Faxi - 01.12.1972, Síða 66
innar hljómaði í nafni hans, en persóna
hans var mörkuð af villimennsku nú-
tímans.
Hann var einn af þúsundunum, sem
borgarastyrjöldin hafði tekið allt frá,
ekki einungis vonina, heldur og mann-
dóminn til þess að geta vonað.
Hann var sáttur við lífið eins og hann
lifði því, og átti enga ósk, sem náði frá
málsverði til málsverðar.
í tvo daga fylgdi hann mér eins og
tryggur rakki, hvert sem ég fór. Hann
bar fótboltaskóna mína á kvöldin, þegar
við félagarnir fórum á knattspyrnuvöll-
inn. í búningsklefanum beið hann yfir
fötum okkar og passaði þau fyrir sínum
líkum. Hann varaði mig við viðsjárverð-
um stöðum og beið mín þolinmóður
fyrir utan knæpur og veitingahús, þar
sem hann fékk ekki að koma inn.
Óafvitandi sagði hann mér ævisögu
sína á þessum tveimur dögum.
Ævisaga 10 ára manns er venjulega
ekki margbrotin, og ævisaga Salomons
var engin undantekning þar frá; en í
henni fólst heil þjóðfélagsádeila. Ádeila
á þá tilveru, sem hrópaði í nekt viður-
styggðar sinnar til heilbrigðrar skynsemi
og mannúðar og bað um að mega mást
út af þessari jöfð.
Faðir hans féll í borgarastríðinu en móð-
ir hans vann fyrir sér á götunni með 3ja
mánaða gamalt barn á handleggnum.
Sjálfur fékk hann að sofa inni hjá frænda
sínum og var að því leyti betur settur en
margir félagar hans, sem ekki áttu völ á
öðru húsnæði en gömlum, uppsettum
bátskriflum, tómum umbúðakössum og
því um líku.
Mat varð hann að útvega sér sjálfur,
og það gerði hann eftir því sem hungrið
blés honum í brjóst — ýmist sníkti eða
stal.
Hugmyndir hans um rétt og rangt voru
mjög einfaldar.
Þær virtust í framkvæmdinni ekki falla
sem bezt að okkar vestræna siðalögmáli,
eða hinum 10 austrænu boðorðum.
En hann kom til dyranna eins og hann
var klæddur, duldi ekkert.
Siðalögmál hans var ekki skrúði til að
skarta í við hátíðleg tækifæri. Hann
breytti eftir þessu hversdagslega — átti
ekki annað til.
Svo var burtfararstundin komin. Ég
lagði 50 peseta seðil í lófa Salomons.
Snöggvast ljómaði andlit hans yfir þess-
um óvæntu auðæfum, en svo varð það
aftur alvarlegt. Svona stóran pening
þýddi honum ekki að þiggja. Hann
mundi vei'ða sakaður um að hafa stolið
honum.
Svo var seðlinum skipt og lítill, bros-
andi drenghnokki stóð á hafnarbakkan-
um. Aðra höndina gróf hann niður í
buxnavasann, þar sem trygging næstu
máltíða var geymd, en hinni veifaði hann
til skipsins, sem hafði fært honum þessa
áhyggjulausu daga, en sneri nú stefnu
sinni móti hinum breiða sæ og fjarlægð-
ist óðum.
Ég hallaði mér út áð borðstokknum
og horfði á Salomon. Horfði á hvernig
persónueinkenni hians máðust út eftir
því sem fjarlægðin óx.
Hann minnkaði og minnkaði, varð æ
ógreinilegri, unz á hafnarbakkanum sást
aðeins formlaus þúst.
Ef til vill hefur það verið hans raun-
veiulega mynd.
Sigurður Brynjólfsson
Verzlunin ALDAN Sandgerði
Höfum mikið úrval af jólagjöfum fyrir alla
fjölskylduna. —
FYRIR BÖRNIN:
Ymsar gerðira f dúkkum, bollastell, snyrtiseff,
nælur, hringir og festar. Dúkkulísur og litabækur.
Magar gerðir af Matchboxbílum og gjafakössum,
tvær stærðir af bílatöskum. Pússluspil, kubbar,
boltar, munnhörpur, trommur, vasaljós, myndir,
módel og magt fleira. —
FYRIR DÖMUR:
Snyrtivörur í úrvali, margar gerðir af ilmvötn-
um og ilmkremum, gjafasett, freyðiböð, snyrti-
buddur, peningabuddur o.fl. —
FYRIR HERRA:
Tabac og Old Spice gjafasett, margar gerðir
af rakspíra, úrólar, ermahnappar, margar gerðir
af pípum, og Ronson kveikjararnir vinsælu.
Munstruð og hvít herranærföt, ódýrar barna-
sokkabuxur og drengjaskyrtu með bindi.
Munið eftir filmunum og flashkubbunum.
Kodak myndavélar, margar gerðir og stærðir af
myndaalbúmum, einnig minningabækur.
Munið jólaölið, gosdrykkina og sælgætið hjó
okkur. Margar gerðir og stærðir af konfektköss-
um. Einnig kerti og spil. Þið fóið Emmess-ísinn
og ístertuna hjó okkur. Munið að panta terturn-
ar tímanlega. Einnig allar gerðir af niðursoðnum
óvöxtum.
Mikið úrval af jólakortum, jólapappír merki-
miðar, lím og borðar, jólatrésskraut, seríur og
perur.
Sem sagt, allt í og utan ó jólapakkann. Þér
þurfið ekki að leita langt.
Óskum viðskiptavinum okkar
GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS,
og þökkum viðskiptin ó órinu.
Opið ó aðfangadag fró kl. 9—3.
Verzlunin ALDAN Sandgerði
238 — F A X I