Faxi - 01.06.1962, Blaðsíða 21
Aflakóngar
Suournesfa
1 síðasta tölublaði Faxa — maíblaði —
er birt lokaaflaskýrsla vertíðarbáta frá
Keflavík og Sandgerði.
Hér birtast myndir af aflakóngum Suð-
urnesja. Venja er að geta ævi- og starfs-
ferils nýrra aflakónga hér í blaðinu. En
hér þarf þess ekki með, þar sem aflakóng-
ar Suðurnesja í ár eru allt þekktir dugnað-
armenn og sjósóknarar og hefur Faxi áður
birt myndir af þeim, sem sigursælum afla-
kóngum. Til dæmis er aflakóngur Grinda-
víkur hinn sami og í fyrra. Er það Þórar-
inn Olafssson, skipstjóri á mb. Þorbirni
SK 540, en að þessu sinni fiskaði hann
940 tonn og 540 kg. í 73 róðrum. Eigandi
mb. Þorbjörns er Hraðfrystihús Þórkötlu-
staða h.f.. — Þá er aflakóngur í Sandgerði
nú Þórhallur Gíslason, einnig sá sami og
í fyrra. Þá var hann með mb. Hamar, en
er nú skipstjóri á mb. Muninn. Aflamagn
bátsins á vertíðinni er 896.4 tonn í 83 róðr-
um. — I Keflavík má segja að aflakóngar
séu tveir, þó annar sé að vísu aðeins hærri
að kílóatölu, svo líkt er um veiðiskap og
aflahlut mb. Fram frá Hafnarfirði, skip-
stjóri Eyjólfur Kristinsson, og mb. Hilmis
í Keflavík, skipstjóri Einar H. Guðmunds-
son. Mb. Fram fiskaði 790,3 tonn í 73 róðr-
um, en Hilmir fékk 788,8 tonn í 67 róðrum.
Birtast hér myndir af skipstjórunum, sem
báðir eru kunnir aflamenn og hafa áður
verið aflakóngar Suðurnesja.
GARÐSLÁTTUVÉLAR
GINGE og FOLBATE
í stærðum 14" og 16"
Mjög hagkvæmt verð.
Kaupfélag Suðurnesja
Járn- og skipavörudeild.
Einar H. Guðmundsson, aflakóngur Keflavíkur
Frá Ferðafélaginu
Fyrsta ferð félagsins er ákveðin í
Þjórsárdal 21. júlí. Þáutaka tilkynn-
ist Guðmundi Jóhannessyni eða
Hilmari Jónssyni.
Atvinna
Ungur maður óskast til
náms í kjötiðnaði.
Upplýsingar veitir
Birgir Scheving,
forstöðumaður.
Kaupfélag
Suðurnesja
Kjötvinnslan
Þórarinn Ólafsson
aflakóngur Grindavíkur.
Eyjólfur Kristinsson
aflakóngur Keflavíkur.
Þórhallur Gíslason
aflakóngur Sandgerðis.
/
FAXI — 105