Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1972, Blaðsíða 9

Faxi - 01.12.1972, Blaðsíða 9
eftir að búið var að skipta því. Honum hefði verið mjög að skapi að fá að þjóna tveim söfnuðum í stað eins áður, og tveim kirkjum. — Auðvitað var eftirvæntingin nokk- ur, hvort ég yrði fyrir valinu og úrslitin ánægjuleg, en það sem hreif huga minn og ihjarta mest, var hvað okkur var tekið opnum örmum af sóknaibörnunum. Allir voru boðnir og búnir að rétta okkur hjálparhönd, bæði fjölskyldunni og svo mér í safnaðarstarfinu. Kosningarnar, þar sem menn skiptust í hópa, höfðu engin eftirköst, eins og oft hefur viljað við brenna, sagði séra Guðmundur, — en hjá okkur hefur engan skugga á borið, og nú eftir 20 ára starf stend ég í mikilli þakkarskuld við sóknarböm mín. Erfitt er að gera upp á milli manna, en þó vildi ég mega nefna tvenn hjón, sem eyddu miklum tíma og kröftum í þágu kirkjunn- ar, þau Þorlák Benediktsson og Jórunni Ólafsdóttur, frá Akurhúsum, sem bæði eru látin, og Ólaf Vilhjálmsson, sem er iátinn ,og konu hans, Þuríði Jónsdóttur, sem lifir mann sinn. Frú Steinvör segist mjög gjarnan vilja minnast á Hvalsnesfólkið, en þar er út- kirkja Útskálaprestakalls. — Þar hefur eiginlega verið okkar annað heimili, við höfum borðað þar og orðið alis njótandi sem við þurftum í sambandi við messu- gjörðir, og allt hefur verið talið sjálf- sagt, bæði stórt og smátt. Slíkt hefur ver- ið okkur ómetanlegur styrkur í starfi. Frú Steinvör Kristófersdóttir Tal oikkar berst að safnaðarstarfinu, kirkjusókn, og hvort nokkurn tímia hafi orðið messufall. — Allir, sem innt hafa einhver störf af hendi, organistar, söngfólk, meðhjálp- arar, hringjarar og safnaðarnefndir, hafa unnið þau af dugnaði og skyldurækni og tryggt að messa gat alltaf farið fram, þótt svo að kirkjugestir væru fáir. Aðeins hafa orðið tvö messuföll í minni tíð hér, bæði vegna óveðurs, segir séra Guð- rnundur, — og ég held að kirkjusókn í Útskálaprestakalli sé fullt eins mikil og annars staðar gerist, ef ekki meiri. Þegar maðurinn með ljáinn er óvænt á ferðinni, kernur þáð í hlut prestanna, að hafa samband við aðstandendur. — Sporin eru oft þung til ættingj- anna, þegar sorglegir atburðir hafa gerzt, það hef ég fengið að reyna bæði hér og fyrir vestan, og það tekur mjög á sálina, segir Guðmundur. — Já, sjóslysin eru dapurlegust, og því miður of tíð í sjávar- plássum, bætir Steinvör við, enda koma slíkir atburðir ekki síður við hana en prestinn. Yfir kaffi og góðgjörðum ber ýmislegt á góma, og þau hjónin tjá mér, að ef tala megi um nok'kra breytingu á athöfnum, þá hafi hjónavígslum og skírnu mfækkað til muna í heimahúsum, og sé það vegna þess, að scknarpresturinn hafi frekar ráð- lagt að ganga í Guðshús til þessara at- hafna, og eftir á að hyggja sé fólk ánægt með þá tilhögun, enda mun meiri helgi- athöfn innan kirkju en utan. Þótt þau hjónin séu bæði fædd og uppalin í faðmi fjalla, kunna þau vel við sig á Suðurnesjum. Náttúrufegurðin er kannski ekki eins mikil og fyrir norðan, en á móti vegur, að hér er aldrei snjó- þungt og samgöngur auðveldar, og svo hefur nálægðin við höfuðborgina sitt gildi. — euvn. Öska öllum viðskiptamönnum og starfsfólki GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLS KOMANDI ÁRS NJÁLL BENEDIKTSSON, BERGÞÓRSHVOLI, GARÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.