Fréttablaðið - 09.09.2011, Side 24
St. 36-41
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 37-41
St. 36-41
Verð: 6.575
Verð: 6.595
Verð: 6.295
Verð: 5.895
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Haustvörurnar komnar
25% kynningarafsláttur af öllum vörum
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is
sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
■ Eftir langa vinnuviku er notalegt
að láta stjana við sig og geta sleppt
eldamennskunni heima. Pantaðu borð
á veitingastað sem þú hefur aldrei
prófað áður og helst þar sem framandi
bragðupplifunum er lofað á matseðli.
■ Taktu kvöldrölt um gömlu Reykjavík
og sestu inn á kaffihús, bara til að
skoða fólkið sem lifir um leið og þú.
Þú gætir rekist á gamlan vin og átt
óvænta fagnaðarfundi.
■ Föstudagskvöld eru frábær til bíó-
ferða, ef þú ert sjaldséður
bíógestur og finnst tilbreyt-
ing í að setjast niður yfir
góðri mynd, söltu poppi og
kaldri kók.
■ Ertu með rokkstjörnudraum
í maganum en skortir aðdá-
endur við fótskör þína? Láttu
drauminn rætast á fjörugum
karókíbar og skildu feimnina
eftir heima.
■ Ísbíltúr er skemmtileg byrjun á
helgi. Prófaðu einn af nýju ísbör-
unum þar sem maður getur sjálfur
hlaðið ávöxtum, hnetum og sælgæti í
ísskálina. Hangsaðu lengi yfir ísnum,
því vekjaraklukkan þegir í fyrramálið.
■ Til að hvíla lúin bein eftir
annasama viku er fátt yndislegra
en að láta renna í heitt
freyðibað. Setja tónlist á
fóninn, hella guðaveigum
í staup, finna sér heillandi
lesningu og laumast ofan í
sápukúlufjöld meðan
áhyggjur hvunn-
dagsins líða hjá.
■ Bjóddu
góðum vinum
heim í spil,
hvort sem fyrir valinu
verður gamli spilastokk-
urinn, Scrabble, Matador
eða nýjustu borðspilin í
bænum. Spilið póker upp á
freistandi súkkulaðimola, og fáðu alla
að koma með eitthvað lostætt yfir
spilamennskunni, eins og ís, snakk,
ávexti eða osta.
■ Ertu í dansfíling en langar ekki á
ball? Hóaðu í hressa vini á settlegan
heimadansleik eða vangaðu við ástina
undir uppáhalds ballöð-
unum ykkar. Ástalífið
fær allt annan blæ
þegar slökkt er á
sjónvarpinu þótt
það sé freistandi
afslöppun á föstu-
dagskvöldi.
■ Föstudagskvöld
er góður tími til
að sameinast yfir
áhugamáli. Það
er rómantískt að baka
saman súkkulaðibitakökur,
líma saman flugvélamódel eða púsla
saman.
thordis@frettabladid.is
Kom fagnandi föstudagur
Þótt landsmenn til sjávar og sveita striti margir um helgar eru vikulokin flestum kærkomin. Föstudagar
hafa yfir sér óræða stemningu og tilhlökkun fyrir slökun, friði, samveru, draumum, skemmtan og þrám.
Rómantískt, ekki satt? En fyrst og fremst
umvefjandi og endurnærandi dekur.
Allir verðskulda vott af frægð og frama. Fáir staðir verðlauna fólk eins og karókíbarir,
auk þess sem útrás fyrir streitu og þreytu er góð með söng á sviði.
Bílaumboðið Askja býður til jeppasýningar á morgun. Glæsilegir Mercedes Benz-jeppar verða til
sýnis, til dæmis ML-Class, GL-Class og GLK-sportjeppinn. Þá verður til sýnis G-Lander jeppi og auk
þess breyttur Mercedes Benz Sprinter-ferðabíll með 35 tommu dekkjum. Jeppasýningin verður
opin milli klukkan 12 og 16. Boðið verður upp á reynsluakstur, kaffi og kleinur.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Orðið helgi merkir
heilagleiki eða helgur
dagur. Sunnudagur
var áður einn þeirra
daga sem halda skyldi
heilagan. Í tilskipun frá
1855 segir að helgi
sunnudagsins byrji
stundu fyrir miðnætti
kvöldið áður. Það er
yngri notkun að helgi
nái yfir laugardaginn.
Heimild: www.
visindavefur.hi.is