Faxi - 01.06.1962, Blaðsíða 25
ánægjulegt, að það skildi einmitt verða
Keflvíkingar, sem það gerðu.
Þá hefur Davíð Valgarðsson, ÍBK, sett
mikinn svip á sundmótin í Reykjavík í
vetur. Hefur hann vakið á sér mikla at-
hygli sem einn efnilegasti sundmaður yngri
kynslóðarinnar, en Davíð er aðeins 14 ára
gamall.
Davíð setti í vetur 4 Islandsmet í ungl-
ingasundum.
I 50 m. flugsundi synti hann á 30,8 sek.
(Metið var 32,8) sek.).
Í 400 m. skriðsundi synti hann á 5.03,7
mín. (Metið var 5.09,2 m.).
I 1000 metra skriðsundi synti hann á
14.19,7 mín. (Metið var 14.26,5 m.).
I 1500 metra frjáls aðferð synti hann á
21.45,2 mín. (Metið var 22.20,3 m.).
Guðmundur Sigurðsson, ÍBK hefur ver-
ið meðal beztu skriðsundmanna landsins
síðustu árin. A landsmóti ungmennafélag-
anna, er haldið var s. 1. sumar að Laugum,
var Guðmundur stigahæsti sundmaður
mótsins og hlaut fyrir það afrek vandaðan
verðlaunagrip.
Á myndinni hér að ofan er Guðmundur
að stinga sér til sunds á landsmóti ung-
mennafélaganna að Laugum.
Keflvíkingar til Færeyja í sumar.
Knattspyrnumenn ÍBK fara til Færeyja
í sumar. Farið verður með Drottningunni
17. ágóst og komið heim aftur með sama
skipi 29. sama mánaðar. Ferðin er farin
á vegum B-36 í Þórshöfn, sem kom til
Keflavíkur fyrir tveim árum. Arið 1957
fór knattspyrnuflokkur frá Keflavík til
Færeyja og var sú ferð í alla staði hin
ánægjulegasta.
Sjóslysasjóðurinn.
I vetur hélt Ungmennafélag Keflavíkur
Bingóskemmtanir til ágóða fyrir sjóslysa-
söfnunina. Tekjur urðu kr. 6.600,00, sem
félagið hefur afhent skrifstofu biskups, er
veitir söfnuninni forstöðu.
Drengjahlaup UMFK
Hið árlega drengjahlaup Ungmennafé-
lags Keflavíkur fór fram á skírdag. —
Hlaupaleiðin var sú sama og áður eða ná-
lægt 2 km.
Þrír fyrstu menn í hlaupinu urðu:
1. Kjartan Sigtryggsson UMFK 6.27,0
mín.
2. Pétur Sigurðsson, UMFK 6.29,6 mín.
3. Einar Guðmundsson, UMFK 7.22,0
mín.
Sveitakeppnina vann UMFK með 6
stigum.
Sigurvegari í hlaupinu í var var einnig
Kjartan Sigtryggsson.
Keppt var um verðlaunagripi, sem hinir
gamalkunnu hlauparar, Margeir Sigur-
björnsson og Halldór Pálsson gáfu.
Aðalfundur UFK.
Aðalfundur UMFK var haldinn 6. maí
s. 1. A fundinum flutti form., Þórhallur
Guðjónsson, skýrslu stjórnarinnar. Starf-
semi félagsins var mikil á árinu, en hæst
Fyrsta bæjakeppni í knattspyrnu milli
Keflvíkinga og Reykvíkinga fór fram á
Melavellinum í Reykjavík 16. maí s. 1.
Með þessari keppni má segja að hefjist
þáttaskil í knattpyrnunni í Keflavík, því
aðeins knattspyrnulið, sem sýnt hafa vel
frambærilega knattspyrnu og eru talin
sterk, eru valin til að heyja bæjakeppni
við úrvalslið Reykjavíkur. Má í því sam-
bandi geta um liina árlegu og skemmti-
legu bæjakeppni Akurnesinga og Reykvík-
inga, sem ávallt er beðið með mikilli eftir-
væntingu.
Vonandi verður þetta upphaf að áfram-
bar hinn glæsilegi árangur, sem félagið
náði á landsmóti UMFÍ að Laugum s. 1.
sumar, en þá sigraði UMFK bæði sund-
keppnina og knattspyrnukeppnina. Þá
náðu frjálsíþróttamenn félagsins ágætum
árangri á mótinu.
Gjaldkeri félagsins, Steinþór Júlíusson,
lagði fram reikninga félagsins, sem sýndu
ágætan fjárhag.
Stjórn UMFK var öll endurkosin, en
hana skipa: Form. Þórhallur Guðjónsson,
Hörður Guðmundsson, Steinþór Júlíus-
son, Einar Ingimundarson og Högni
Gunnlaugsson.
haldandi bæjakeppni milli þessara aðila.
Keflvíinkar eiga marga unga efnilega
leikmenn, sem ættu að geta veitt Reykja-
víkurúrvali góða og skemmtilega keppni
á komandi árum.
Um þessa fyrstu bæjakeppni er það að
segja, að Revkjavík sigraði með 4:1. Til
gamans má geta þess, að s. 1. sumar léku
Akurnesingar, þá íslandsmeistarar í
knattspyrnu, við Reykjavík, og töpuðu þá
5:0, svo Keflvíkingar geta vel unað úr-
slitum í þessari fyrstu bæjakeppni við
Reykjavík.
Reykjavíkurblöðin skrifuðu mikið um
Bæjakeppni í knattspyrnu:
Keflavík — Reykjavík 1:4
F A X I — 109