Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 10
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR
FRAMKVÆMDIR Drög að deiliskipu-
lagi nýs Landspítala voru kynnt í
gær. Vonir standa til að skipulag-
ið öðlist gildi með vorinu. Drögin
eru grundvölluð á tillögu hönnunar-
hópsins SPITAL, sem bar sigur úr
býtum í hönnunarsamkeppninni
árið 2010.
Gunnar Svavarsson, formaður
byggingarnefndar nýs Landspítala,
segir áætlaðan kostnað við bygg-
inguna vera um 40 milljarða króna.
„Lífeyrissjóðirnir munu fjár-
magna þetta að fullu,“ segir Gunn-
ar. „Ríkið eignast spítalann á 30 til
40 árum og kaupir þetta á hrakvirði
til baka.“ Happdrætti Háskólans
fjármagnar heilbrigðisvísindasvið
Háskólans sem er um 10 prósent
af heildinni, að sögn Gunnars. Það
gerir á bilinu þrjá til fjóra milljarða
króna.
Starfsemi Landspítalans fer
nú fram á 17 stöðum í nærri 100
húsum. Ætlunin með nýja spítal-
anum er meðal annars að sameina
alla bráðastarfsemi sem rekin
er við Hringbraut og í Fossvogi.
Nýja byggðin á að rísa að mestu á
suðurhluta lóðarinnar og innihalda
meðal annars meðferðar- og bráða-
kjarna, sjúkrahótel og húsnæði
heilbrigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands.
Deiliskipulagssvæðið er í heild
um 15 hektarar og afmarkast af
umferðargötum á alla vegu. Bygg-
ingarmagn á Landspítalalóðinni er
nú ríflega 76 þúsund fermetrar og
í fyrsta áfanga, sem á að vera lokið
árið 2017, er miðað við 95 þúsund
fermetra í nýbyggingum.
„Byggingar Landspítala eru
gamlar og henta illa nútímaleg-
um sjúkrahúsrekstri,“ er haft
eftir Björn Zoëga í tilkynningu
frá Landspítalanum. „Sameining á
einn stað og sveigjanleiki nýbygg-
inga í breytilegu umhverfi spítala í
stöðugri framþróun mun stuðla að
aukinni hagkvæmni í rekstri Land-
spítala.“
Á næstu dögum mun forkynn-
ing á drögum að deiliskipulagi
standa yfir. Veggspjöld með upp-
dráttum og þrívíddarmyndum
verða til sýnis í Háskóla Íslands og
verða sérfræðingar á staðnum til
að svara fyrirspurnum almennings.
Einnig verða upplýsingar aðgengi-
legar á heimasíðunni www.nyr-
landspitali.is og www.reykjavik.is
frá 1. september til 1. október næst-
komandi. sunna@frettabladid.is
Lífeyrissjóðirnir fjár-
magna þetta að fullu.
Ríkið eignast spítalann á 30
til 40 árum og kaupir þetta á
hrakvirði til baka.
GUNNAR SVAVARSSON
FORMAÐUR BYGGINGARNEFNDAR
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
1
12
18
7
MENNTUN OG KENNSLA Á 21. ÖLD
Teaching and Learning for the 21st Century
Dr. Linda Darling-Hammond er prófessor í menntavísindum við
Stanford-háskóla og leiðandi í mótun menntastefnu núverandi
stjórnvalda í Bandaríkjunum.
Fyrirlesturinn er í röð öndvegisfyrirlestra á aldarafmæli Háskóla
Íslands og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu,
fimmtudaginn 1. september nk. kl. 15.00.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Dr. Linda Darling-Hammond,
öndvegisfyrirlesari
Menntavísindasviðs,
flytur erindið:
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
Aðeins
1.900 kr.
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FERSKT & ÞÆGILEGT
Listasafn Reykjavíkur auglýsir eftir
verkum Karenar Agnete Þórarinsson
(1903–1992) listmálara vegna sýningar
á Kjarvalsstöðum í janúar 2012.
Listasafn Reykjavíkur
Reykjavík Art Museum
Leit að
listaverkum
Þeir sem kynnu að eiga verk eftir hana eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við Unni Mjöll Leifsdóttur hjá Listasafni Reykjavíkur
í síma 590-1200, eða í netfangið unnur.mjoll.leifsdottir@reykjavik.is.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Heildarkostnaður um
40 milljarðar króna
Drög að deiliskipulagi nýs Landspítala verða kynnt í vikunni. Almenningur
getur sent inn athugasemdir og ábendingar. Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdir um 40 milljarðar. Vonir standa til að fyrsta áfanga verði lokið 2017.
SÓLEYJARTORG 2017 Lóð Nýs Landspítala verður vel tengd við stígakerfi Reykjavíkur og almenningssamgöngur. Áhersla verður
lögð á að efla sjálfbæran samgöngumáta í nágrenni spítalans. MYND/NLSH