Faxi - 01.12.1972, Side 23
MINNING KAUPMANNSH3ÓNANNA FRÁ AKURHÚSUM,
Þorláks Benediktssonar og
w
Dórunnar S. Olafsdóttur
ÞORLÁKUR BENEDIKTSSON var
fæddur 1. janúar 1888, í Akurhúsum í
Garði. Voru foreldrar hans hjónin Bene-
dikt Þorláksson og Sigríður Björnsdóttir,
bæði ættuð austan ú Skaftafellssýslu.
Þorlákur Bcncdiktsson
Þorlákur ólst upp í foreldrahúsum og
voru þau þrjú systkinin, Guðbjörg, sem
dó tveggja ára, og Björn, en hann lézt
árið 1957. Þorlákur byrjaði ungur að róa
með föður sínum og stundáði sjósókn
lengi fram eftir aldri.
Hann stofnaði útgerð ásamt Bjarna
Björnssyni í Nýlendu og Einari Helga-
syni í Nýjabæ, og var Þorlákur formaður
á skipi þeirra.
Árið 1922 setti Þorlákur upp verzlun
í Akurhúsum, en stundaði sjóinn áfram,
jafnframt verzlunarstörfunum. Árið 1929
fluttist Þorlákur til Hafnarfjarðar, þar
sem hann einnig rak verzlun á tveimur
stöðum. Ekki undi hann sér lengi í
Hafnarfirði. Hann þráði áð komast í
heimabyggð sína, sem honum allar stund-
ir þótti svo vænt um. Og eftir tveggja
ára dvöl í Hafnarfirði, flytzt hann aftur
suður í Garð, þar seni hann endurbyggði
Akurhúsin og hóf verzlun að nýju, en
stundaði jafnframt sjóinn á litlum bát-
urn næstu tíu árin. Um þetta leyti hóf
hann einnig fiskverkun í Akurhúsum, þar
sem hann verkaði fisk fyrir aðra, svo
sem Loft Loftsson, útgerðarmann í
Sandgerði, en rak síðan fiskverkun á
Jórunn S. Ólafsdóttir
eigin vegum, allt t'.l ársins 1955, er hann
sneri sér eingöngu að verzlunarstörfum.
Hinn 14. febrúar 1914, kvætnist Þor-
lákur, Jóiunni Sigríði Ólafsdóttur, er
flutzt hafði áð Akurhúsum haustið áður.
Var hún ættuð af Vatnsleysuströnd, mik-
il myndar- og dugnaðarkona..vÞau hjón-
in Þorlákur og Jórunn eignuðust ekki
börn, en einn kjörson ólu þau upp,
Hauk, sem lézt fyrir tveimur árum. Hann
var kvæntur Gyðu Eyjólfsdóttur og voru
þau hjónin búsett í Reykjavík. Þá ólu
þau einnig upp eina fósturdóttur, sem
þau tóku að sér sex ára gamla, þegar
móðir hennar andaðist frá 11 böinum.
Ingibjörg er nú gift Einari Gíslasyni, út-
gerðarmanni í Sandgerði. Báðum þess-
um börnum reyndust þau hjónin sem
beztu foreldrar.
Árið 1958 veiktist Þorlákur og varð
að dveljast á Vífilsstöðum vetrarlangt, en
hafði þá náð fullum'bata. En þegai hann
kom heim frá veikindadvöl sinni, árið
1959, hafði kona hans tekið þann sjúk-
dóm, er leiddi hana til dauða. Hún and-
aðist hinn 13. nóvember 1959.
Fjórum áruin síðar, eða hinn 12. okt.
1963 ,k\æntist Þorlákur öðru sinni, Her-
dísi Joensen, frá Færeyjum, og var hún
manni sínum mikill styrkur og stoð í
veikindum er hann varð síðar að stríða
við. En síðustu ár hafði hann á ný náð
góðri heilsu.
Að kvöldi hins 6. janúar sl. varð hann
fyrir alvarlegu veikindaáfalli á heimili
sínu. Daginn eftir var hann fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík og þar andaðist
hann, aðfaranótt. 2. rnarz sl., 84 ára
gamall.
Þorlákur Benediktsson var einn þeiria
fáu manna, sem settu hvað mestan svip
á byggðarlag sitt. Hann unni því af al-
hug og helgaði því starfskrafta sína af
mikilli óeigingiini og fórnarlund, enda
má fullyrða, að hann hafi notið óskorð-
aðs trausts og virðingar sveitunga sinna
og raunar allra, sem kynntust þessum ó-
venju fjölhæfa, drenglundaða og góð-
hjartaða mannkostamanni.
Hann var starfsmaður mikill, og reglu-
semi hans og snyrtimennska í öllum störf-
um og alls staðar þar sem hann hafði
umgengni, hvort heldur var á heimili
hans eða vinnustað, var frábær. Sérhvert
verk, senr hann vann, hvort heldur það
vai stórt eða smátt, vann hann af ein-
stakri alúð, samvizkusemi, nákvæmni og
vandvirkni. Og þar sem saman fóru mikl-
ir hæfileikar og góðar gáfur, þurfti ekki
að efast um árangurinn.
í öllum viðskiptum var hann sérstak-
lega áreiðanlegur og strangheiðarlegur.
Öllum hans orðum mátti treysta skilyrð-
islaust. Þorlákur var prýðisvel greindur
og mjög vel máli farinn. Þannig átti hann
auðvelt með að tjá hugsanir sínar í orð-
' um jafnt í einkaviðræðum, sem á rnanna-
fundum, en auk þess var hann vel ritfær
F A X I — 195