Fréttablaðið - 09.09.2011, Blaðsíða 6
9. september 2011 FÖSTUDAGUR6
HEF FLUTT MIG UM SET
Býð alla gamla og nýja viðskiptavini
velkomna
Gerður Sævarsdóttir hársnyrtimeistari
GREIÐAN
Háaleitisbraut 58-60
sími 5813090 / 8621323
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Hreinlætisvörur
NAPOLI hitastýrt sturtusett
26.900,-
SAFIR sturtusett
2.595,-
Stálvaskur ø 38 cm
5.990,-
11.900,-
NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu
NAPOLI hitastýrð blöndunartæki
fyrir baðkar 10.995,-
MTXE sturtuhaus
2.690,-
Skolvaskur plast 52,5x37,6 cm
9.900,-
Stálvaskur 43x76 cm
6.990,-
VEMAR River blöndunartæki
5.900,-
VEMAR Rain blöndunartæki
5.990,-
REYKJAVÍK Framkvæmdum við
Norðlingaskóla verður flýtt og
hefur borgin ákveðið að veita 180
milljónum umfram það sem áætl-
að hafði verið til verksins.
Jón Gnarr borgarstjóri lagði
þetta fram á borgarráðsfundi í
gær og var tillagan samþykkt.
Þar er lagt til að framkvæmdum
verði flýtt þannig að allt skóla-
húsnæðið verði komið í notkun og
skólalóð tilbúin á fyrri hluta árs
2012. Alls verður 1.100 milljónum
króna varið til framkvæmda við
Norðlingaskóla á árinu 2011. - sv
Borgin flýtir framkvæmdum:
Leggur fram
180 milljónir
ALÞINGI Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs, fékk ekki að bera af sér sakir á
Alþingi í gær. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, forseti Alþing-
is, hafði áminnt þingmenn um að gæta orða sinna, eftir að
Þráinn hafði kallað úr sal „Klúður á heimsmælikvarða!“
Þar vísaði hann til málefna Kvikmyndaskóla Íslands.
Fjölmargir þingmenn töldu brotið á rétti Þráins, en for-
seti taldi ummæli sín eiga við þingmenn alla, ekki Þráin
einan. Orðaskipti Ragnheiðar og Þráins má sjá hér að
neðan:
ÞB: ég bið um orðið til að bera af mér sakir.
RR: Forseti telur ekki ástæðu til að veita þingmann-
inum færi á að bera af sér sakir.
ÞB: Ég mótmæli þessari óstjórn forseta.
RR: Háttvirtur þingmaður getur gert það. - kóp
Deilt um fundarstjórn forseta Alþingis:
Þráinn vildi bera af sér sakir
ÞRÁINN
BERTELSSON
BANDARÍKIN, AP Atvinnuleysið
í Bandaríkjunum var helsta
umræðuefnið í sjónvarps-
kappræðum átta repúblikana, sem
allir sækjast eftir að verða for-
setaefni flokksins í kosningunum
haustið 2012.
Þeir Rick Perry, sem er ríkis-
stjóri í Texas, og Mitt Romney,
fyrrverandi ríkisstjóri í Massa-
chusetts, stærðu sig báðir af afrek-
um sínum við að skapa atvinnu.
Þeir þóttu koma best út úr
kappræðunum, enda áttu hinir
þátttakendurnir ekki auðvelt
með að vísa í reynslu sína af
atvinnumálum. Sérstaklega virt-
ist Michele Bachmann, fulltrúi
Teboðshreyfingarinnar, eiga erf-
itt með að fóta sig á þessu sviði og
þótti ekki koma sérlega vel út úr
þættinum.
Romney lét það ekki slá sig út
af laginu að Perry hefur komið
mun betur út í skoðanakönnunum
undan farið. Romney varði tíma
sínum að mestu í að gagnrýna Bar-
ack Obama forseta, frekar en að
gagnrýna mótherja sína úr Repú-
blikanaflokknum. - gb
Átta repúblikanar sækjast eftir útnefningu sem forsetaefni flokksins:
Tókust á um atvinnusköpun
PÚSSAR NEFIÐ Á PERRY Þegar hlé var
gert á sjónvarpskappræðunum var
tækifærið notað til að flikka aðeins upp
á þátttakendur. NORDICPHOTOS/AFP
RÚSSLAND, AP „Það þarf að fækka flugfélögum veru-
lega, og það sem fyrst,“ sagði Dmitri Medvedev
Rússlandsforseti, nýkominn frá slysstaðnum við
Volgubakka þar sem farþegaflugvél fórst á mið-
vikudag.
Ekki er þó alveg ljóst hvernig hann hyggst ná því
markmiði. Í Rússlandi eru nú starfrækt um 130
flugfélög, en 85 prósent allra farþega ferðast með
vélum tíu þessara flugfélaga.
Medvedev hefur áður hvatt til endurnýjunar flug-
flotans og kynnt áætlanir um að gamlar vélar, sem
framleiddar voru á tímum Sovétríkjanna, verði
teknar úr notkun frá og með næsta ári.
