Faxi - 01.06.1962, Blaðsíða 5
Gerður Sigurðardóttir, kennt handa-
vinnu stúlkna.
Erlingur Jónsson, kennt handavinnu
drengja.
Kristín Þórðardóttir, kennt leikfimi
stúlkna.
Höskuldur Goði Karlsson, kennt leik-
fimi drengja.
Þau fjögur síðasttöldu hafa þó kennt við
skólann að hálfu á móti barnaskólanum,
og hafa því hér að framan verið talin sem
tveir fastakennarar.
Þá má ekki gleyma Pétri Lárussyni, sem
verið hefur húsvörður skólans s. 1. 8 ár, og
unnið starf sitt með sæmd og prýði, og
með hressileik sínum og glaðværð stytt
bæði kennurum og nemendum margar
stundirnar.
Prófdómendur við skólann hafa oftast
verið þau: Björn Jónsson, sóknarprestur,
Guðmundur Guðmundsson, sóknarprest-
ur, og fröken Jóna Guðjónsdóttir.
Fræðsluráðið hefur ávallt sýnt skólanum
og starfsliði hans velvild og skilning og
reynt eftir megni að skapa skólanum sem
bezt starfsskilyrði.
Eg get þó ekki stillt mig um að geta
eins manns, sem ég tel, að öðrum ólöstuð-
um, hafa sýnt skólanum einstakan áhuga
og ræktarsemi, og sem reynzt hefur okkur
kennurunum mikil hjálparhella í brauð-
striti okkar, en það er Guðmundur J.
Guðmundsson, sparisjóðsstjóri. Eg hef
stundum átt við hann viðræður um skóla-
mál, og víðsýni hans í þeim málum og sú
bjargfasta skoðun hans, að æska landsins
sé sú okkar dýrmætasta eign, sem okkur
beri öðru fremur að hlúa að, hefur fært
mér sanninn um mikilvægi kennarastarfs-
ins og veitt meiri styrk til að reynast trúr
Bjami F. Halldórsson.
Skrafað um skók
Starfsemi Skákfélags Keflavíkur var s. 1.
vetur mjög svipuð og undanfarið ár. Fé-
lagið stóð fyrir skákþingum Suðurnesja og
Keflavíkur, en í sambandi við þau voru
einnig haldin hraðskákmót. Teflt var við
skákdeild Hreyfils og síðast en ekki sízt,
sá SK um „Sýslubikarkeppnina“ að þessu
sinni, en þar var keppt um bikar, sem
Olafur Thors gaf á sínum tíma. Nokkur
deyfð virðist hafa færzt yfir hinar eldri og
reyndari kempur félagsins og veldur ýmis-
legt, sem síðar verður að vikið. Aftur á
móti hefur þátttaka hinna yngri meðlima
félagsins aldrei verið meiri en einmitt nú,
svo skákfélagið ætti ekki að vera á flæði-
skeri statt í framtíðinni, ef heldur sem
horfir með þá.
hugsjón þess, þótt mér hafi stundum þótt
syrta í álinn.
Eg hef reynt í þessari sundurlausu grein
minni að veita fólki innsýn í það starf og
þá þróun, sem orðið hefur á fyrstu 10 ár-
um skólans. Mörgu hefur að vísu verið
sleppt, enda geta menn fengið nánari upp-
lýsingar um ýmislegt varðandi skólann í
skólaskýrslum hans. Eitt vil ég þó taka
fram enn. Það hefur verið siður gagnfræð-
inga þeirra, sem útskrifast, að færa skól-
anum gjöf, um leið og þau kveðja skól-
ann. Ennfremur hefur kennarafélag skól-
ans nú hin síðari ár veitt nemendum verð-
laun á vori hverju. Verður nánar getið um
það í skólaslitum, en þó vil ég vekja at-
hygli fólks á því, að þar eru meðal annars
veitt verðlaun fyrir stundvísi og skólasókn,
prúða framkomu og ástundun við nám og
félagsstörf.
Einhvern tíma las ég það, að sá, sem
drykki vatn úr ánni Níl, myndi ávallt
hverfa þangað aftur. Mér kemur þetta í
hug, þegar ég rifja upp starf mitt við skól-
ann. I þessu starfi mínu hafa skipzt á skin
og skúrir eins og gengur, en þó finnst mér
sem ég hafi tengzt skólanum þeim bönd-
um, sem erfitt muni að losa.
Osk mín til skólans á þessum tímamót-
um hans er sú, að honum og starfsliði hans
verði sköpuð þau starfsskilyrði, að þau
verði þess ávallt megnug að veita nemend-
um þá beztu fræðslu, sem völ er á, og gera
þá að góðum og nýtum þegnum þjóðfé-
lagsins.
Bjarni F. Halldórsson.
Helgi Ólafsson, hraðskákmeistari Suðurnesja.
En svo rætt sé lítillega um einstök mót
vetrarins, þá var Skákmót Suðurnesja
haldið um síðastliðin áramót og fór það
fram í UMFK-húsinu. Að þessu sinni voru
þátttakendur aðeins frá SK. Sandgerðing-
ar, sem ávallt hafa átt keppendur þar und-
anfarin ár, voru ekki með og gerði það
mótið svipminna en ella. Ef dæma ætti
eftir fjölda keppenda í meistaraflokki, er
ekki að sjá, að titillinn „Skákmeistari Suð-
urnesja“ þyki ákaflega eftirsóknarverður
hjá iðkendum þeirrar göfugu listar hér
syðra, því aðeins fjórir menn héðan reyndu
með sér, hver hnossið hlyti, en það voru
þeir Hörður Jónsson, Páll G. Jónsson,
Borgþór H. Jónsson og Helgi Olafsson. —
Auk þeirra tefldi svo sem gestur mótsins
Lárus Johnsen frá Reykjavík, fyrrverandi
Islandsmeistari í skák. Af þeim, sem heima
sátu, var Ragnars Karlssonar, sigurvegara
frá fyrra ári, helzt saknað, því að það hefði
óneitanlega gefið þessu annars daufa móti
örlítið líflegri blæ, ef hann hefði reynt að
verja titil sinn og falla þá með sæmd, í stað
þess að eftirláta hann bardagalaust. Sigur-
vegari þessa móts varð, sem og vænta
mátti, gesturinn, Lárus Johnsen, og sýndi
hann mikla yfirburði, hlaut lx/i vinning af
8 mögulegum (tefld var tvöföld umferð),
en næsti keppandi var með 4 vinninga.
Lárus tefldi nokkuð skemmtilega, byrjaði
skákir sínar allt að því kæruleysislega aði
manni sýndist og jafnvel stundum svo, að
andstæðingar hans voru farnir að halda,
FAXI-83