Faxi - 01.06.1962, Blaðsíða 13
Gagnfræðaskóla Keflavíkur
nú varð það, sem áður var kvíðvænleg
raun — að fylgja slóðinni — að skemmti-
legum leik. Þarna hvarf hún undir skafl.
Nú var um að gera að ganga beint til þess
að hitta á hvar hún kæmi út undan hon-
um aftur. Jú, það tókst, þarna var hún.
Síðan hvarf hún, kom á ný í ljós, hvarf og
kom. Það var því líkast sem hún væri í
feluleik. Eða var hún táknmynd þess ör-
lagagarns, sem nornirnar spinna? Var hún
nálþráður einhverrar ógnarstórrar handar,
sem þræddur var í gegnum mjallarbreið-
una — þráðurinn, sem líf eins lítils drengs
hafði leikið á — sem líf hans lék á, að
heiman og heim? Veikur og haldlítill var
hætt við hann væri þráðurinn sá.
Gott var að koma heim. Ráðskonan
hennar mömmu fagnaði mér vel — inni-
lega vel. Hafði hún máske verið svolítið
hrædd um mig? Hafði ég þrátt fyrir allt
verið í lífshættu? Ég gaf henni gætur, svo
ckkert bar á. Annars átti sú kona lag á
því, að fagna þeim, sem umönnunar þurftu
á þann hátt að því varð ekki gleymt. En
það er önnur saga. Þegar ég hafði matazt
og klæðzt í þurr föt var ég líka hvíldur og
glaður. Ég gekk út og gáði til veðurs. Það
var bjart og gott. Leikbróðir minn á hinu
búinu var að koma úr fjárhúsunum. Ég
gekk í veg fyrir hann. Hann mátti svo
sem spyrja mig frétta, ef hann vildi.
„Fórstu á dorg“ spurði hann um leið og
hann stappaði af sér snjóinn.
„Já.“
„Varstu nokkuð var?“
„Já.“ Ég stakk höndunum í buxnavas-
ana.
„Nú, veiddir þú þá?“
„Það var hvorki meira né minna en
mokandi tekja á vatninu í dag, skal ég
segja þér. Þær rifu í mig alveg vitlausar.
Það gerði bara það ofláta veður, að ég
hélzt ekki við.“ Svo spýtti ég um tönn
langt út í skafl, um leið og ég renndi
augunum ósjálfrátt upp eftir nýrri skíða-
slóð niður Kvíahólinn.
En vestur á heiðinni lágu nokkur frosin
tár og báru þögult og ósýnilegt vitni þeirri
sögu, sem ekki var sögð úr þessari veiði-
ferð. Ef til vill hefur líka lítill drengur,
þegar hann hafði lagt höfuðið á koddann
um kvöldið og allt var orðið kyrrt og
hljótt, rennt klökkum og þakklátum huga
til þess, sem lét þokuna birta, hríðina
slota og slóðina haldast, svo eftir henni
yrði aftur ratað heim.
var slitið í kirkjunni í Keflavík fimmtu-
daginn 31. maí kl. 2. Athöfnin hófst með því,
að sóknarpresturinn, séra Björn Jónsson, las
ritningargrein og mælti síðan nokkur orð og
flutti bæn. Þá flutti skólastjórinn, Rögnvaldur
Sæmundsson, ræðu og afhenti prófskírteini.
í skólann voru skráðir 270 nemendur.
í 1. bekk 99, 2. bekk 74, 3. bekk 52, 4. bekk
45.
Undir próf í 1. bekk gengu 97.
Hæstu einkunnir hlutu:
Guðbjörg Zakaríasdóttir, 1. A. 8.9G.
Sæmundur Rögnvaldsson, 1. A 8,83.
Hörður Ragnarsson og Ingunn Jakobsdóttir
8.63.
Undir unglingapróf gengu 73.
Hæstu einkunnir hlutu:
Runólfur Skaftason 8.65.
Sigrún Ragnarsdóttir 8.58.
Guðrún Sigurðardóttir og Guðrún Einars-
dóttir 7.69.
I 3. bekk gengu 37 undir venjulegt 3ja
bekkjar próf, en 14 undir landspróf.
Hæstu einkunnir hlutu:
Þuríður Sölvadóttir 8.27.
Guðmundur Emilsson 7,85.
Þorgerður Aradóttir 7.27.
Urslit í landsprófi eru ekki kunn.
I 4. bekk gengu 43 undir gagnfræðapróf.
Hæstu einkunn hlutu:
Margaret Anne Weidler 8.61.
Reynir Sveinsson 8.50.
Guðný Jónsdóttir 8.28.
Margaret er skiptinemandi á vegum þjóð-
kirkjunnar.
Þessir nemendur hlutu bókaverðlaun:
Verðlaun kennarafélagsins, hæstu einkunn
á unglingaprófi, Runólfur Skaftason.
Fyrir gott starf í þágu félagsmála skólans:
Páll Valur Bjarnason, 3 L.
Stefán Bergmann Matthíasson, 3 L.
Þorgerður Guðmundsdóttir, 4 x.
Fyrir frábæra stundvísi og prúða fram-
komu:
Sigríður Guðbergsdóttir,
Rosmary Sigurðardóttir.
Fyrir ástundun við nám og ágætan náms-
árangur á gagnfræðaprófi: Margaret Anne
Weidler.
Skrifstofu- og verzlunarmannafélagið veitti
verðlaun fyrir frábæran námsárangur í vél-
ritun, bókhaldi og reikningi, Margaret Weidl-
er hlaut verðlaunin.
Félagið hefur ákveðið að veita verðlaun
framvegis.
Séra Björn veitti verðlaun fyrir ágætis-
einkunn í kristinfræði og íslenzku í 1. bekk,
er Bjarnfríður Jónsdóttir hlaut.
Einnig færði hann Margarít Weidler Passí-
sálmana að gjöf frá söfnuðinum í Keflavík.
Hjörtur Jónsson veitti ein verðlaun fyrir
framsækni í námi og prúða framkomu, þau
hlaut Guðmundur Emilsson.
Oskar Jónsson flutti ávarp og veitti Ólafi
Hrafni Kjartanssyni verðlaun fyrir hæstu
einkunn í eðlisfræði.
Nemendur í 4 bekk gáfu Margaret mynda-
bók af Islandi með nöfnum sínum til minn-
ingar um þau.
Gagnfræðingar færðu skólanum málverk
að gjöf.
KAUPUM FISK
af dragnótar- og humarbátum.
Selj
um is.
Hraðfrystihús Keflavíkur h.f.
F A XI — 97
L