Fréttablaðið - 31.08.2011, Qupperneq 20
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Mér er umhugað um heilsuna og
hreyfi mig mikið; hleyp, stunda
kajakróður, vikulegt sjósund og
fleira sem mér þykir auka lífs-
gæði og vellíðan. Ég er því afar til-
kippilegur að prófa hlutina ef þeir
vinna manni ekki tjón og fell oftast
kylliflatur fyrir nýju sporti, sem
er dálítið vont, en voða gott eftir
á,“ segir Guðmundur brosmildur.
Hann segist hafa byrjað að
hlaupa árið 2008 þegar hann var
plataður til að sækja um í happ-
drættiskerfi New York-maraþons-
ins, þar sem fjórðungs líkur eru á
að komast að.
„Þar var ég svo lukkulegur að fá
þátttökurétt, en fram að því hafði
ég aldrei skilið hvað aðrir sáu við
hlaup og bara hlaupið eins og aðrir
þegar þeir þurfa að taka til fót-
anna,“ segir Guðmundur sem síðan
hefur tvisvar hlaupið New York-
maraþon með góðum árangri, sem
og Reykjavíkurmaraþon, en reynd-
ar óundirbúinn með öllu á liðinni
Menningarnótt. „Þá var árangur-
inn líka hálftíma verri en síðast,
eins og ég átti skilið,“ segir Guð-
mundur.
Hann segist oftar en ekki fara
á fjöll á nóttunni og þá helst í kol-
niðamyrkri.
„Það er ósköp þægilegt og stel-
ur ekki tíma frá vinnu eða heim-
ilislífi. Augun eru fljót að venjast
myrkrinu og allt önnur upplifun að
ganga á fjöll í dimmu undir tindr-
andi stjörnuhimni og norðurljós-
um. Mér þykir einna best að fara
í frosti og fannfergi því þá er jú
bjartara og fegurra um að litast,“
upplýsir Guðmundur sem verður
aldrei hræddur á næturbrölti sínu,
enda ávallt vel búinn og á brodd-
um.
„Súrefnisupptakan veldur því
að maður þarf mun minni svefn
en ella og ég mæti galvaskur í
vinnu að morgni eftir fjallgöngu.
Svo er til eitthvað af svona fólki
eins og mér, því fyrir kemur að
ég mæti mönnum á fjöllum um
nætur, enda freistandi að komast
í óbyggðakyrrð og náttúruperlur
í stuttu færi frá Reykjavík. Þar er
ekkert sem truflar og maður heyr-
ir í eigin hugsunum.“
Guðmundur stendur á fimmtugu
og segist endalaust orkumikill.
Honum bregður fyrir í kvikmynd-
inni Flags of our fathers, sem Clint
Eastwood tók upp á Sandvík 2005.
„Ég hafði lengi verið aðdáandi
Clints og gat ekki sleppt tækifærinu
þegar ég sá auglýst eftir mannskap
í myndina hans. Ég hringdi því, var
mældur út og fékk hlutverk. Það var
ógleymanlegt og eitt það skemmti-
legasta sem ég hef gert í lífinu, þótt
Clint hafi gefið lítið færi á sér og
krafist vinnufriðar allan tímann.“
thordis@frettabladid.is
Guðmundur með appelsín og bandarískan hermannahjálm í ætt við þann sem hann
bar í mynd Clints Eastwood. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framhald af forsíðu
„Augun eru fljót að venjast myrkrinu og allt önnur
upplifun að ganga á fjöll í sveitadimmu undir tindrandi
stjörnuhimni og norðurljósum.”
Réttir eru hafnar í sveitum
landsins með tilheyrandi
ferðalögum og fjöri.
Fyrstu stóru fjárréttir hausts-
ins verða á laugardaginn, 3.
september. Þær eru á sex stöð-
um norðanlands, meðal annars
í Möðruvallarétt í Eyjafirði,
Kleifnarétt í Fljótum í Skaga-
firði, Rugludalsrétt í Húna-
vatnssýslu og Miðfjarðarrétt
í Vestur-Húnavatnssýslu. Þá
verður fé rekið í Ljárskógarétt
í Laxárdal í Dalasýslu.
Fyrsta stóðrétt haustsins er
einnig fyrirhuguð á laugar-
daginn. Þá á að reka hross í
Miðfjarðarrétt í Vestur-Húna-
vatnssýslu klukkan níu um
morguninn, þannig að þeir sem
að smöluninni standa þurfa að
leggja af stað árla dags.
Margir þéttbýlisbúar og
langt að komnir gestir njóta
þess jafnan að fylgjast með
þegar bændur landsins heimta
búsmala sinn úr högum. Upp-
lýsingar um réttir haustsins eru
á bondi.is.
Réttafjör
í sveitum
Vilhelm ljósmyndari Fréttablaðsins
brá sér í Hlíðarrétt við Mývatn í fyrra.
Nestið með í bílinn. Í stað þess að stoppa í vegasjoppum á
leið um landið er um að gera að breyta til og smyrja nesti áður
en lagt er í hann. Þá er hægt að stoppa hvar sem er, setjast
niður í fallegri laut og leggja svo endurnærður af stað á ný.
Haustvörurnar
komnar.
Útsölulok
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
12 volt díóðuljós
12v 1,3w12v 1,3w
12v 2,5w 12v 1,66w 12v 1,66w
12v 1,0w
12v 1,2w 12v 1,0w
Tilvalið fyrir sumarbústaði með sólarorku
Eyða allt að 90% minni orku en halogen
12v 3,0w
ÍSLENSKT
KISUNAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
Harðfisktöflur sem
kisur elska
VINSÆLVARA
UMA - SKEMMTILEG OG
SPENNANDI NETVERSLUN
NÝ SENDING -NÝJIR LITIR
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
HEILSUDREKINN ¦ SKEIFAN 3J ¦ SÍMI: 553 8282 ¦ heilsudrekinn@heilsudrekinn.is ¦ www.heilsudrekinn.is
(KUNG-FU)
Taijiquan fyrir byrjendur
mánudaga, miðvikudaga kl. 18:15
og laugardaga kl. 9:15
WUSHU
QI GONG
TEYGJUR
TAICHI
Changquan fyrir byrjendur
mánudaga og miðvikudaga kl. 19:15
NÝTT!
Sjálfsvarnarnámskeið
fyrir konur
Hefst 10. september
Nánari upplýsingar í síma 899 8588 og á heimasíðu
www.thinleid.is
Námskeið um framkvæmd markmiða sameinað
gönguferðum í náttúrunni
Viltu ná markmiðum þínum?
ÞÍN LEIÐ – NÆSTA SKREF