Faxi - 01.12.1972, Page 44
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík 2
Ritstjári og afgreiðslumaður: Magnús Gíslason J
Blaðstjórn: Gunnar Sveinsson, Jón Tómasson, Margeir Jónsson 2
Auglýsingastjóri: Þórir Maronsson j
Verð blaðsins í lausasölu kr. 75.00 2
Setning og prentun: GRAGAS sf. J
************-****^*^******^**********^^^æ*< r ************** *
Betri heimur
Ein heitasta ósk mannkyns gegnum aldirnar, hefur verið óskin um frið á
jörð. Ofmæli væri að halda því fram, að sú fróma ósk hefði rætzt. Hver
styrjöldin á fætur annarri hefur hrjáð mannkynið, með allri þeirri skelfingu,
hörmungum og dauða, sem þeim fylgir, ekki einungis fyrir þá sem berjast á
vígvöllunum, heldur einnig fyrir saklausa borgara.
Orsakir styrjalda hafa sjaldnast — og kannski aldrei — verið annað en
blind valdafíkn drottnunarhneigðra manna, sem fremur hafa kosið að leysa
ágreining með vopnum,en viti, án þess að meta mannslífin nokkurs eða
horfa í allan þann kostnað, sem af styrjöldum leiðir og alla þá eyðileggingu,
sem stríð hafa í för með sér.
Varla er hægt að álíta styrjaldir annað en skort á skynsemi, þegar þjóðir
heims eyða gnótt fjár í heri, á meðan stór hluti mannkyns sveltur, getur ekki
aflað sér menntunar né á nokkurs staðar höfði sínu að halla. Eðlilegt er því,
að mörgum finnist fjármunum betur varið að koma hinum bágstöddu til
hjálpar, en að auka á hörmungar mannkynsins.
Þegar jólin — hátíð Ijóss og friðar — nálgast, verður sjálfsagt mörgum
hugsað til þeirra, sem eiga um sárt að binda vegna ófriðar, og hvaða vonir
megi gera sér um frið á næstu árum, og nú bregður svo við, að útlitið er
bjartara en oft áður. Þeir áfangar, sem náðust í nýrri viðleitni stórveldanna
til að koma á varanlegum friði í heiminum og binda endi á stríð og óvináttu,
gefa góð fyrirheit um bættari heim á næstu árum. í þeirri von, að sú ósk
rætist, óskum við gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir
það sem er að líða. — emm.
JÓLAGJAFIR
ÚR BÚSÁHALDADEILD:
Matar- og kaffistell
Stakir bollar,
margar gerðir
Stakir diskar
Hitakönnur
Hraðsuðukatlar
Stálhúðuð hnífapör
Brauðskurðarhnífar
Vasar
Veggplattar
Rjómaþeytarar
Stórir tertubakkar
Barnadiskar og könnur,
í settum
Myndarammar
Úrval af glösum
Ávaxtasett
Ölsett
Gjafavörur í miklu úrvali
KAUPFÉLAG
SUÐURNESJA
Búsáhaldadeild
Hafnargötu 30
216 — FAXI