Alls fórust 43 með vélinni sem hrapaði á miðviku-
dag, þar á meðal 36 manna rússneskt íshokkílið sem
Rússar hafa haft í miklum metum, ásamt nokkrum
erlendum íshokkístjörnum. Tveir menn komust af
en eru illa slasaðir.
Slysið beindi enn á ný athyglinni að lélegum flug-
flota rússneskra flugfélaga, lélegu opinberu eftirliti
með flugmálum, lélegri þjálfun flugmanna og
íþyngjandi sparnaðarkröfum, sem hvarvetna draga
úr gæðum. gudsteinn@frettabladid.is
Flugslysið í Rússlandi beinir athyglinni að lélegu flugöryggi þar í landi:
Medvedev vill færri flugfélög
MEDVEDEV Á SLYSSTAÐ Forseti Rússlands segir róttækar
breytingar nauðsynlegar. NORDICPHOTOS/AFP
Býst þú við að Bjarni Benedikts-
son fái mótframboð í formanns-
kjöri Sjálfstæðisflokksins?
Já 80,2 %
Nei 19,8 %
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgistu með deilum um
Kvikmyndaskóla Íslands?
Segðu skoðun þína á visir.is
KÖNNUN Innan við fjórðungur
stuðningsmanna Vinstri grænna
vilja að kínverski kaupsýslu-
maðurinn Huang Nubo fái að
kaupa Grímsstaði á Fjöllum, sam-
kvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2 sem unnin
var í gærkvöldi. Þetta er áberandi
lægra hlutfall en meðal stuðn-
ingsmanna annarra flokka.
Alls sagðist 59,1 prósent þeirra
sem afstöðu tóku í könnuninni
mjög eða frekar hlynnt jarða-
kaupunum. Um 22,7 prósent sögð-
ust hlutlaus og 18,2 prósent sögð-
ust mjög eða frekar andvíg.
Bæði innanríkisráðherra og
kínversk stjórnvöld þurfa að sam-
þykkja kaupin, eigi þau að ganga
eftir.
Þegar skoðuð er afstaða fólks
eftir því hvaða flokk það seg-
ist myndi kjósa, yrði gengið til
þingkosninga nú, kemur í ljós að
stuðningur við landakaupin er
áberandi minnstur meðal stuðn-
ingsmanna Vinstri grænna.
Um 23,5 prósent þeirra sem
segjast myndu kjósa flokkinn
yrði gengið til kosninga nú segj-
ast mjög eða frekar hlynnt kaup-
unum og um 26,5 prósent segjast
hlutlaus, en 50 prósent segjast
mjög eða frekar andvíg því að
kaupin nái fram að ganga.
Stuðningur við landakaupin er
mun meiri meðal stuðningsmanna
hins stjórnarflokksins. Alls sögð-
ust 65,6 prósent stuðningsmanna
Samfylkingarinnar hlynnt kaup-
unum, 14,1 prósent sagðist hlut-
laust og 20,3 prósent á móti.
Af stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins sagðist 65,1
prósent mjög eða frekar hlynnt
kaupunum, 23,4 prósent sögðust
hlutlaus en 11,4 prósent mjög eða
frekar andvíg.
Stuðningur við jarðakaupin
reyndist mestur meðal þeirra
sem myndu kjósa Framsóknar-
flokkinn. Úr þeim hópi sögðust
74,4 prósent hlynnt landakaupum
Nubo, 9,3 prósent sögðust hlutlaus
en 16,3 prósent andvíg kaupunum.
Hringt var í 800 manns
fimmtudaginn 8. september. Þátt-
takendur voru valdir með slembi-
úrtaki úr þjóðskrá.
Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri.
Spurt var: Hversu hlynnt(ur)
eða andvíg(ur) ertu því að kín-
verski kaupsýslumaðurinn Huang
Nubo fái að kaupa land á Gríms-
stöðum á Fjöllum? Alls tóku 90,9
prósent afstöðu til spurningarinn-
ar. brjann@frettabladid.is
Kjósendur VG helst á
móti kaupum Nubo
Stuðningsmenn Vinstri grænna skera sig frá öðrum með almennri andstöðu
við að Huang Nubo fái að kaupa Grímsstaði samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meirihluti landsmanna vill heimila jarðakaupin.
Stuðningur við jarðakaup Huang Nubo
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að kínverski kaupsýslumaðurinn Huang
Nubo fái að kaupa land á Grímsstöðum á fjöllum?
2,3%
32,6% 41,9% 9,3% 14,0%
7,4%
31,4% 33,7% 23,4% 4,0%
10,9%34,4% 31,3% 14,1% 9,4%
20,6%11,8% 11,8% 26,5% 29,4%
Mjög hlynnt(ur)
Frekar hlynnt(ur)
Hlutlaus
Frekar andvíg(ur)
Mjög andvíg(ur)
UMDEILDUR Meirihluti landsmanna er hlynntur því að Huang Nubo fái að kaupa
land á Íslandi en stuðningsmenn Vinstri grænna eru andvígari kaupunum en
stuðnings menn annarra flokka.
KJÖRKASSINN