Fréttablaðið - 31.08.2011, Qupperneq 26
KYNNING − AUGLÝSINGfyrirtækjaþjónusta MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 20116
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Aukin þjónusta Eimskips
um Norður-Atlantshaf
Styttra á milli ferða
– meiri flutningsgeta
Eimskip hefur styrkt leiðakerfi sitt á Norður-
Atlantshafi. Nýtt skip hefur bæst í flotann og eru nú
tvö skip í siglingum til Norður-Ameríku í stað eins
áður. Með þessu fjölgar ferðum og við bætast nýir
áfangastaðir, sem bætir þjónustu enn frekar við
viðskiptavini félagsins.
Norðurleið
Suðurleið
Austurleið
Ameríkuleið I
Ameríkuleið II
Leið samstarfsaðila
CTG leið Eimskips
FÍ
T
O
N
/
S
ÍA Nýrri þjónustustefnu Eim-skips var nýlega hleypt af stokkunum en hún var
unnin og mótuð af framlínufólki
hjá Eimskipi, að sögn Matthíasar
Matthíassonar framkvæmda-
stjóra sölu- og viðskiptaþjón-
ustu. Þjónustustefnan byggir því
á verðmætri reynslu þeirra sem
standa í stafni við þjónustu við-
skiptavina Eimskips. Markmið
hennar er að veita ávallt fram-
úrskarandi þjónustu af alúð og
ánægju. Þar skulu gildi Eim-
skips sem eru árangur, samstarf
og traust höfð að leiðarljósi.
„Innleiðing nýju þjónustu-
stefnunnar verður unnin jafnt
og þétt og við leggjum mikla
áherslu á að allir starfsmenn
fyrirtækisins taki þátt og fái
þannig sömu skilaboðin og
skilning á okkar markmiðum,“
segir Matthías.
Þjónusta viðskiptavini
sína af alúð og ánægju
Við tókum nýtt skip í þjón-ustu ok kar í sumar t il að styrkja siglingakerfi
félagsins á Norður-Atlantshafi
og auka þar með þjónustuna við
viðskiptavini okkar. Nýja skipið
tekur 700 gámaeiningar og fékk
nafnið Skógafoss,“ segir Matth-
ías Matthíasson, framkvæmda-
stjóri sölu- og viðskiptaþjónustu
Eimskips. Hann segir Skógafoss
vera í siglingum milli Íslands og
Norður-Ameríku, með viðkomu
í Everett í nágrenni Boston og á
Nýfundnalandi. „Þetta er hrein
viðbót við f lutningsgetu okkar á
þessari leið því áður var Reykja-
foss með áætlun á sömu leið og
heldur því áfram,“ segir Matth-
ías. En hvað er helst verið að
flytja á þessari leið? „Það er fisk-
ur að miklu leyti, sem er verið að
flytja bæði frá Nýfundnalandi til
Evrópu og frá Íslandi til Boston og
svæðisins þar í kring. Einnig eru
f lutningar vegna stóriðjufram-
kvæmda á Nýfundnalandi. Þar
er verið að byrja á stórri vatns-
aflsvirkjun og svo er þar námu-
vinnsla og stóriðja. Það er því
mikil eftirspurn eftir f lutnings-
getu milli Nýfundnalands og
Evrópu sem við náum að tengja
gegnum Ísland. Vatnsútflutning-
ur hefur líka verið að aukast vest-
ur um haf.“
Matthías vekur líka athygli á
Eport-þjónustuvefnum hjá Eim-
skip, sem hann segir byltingu í
bættri þjónustu við viðskiptavini
fyrirtæksins. Hann er beðinn að
lýsa því fyrirbæri nánar. „Eport
má líkja við heimabanka. Það
er síða sem viðskiptavinir okkar
fara inn á með aðgangsorði og
þar getur fólk skoðað allar upp-
lýsingar um sendingarnar sínar,
séð hvar þær eru staddar, fylgst
með bókunum og skoðað reikn-
ingsstöðuna. Síðan er mjög not-
endavæn og við höfum fengið
mjög jákvæð og góð viðbrögð frá
viðskiptavinum okkar með hana.
Enda fer þeim viðskiptavinum
sem nýta sér Eport ört fjölgandi.“
Skógafoss tvöfaldar flutningsgetu
Eimskips til og frá Norður-Ameríku
Mikil eftirspurn er eftir flutningsgetu milli Nýfundnalands og Evrópu vegna stóriðjuframkvæmda vestra, að sögn Matthíasar
Matthíassonar framkvæmdastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýtt skip sem heitir Skógafoss hefur bæst í skipaflota
Eimskips. Það er í förum milli Íslands og Norður-Ameríku
og með tilkomu þess tvöfaldast flutningsgeta Eimskips á
þeirri siglingaleið.
Einn af 49 starfsmönnum Eimskips á skrifstofu félagsins í Rotterdam.