Fréttablaðið - 31.08.2011, Side 42
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
HARALDUR FREYR GUÐMUNDSSON fyrirliði Keflavíkur, verður ekki meira með Keflvíkingum í Pepsi-deild karla á
þessu tímabili því hann hefur gert samning til áramóta við norska félagið Start. Víkurfréttir sögðu frá þessu í gærkvöldi og þar
kom einnig fram að knattspyrnudeild Keflavíkur hafi haldið krísufund um framtíð Willums Þórs Þórssonar þjálfara liðsins sem
fær samkvæmt heimildum vf.is að klára tímabilið en hættir síðan með liðið í haust.
ATC- 7,5t
Malbikskassi
-tilboðsverð
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- á lager - sala
- varahlutir
- þjónusta
Pepsi-deild kvenna
Þór/KA-Breiðablik 3-1
1-0 Arna Sif Ásgrímsdóttir (2.), 2-0 Lára
Einarsdóttir (47.), 2-1 Fanndís Friðriksdóttir, víti
(51.), 3-1 Arna Sif Ásgrímsdóttir (90.)
Grindavík-ÍBV 0-4
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (16.), 0-2 Danka
Podovac (36.), 0-3 Vesna Smiljkovic (39.), 0-4
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (58.)
Valur-Þróttur R. 5-0
1-0 Laufey Ólafsdóttir (15.), 2-0 Rakel Logadóttir
(16.), 3-0 Rakel (45.), 4-0 Mist Edvardsdóttir
(48.), 5-0 Málfríður Erna Sigurðardóttir (90.+3)
Stjarnan-Afturelding 3-0
1-0 Ásgerður Baldursdóttir, víti (48.), 2-0 Ashley
Bares (88.), 3-0 Inga Birna Friðjónsdóttir (90.+2)
Fylkir-KR 4-1
1-0 Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir (11.), 1-1
Berglind Bjarnadóttir (28.), 2-1 Anna Björg
Björnsdóttir (33.), 3-1 Lidija Stojkanovic (65.), 4-1
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (72.)
STAÐAN Í DEILDINNI:
Stjarnan 16 15 0 1 45-13 45
------------------------------------------------------
Valur 16 12 2 2 47-12 38
ÍBV 16 9 3 4 35-11 30
Fylkir 16 8 2 6 26-26 26
Þór/KA 16 8 2 6 28-29 26
Breiðablik 16 6 2 8 27-32 20
Afturelding 16 4 3 9 15-34 15
KR 16 3 4 9 17-29 13
------------------------------------------------------
Grindavík 16 3 1 12 17-44 10
Þróttur R. 16 1 3 12 16-43 6
1.deild kvenna
FH-Haukar 6-0 (14-1 samanlagt)
Bryndís Jóhannesdóttir 2, Sigrún Ella Einarsdóttir
2, Jóhanna Gústavsdóttir Berglind Arnardóttir.
Selfoss-Keflavík 6-1 (8-4 samanlagt)
Guðmunda Brynja Ólad. 2, Guðrún Arnarsdóttir,
Anna María Friðgeirsd., Katrín Ýr Friðgeirsd., Eva
Lind Elíasd.r -Agnes Helgadóttir.
FH og Selfoss komin upp í Pepsi-deild kvenna.
Upplýsingar um markaskorara eru að hluta til
fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.
ÚRSLIT Í GÆR
HANDBOLTI Aron Pálmarsson skor-
aði sigurmarkið í gær þegar Kiel
vann 24-23 sigur á Hamburg í
árlegum leik meistaranna og bik-
armeistaranna. Aron skoraði þrjú
mörk í leiknum. Þetta er sjötti
sigur Kiel í Ofurbikarnum og þar
af í annað skiptið undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar. -óój
Kiel vann Ofurbikarinn:
Aron hetjan
FÓTBOLTI Stjarnan tryggði sér
fyrsta Íslandsmeistaratit i l
félagsins í meistaraf lokki
þegar kvennalið félagsins lagði
Aftureldingu 3-0 á heimavelli
sínum í Garðabæ.
Þrátt fyrir að hafa aldrei unnið
titilinn áður tókst Stjörnunni að
stilla spennustigið vel og hóf liðið
leikinn af krafti og fékk nokkur
fín færi snemma leiks. Þegar hvert
færið á fætur öðru fór forgörðum
dró af liðinu en Stjarnan fékk
óskabyrjun í seinni hálfleik.
„Við spiluðum við lið með mikið
sjálfstraust og markvörðinn í
banastuði. Þetta var erfið fæðing
og við nýttum færin illa í kvöld,“
sagði Þorlákur Árnason þjálfari
Stjörnunnar í leikslok.
Eftir að hafa komist yfir í upp-
hafi seinni hálfleiks var aldrei
spurning hvoru megin sigurinn
myndi lenda þó Stjarnan hafi ekki
gert út um leikinn fyrr en tvær
mínútur voru til leiksloka.
„Seinni hálfleikur var góður.
Við héldum áfram og fengum
fullt af færum en þegar annað
markið kemur þá var þetta búið.
Mér fannst við spila vel í seinni
hálfleik. Við létum stress ekki
hafa áhrif á okkur, ég er mjög
ánæður með það,“ sagði Þorlákur.
Stjarnan hefur leikið liða best í
sumar og er vel að titlinum komin
enda með sjö stiga forystu á Val
þegar enn eru tvær umferðir eftir.
Liðið hefur leikið liða best í sumar
og unnið 15 af 16 leikjum sínum en
Þorlákur var ekki í vafa um hvað
skóp titil Stjörnunnar.
„Það er fyrst og fremst hugar-
far leikmanna. Markmiðssetning-
in hjá okkur tókst, við stefndum á
þetta en fyrst og fremst hugarfar
leikmanna gerir það að verkum
að við unnum þennan titil,“ sagði
Þorlákur sem gerði Stjörnuliðið að
meisturum á sínu fyrsta ári.
-gmi
STÓÐUST STÓRA PRÓFIÐ
Stjarnan tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins með því að vinna 3-0
sigur á Aftureldingu í gær fyrir framan tæplega 800 áhorfendur á heimavelli
sínum. Stjarnan endaði fimm ára einokun Valskvenna á Íslandsbikarnum.
FYRSTI TITILLINN Í HÚSI Stjörnukonur með fyrirliðann Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur í
fararbroddi fagna hér Íslandsmeistaratitlinum í leikslok í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN