók
frá svæðinu með tíu ára gamlan
son sinn. „Ég sá fólk, bæði konur
og börn, beygja sig niður og fela
sig á bak við bifreiðar. Þetta var
afar ónotalegt.“
Eitt vitni segir við danska blað-
ið Politiken að það óhugnanlegasta
við árásina hafi verið að árásar-
maðurinn hafi haldið áfram að
skjóta á hinn myrta þangað til öll
skot voru búin í byssunni. Nærri
þúsund manns voru saman komin
í moskunni í gærmorgun að fagna
föstulokum.
Menningarstofnun múslima
var stofnuð af pakistönskum inn-
flytjendum í Kaupmannahöfn árið
1970. Stofnunin starfrækir bæði
mosku og trúarskóla við Ameríku-
veg á Vesturbrú í Kaupmannahöfn,
þar sem atburðirnir gerðust í gær.
gudsteinn@frettabladid.is
Skotárás við mosku
í Kaupmannahöfn
Deilum tveggja hópa ungra manna lauk með því að einn tók upp byssu, myrti
ungan mann og særði tvo aðra. Hinn látni hafði hlotið dóm fyrir morðtilraun.
Á VETTVANGI Í KAUPMANNAHÖFN Lögreglan girti af svæðið þar sem sem skotárásin var gerð. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Reglur sem Seðla-
banki Íslands hefur gefið út um
hvernig standa skuli að útreikn-
ingum á verðtryggðum lánum eru
í samræmi við lög, að því er fram
kemur í bréfi bankans til umboðs-
manns Alþingis.
Í bréfinu, sem undirritað er af Má
Guðmundssyni seðlabankastjóra,
er jafnframt bent á að engu breyti
hvort verðtryggingu sé bætt við höf-
uðstól eða við afborganir af láninu.
Hagsmunasamtök heimilanna
hafa kvartað til umboðsmanns
Alþingis vegna útreikninga á verð-
tryggðum lánum. Samtökin benda
á að í lögum um verðtryggingu sé
talað um að bæta verðtryggingu á
greiðslur af lánum, en í reglugerð
útgefinni af Seðlabankanum sé talað
um að leggja verðtrygginguna við
höfuðstólinn.
Samtökin hafa jafnframt haldið
því fram að miklu muni fyrir lán-
takendur hvernig reiknað sé.
„Hvort sem farin er sú leið við
framkvæmd verðtryggingar að
verðbæta höfuðstól eða greiðslur
verður efnisleg niðurstaða sú
sama,“ segir í bréfi Seðlabankans.
Þar segir jafnframt að lög krefjist
þess ekki að notað sé sama orðalag í
reglugerðum og í lagagreinum leiði
reglugerðir til efnislega sömu niður-
stöðu og lögin boði. Því geti Seðla-
bankinn ekki séð að lögmætisregla
stjórnsýsluréttarins hafi verið brot-
in. - bj
Seðlabankinn segir reglur um útreikning verðtryggðra lána í samræmi við lög:
Breytir engu hvernig reiknað er
LÖGLEGT Reglugerð Seðlabankans um
útreikning verðtryggðra lána er í fullu
samræmi við lög samkvæmt bréfi Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra til
umboðsmanns Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÍBÍA, AP Dóttir Gaddafís hefur
eignast barn í Alsír, en þangað fór
hún ásamt móður sinni og tveimur
bræðrum á mánudag. Talsmaður
Alsírsstjórnar segir fjölskyldunni
veitt hæli vegna þess að dóttirin
var barnshafandi. Uppreisnar-
menn í Líbíu segja óskiljanlegt að
fjölskylda hafi fengið hæli í Alsír.
„Við erum staðráðnir í að hand-
taka og færa fyrir rétt alla Gad-
dafí-fjölskylduna, þar með Gad-
dafí sjálfan,“ segir Mahmoud
Shammam, talsmaður uppreisn-
armanna. Enn er ekkert vitað
hvar Gaddafí er niðurkominn þótt
ýmsar tilgátur hafi verið nefndar.
Roland Lavoie, talsmaður NATO,
segir að bandalagið muni áfram
styðja við uppreisnarmenn í Líbíu.
Það verði gert meðan almenningur
er enn í hættu, jafnvel þótt svæð-
ið í kringum höfuðborgina Trípólí
sé orðið „frjálst að mestu“, eins og
hann orðaði það. Hann segir upp-
reisnarmenn eiga í viðræðum við
stuðningsmenn Gaddafís í borg-
inni Sirte, þar sem stjórnarher-
inn sýnir engin merki uppgjafar.
Mustafa Abdel Jalil, leiðtogi bráða-
birgðastjórnar uppreisnarmanna,
segir að þeim viðræðum verði
ekki haldið áfram lengur en fram
á laugardag, þegar lokahátíð föstu-
mánaðar múslima lýkur. - gb
Uppreisnarmenn vilja handtaka alla fjölskyldu Gaddafís og færa fyrir dómstól:
Dóttir Gaddafís eignaðist barn
UPPREISNARMAÐUR Í LÍBÍU Á vegg-
spjaldi er lýst eftir Múammar Gaddafí.
NORDICPHOTOS/AFP
Hefur þú tínt ber í sumar?
JÁ 30%
NEI 70%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að rannsaka aðdraganda
þess að íslensk stjórnvöld
studdu árásir NATO í Líbíu?
Segðu þína skoðun á visir.is
LÖGREGLUMÁL Kona á þrítugsaldri
var nýverið stöðvuð við akstur á
höfuðborgarsvæðinu. Hún var í
annarlegu ástandi. Í fórum henn-
ar fundust fíkniefni. Með í för
var barnið hennar og var barna-
verndaryfirvöldum gert viðvart.
Móðirin var handtekin og flutt á
lögreglustöð en hún hafði þegar
verið svipt ökuleyfi.
Allmargir ökuþórar voru teknir
fyrir hraðakstur um nýliðna
helgi. Grófasta brotið framdi karl
á sextugsaldri sem ók Suðurlands-
veg á 155 kílómetra hraða. - jss
Ökufantar teknir í umferðinni:
Dópuð móðir
með barn í bíl
KJÖRKASSINN