Faxi - 01.06.1962, Qupperneq 26
Keflvíkingar!
Gardínuefni
Sængurveradamask
Léreft 140 cm
Léreft 90 cm
Léreft 80 cm
Náttfataefni
Flónel í litum
Sumarkjólaefni
Blússuefni
Skyrtuefni
Telpnabuxnaefni
Kaki í mörgum litum
Blátt nankin
Kápupoplín
Kvennpeysur
Telpnapeysur
Herrapeysur
Skyrtur hvítar, mislitar
Kaupfélag
Suðurnesja
V ef naðarvörudeild.
þessa keppni og koma hér glefsur úr
þeim:
Vísir: „Urval höfuðborgarinnar hafði
lida yfirburði yfir 2. deildar lið. Sanngjörn
úrslit hefðu verið 3:2 eða 4:2.“
Þjóðviljinn: „Verður Keflavík næsta
stórlið utan Reykjavíkurr“ (Fyrirsögn).
Morgunblaðið: „Keflvíkingar skutu
Reykvíkingum skelk í bringu.“
Alþýðublaðið: „Reykjavík vann Kefla-
vík í jöfnum leik. . . . Sigur Reykjavíkur
var sanngjarn, en markamunurinn var of
mikill.“
Tíminn: „Keflavíkurliðið kom á óvart
með kröftugum og hröðum leik og eftir
hann verða þeir taldir líklegastir til að
hljóta sæti í 1. deild. . . . Þetta er í fyrsta
skipti, sem bæjakeppni milli þessara staða
fer fram, en vonandi verður það ekki f síð-
asta skiptið — og eins og staðan er nú eru
Keflvíkingar verðugir keppinautar.“
H. G.
Nokkur hluti fermingarbarna 1962 í Keflavíkurkirkju. — Myndina tók Heimir Stígsson.
Fermingarbörn gefa út blað
Nú er fermingum nýlega lokið hér á
Suðurnesjum og stór og mannvænlegur
hópur ungmenna hefur staðfest skírnar-
heit sitt.
Nokkru áður en fermingar hófust að
þessu sinni í Keflavíkur prestakalli, gekkst
sóknarpresturinn fyrir því, að láta ferm-
ingarbörnin gefa út sérstakt blað, helgað
fermingunni.
I tilefni af útkomu blaðsins brá ég mér
á fund sr. Björns Jónssonar og spurðist
fyrir um þessa starfsemi.
— Hver er tilgangurinn með þessari
blaðaútgáfu ?
— Frá mínu sjónarmið er hann a. m. k.
þríþættur. I fyrsta lagi er um að ræða öflun
tekna í ferðasjóð fermingarbarnanna, í
öðru lagi, að einhver hluti teknanna renni
til þess að styrkja gott málefni, eftir því
sem sóknarprestur og ritstjórn koma sér
saman um hverju sinni. Eg hef lengi verið
mótfallinn því, að það sem gert er fyrir
börnin verði óbeint til þess að ala upp í
þeim sjálfselsku og eigingirni og taldi því
hyggilegt, að fjáröflunin væri ekki ein-
göngu miðuð við þeirra eigin stundar-
hagsmuni, heldur fengju aðrir að njóta
góðs af henni um leið, sem er uppeldislega
þroskandi fyrir börnin. I þriðja lagi gæti
slík blaðaútgáfa, ef rétt væri á málum
haldið, orðið til þess að skapa meiri festu
í sjálfan fermingarundirbúninginn, t. d.
með meiri heimavinnu, sem hefði í för
með sér sjálfstæða íhugun barnanna á
námsefninu, sem reyndar verður alltaf
aðalatriðið.
— Hvernig hefur svo þessi tilraun
heppnazt ?
— Mjög vel. — Að vísu hafa heyrzt
hneykslunarraddir, en þær eru fáar og
hjáróma. Flestir tóku blaðinu vel og marg-
ir luku á það lofsorði.
— Og hver varð svo hinn áþreifanlegi
hagnaður?
— Blaðið seldist vel og hagnaðurinn
varð kr. 8.730,75.
I þessu sambandi vil ég sérstaklega
þakka auglýsendum velvild þeirra í garð
þessa fyrirtækis og svo almenningi fyrir
viðtökurnar.
— Lögðu börnin sjálf til mikla vinnu?
— Ahugi þeirra og samstarf við mig
var eins gott og bezt verður á kosið, enda
var hér um að ræða mjög góðan og sam-
stilltan hóp fermingarbarna.
— Hyggstu halda þessari starfsemi
áfram ?
— Já, áreiðanlega, enda vænti ég já-
kvæðs árangurs meðal barnanna og vax
andi skilnings hinna eldri fyrir góðu og
þroskavænlegu starfi.
H. Th. B.
110 — F a x i