Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGfyrirtækjaþjónusta MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 20112
Iðan fræðslusetur býður nú
í auknum mæli upp á
fyrirtækjaþjónustu.
Rannsóknir hafa sýnt að þeir vinnustaðir sem sinna endurmenntun starfsmanna
eru eftirsóknarverðir og þar er
starfsánægjan meiri. Hæfara starfs-
fólk skilar sér einnig í hagkvæmari
rekstri,“ segir Hildur Elín Vignir,
framkvæmdastjóri Iðunnar. Iðan er
endurmenntunarfyrirtæki í iðnaði.
Markmið hennar er að bæta hæfni
fyrirtækja og starfsmanna í bíliðn-
aði, bygginga- og mannvirkjaiðn-
aði, matvæla- og veitingageirum,
málm- og véltækniiðnaði, upplýs-
inga- og fjölmiðlagreinum og hár-
snyrtiiðninni. „Það hefur verið
hluti af stefnumótun Iðunnar og
áherslum í okkar starfi að auka þátt
fyrirtækjaþjónustu í okkar starf-
semi,“ útskýrir Hildur Elín og held-
ur áfram: „Þessi hugmynd gengur
út á að hjálpa fyrirtækjum að ná
betur sínum markmiðum. Þjón-
usta okkar felst í að meta fræðslu-
þörf starfsmanna og styðja þá í að
móta sína fræðslustefnu þannig að
þær lausnir sem settar eru fram taki
mið af þeim markmiðum sem hvert
fyrirtæki setur sér.“
Iðan býður upp á ýmis hnitmið-
uð námskeið sem henta önnum
köfnum stjórnendum og fjalla um
hvernig eigi að stjórna á árangurs-
ríkan hátt. En auk þess eru í boði
150 almenn fagtengd námskeið í
námsvísi Iðunnar. „Þau getum við
öll klæðskerasaumað fyrir hvert
fyrirtæki fyrir sig,“ segir Hild-
ur Elín. Hún segir áhuga fyrir-
tækja fyrir endurmenntun starfs-
manna fara vaxandi. Mörg stór fyr-
irtæki hafi fræðsludeildir og sinni
endur-menntun markvisst og vel.
Hins vegar hafi minni fyrirtæki
sem ekki hafi yfir að ráða starfs-
manna- eða fræðslustjóra átt erf-
iðara með að standa að skipulögðu
og markvissu fræðslustarfi. „Það er
þetta gat sem við viljum stíga inn í
og hjálpa fyrir-tækjum með,“ segir
Hildur Elín.
Hún bendir að lokum á að hjá Ið-
unni starfi náms- og starfsráðgjafar
sem bjóði upp á ókeypis viðtöl fyrir
starfsfólk fyrirtækja með aðild að
Iðunni. Þar geti fólk farið í starfs-
ferilsgreiningu, mótað persónulega
fræðslustefnu og farið í áhugasviðs-
könnun.
Nánari upplýsingar um starfsemi
Iðunnar er að finna á idan.is.
Fjárfest í menntun
Starfsfólk Iðunnar tekur vel á móti fróðleiksþyrstum starfsmönnum fyrirtækja.
Hressing, fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar,
sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjarvöru og
snarli fyrir vinnustaði landsins.
Við bjóðum fyrst og fremst upp á gott úrval drykkjarvöru; eins og kaffi, te, vatnsdrykki, gos-drykki, safa og þykkni. Einnig bjóðum við upp
á mikið úrval af snarli. Hugmyndin er að vinnustaðir
landsins finni á einum stað þá hressingu sem hentar
hverjum og einum,“ segir Valur Ásberg Valsson, fram-
kvæmdastjóri Hressingar.
Hressing varð til þegar Egill Skallagrímsson og
heildsalan Danól sameinuðust í Ölgerðina árið 2007.
„Við sameininguna skapaðist grundvöllur fyrir öfluga
fyrirtækjaþjónustu með fjölbreyttu vöruúrvali,“ segir
Valur en bætir við að gott vöruúrval dugi þó ekki til
eitt og sér. „Við leggjum áherslu á að pöntunarferlið sé
sem einfaldast og það er einlægt metnaðarmál okkar
allra sem stöndum að Hressingu að halda þjónustu-
stiginu háu.“ Valur útskýrir að fyrirtæki geti fengið
heimsókn frá sölumanni eða hringingu frá þjónustu-
veri þegar ganga skal frá pöntun. „Eins nota mjög
margir viðskiptavinir heimasíðuna www.hressing.is
til að panta vörur. Það er bæði einfalt og fljótlegt.“
Hressing býður viðskiptavinum sínum upp á
breiða línu af tækjum á borð við sjálfsala, kaffivél-
ar, djús- og safavélar, vatnsvélar og kæliskápa. Það
er svo í höndum þjónustudeildar Ölgerðarinnar að
sjá um fyrir-byggjandi viðhald, uppsetningu tækja
og áfyllingu.
Allir sjálfsalar sem Hressing setur upp eru ein-
faldir í notkun; hægt er að nota greiðslukort en einn-
ig er mögulegt að nota farsíma sem eru þá tengdir
við ákveðin debet- eða kreditkort. Nýjasta viðbótin í
þjónustu Hressingar er svo að tengja sjálfsalana við
starfsmannakort.
„Þá dregst úttektin af launum starfsmanns og
kemur fram á launaseðli viðkomandi,“ útskýrir Valur.
Í dag skipta um þúsund viðskiptavinir við Hress-
ingu í hverjum mánuði og segir Valur þar eiga í hlut
afar fjölbreyttan hóp vinnustaða af öllum stærðum.
„Við erum með eigin dreifingu á höfuðborgarsvæð-
inu, á Snæfellsnesi austur til Hvolsvallar og allt þar á
milli og frá Hrútafirði austur til Húsavíkur. Í tilviki
þeirra vinnustaða sem ekki eru innan þessa svæðis
þá notum við þriðja aðila til að koma vörunni tíman-
lega og örugglega á áfangastað. Það eiga allir að geta
nýtt sér þjónustu Hressingar.“
Allt á einum stað
Valur Ásberg Valsson, framkvæmdastjóri Hressingar, býður
heildarlausnir í snarli og drykk fyrir allar stærðir fyrirtækja.
MYND/GVA
Bættu um betur – Húsasmí›i / Bifélavirkjun / Bifrei›asmí›i /
Bílamálun / Múrarai›n er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví a›
meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví
hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur í
verkefninu ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar
er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn
flri›judaginn 6. september kl. 17.00 a› Skúlatúni 2, 6. hæ›,
105 Reykjavík.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt a›
senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hefur flú starfa› vi› húsasmí›i,
bifvélavirkjun, bifrei›asmí›i,
bílamálun e›a múrarai›n
og vilt ljúka námi í greinunum?
Sími söludeildar 412 8100
www.hressing.is
Allt fyrir fyrirtækið
Kaffivélar - Vatnsvélar - Kæliskápar
Safa og djúsvélar - Sjálfsalar
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SJÓNVARP
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.