Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1972, Side 4

Faxi - 01.12.1972, Side 4
! Rœtt við tvo presta sem þjónað hafa, : i á Suðurnesjum í tvo áratugi j í Þá séra Björn Jónsson S ! ! ; og séra Guðmund Guðmundsson ; Árið 1952 verða mikil þáttaskil í sögu Útskálaprestakalls. Á Alþingi voru samþykkt lög um nýja prestakallaskipun á íslandi. í lögum þessum var meðal annars Útskálaprestakalli skipt þannig, að Kejlavík og Njarðvík skyldu verða sérstakt prestakall, en kœmi þó ekki til jramkvœmda, nema þáverandi prestur kallsins óskaði eða léti aj störjum. í nóvemberblaði Faxa þetta ár, má lesa ejtirfarandi: ,,Eins og menn muna, jór séra Eir'ikur Brynjóljsson til Vestur- heims og dvaldi þar í eitt ár og þjónaði við söjnuð sr. Valdimars J. Eylands, sem það ár var prestur Útskálasajnaðar. Ejtir að sr. Eiríkur kom heim, jékk hann mjög ákveðnar óskir um að koma vestur aftur og verða prestur íslendinga Séra Eirikur Brynjólfsson, fyrrum prestur á Utskálum í srmtals 24 ár í Vancouver í Canada. Tók sr. Eiríkur boði þessu, þrátt fyrir óskir sóknarbarna sinna um að starja hér áfram. — ,,Þeir báðu mig að koma og því má ég til með að fara,“ sagði sr. Eiríkur í kveðjusam- sœti, er þeim hjónunum var haldið hér í Keflavík, þann 23. júní sl.“ Ennjremur er skýrt jrá því í blaðinu, að Garðmenn og Sandgerðingar haji einnig kvatt hann með samsæti. Voru honum þökkuð margháttuð og vel unn- in störf þau 24 ár, sem hann var starf- andi prestur, í báðum þessum kveðju- hófum. í greininni, sem rituð er aj Margeiri Jónssyni, .segir.-að sóknarbörn sr. Eiríks haji-átt -góðan liðsmann, þar sem hann var, alltaf sami dugnaðurinn, hvar sem Séra Björn Jónsson, núvcrandi sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli hann lagði hönd á plóginn, heill og sann- ur, bœði sem prestur og mafíur. Fyrir hönd Faxa, þakkaði Margeir honum með þessum orfíum: ,,Öll hans mál voru góð mál“. Til Ameríku sigldi sr. Eiríkur ásamt jjölskyldu sinni, en prestakallið var aug- lýst laust í tvennu lagi, samkvœmt á- kvœðum hinna nýju laga, og af umsœkj- endum um prestaköllin uröu hlutskarp- astir þeir Bjöm Jónsson, guðjrœðingur, í Keflavíkurprestakalli, og séra Guð- mundur Guðmundsson, í Útskálapresta- kalli. Báðir eru þeir enn starjandi í þess- um söjnuðum og haja því á þessu ári þjónað söjnuðum sínum í tvo áratugi. FAXA fannst því mjög vel viðeigandi, að sœkja heim þessa tvo heiðursmenn, og ræða örlítið við þá um lífið — en aðallega starjið. Séra Guðmundur Guðmundsson, núverandi prestur á Ufskáum 176 — F AX I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.