Faxi - 01.10.1986, Page 7
Gunnar Sveinsson
Ávarp til brautskráðra 1986
Gunnar Sveinsson hefur verið formaður skólanefndar Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja ffá byrjun en lætur nú af því starfi.
Við skólaslit í vor flutti hann þetta ávarp
Skólameistari, kertnarar, nem-
endur og gestir.
Eg býð ykkur velkomin til þess-
ara skólaslita, en áður en' við
göngum til dagskrár vil ég minn-
ast þriggja manna er nákomnir
voru skólanum og látist hafa á
þessari önn.
Ami Þorsteinsson skipstjóri
lést 10. mars sl. Hann var fæddur
að Gerðum í Garði 14. nóv. 1908.
Foreldrar hans voru Guðný Helga
Vigfúsdóttir og Þorsteinn Árna-
son. Lífsstarf hans var sjó-
mennska og sjósókn, en þegar ell-
in sótti hann heim var hann um
tveggja ára skeið gangavörður í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Hann rækti þau störf sín af
skyldurækni og trúmennsku,
eins og öll sín störf á lífsleiðinni.
Hreinn Asgrímsson skóla-
stjóri Stóru Vogaskóla, lést í
London þann 7. maí sl. Hann var
fæddur á Þórshöfn á Langanesi
30. maí 1947. Foreldrar hans voru
Helga Margrét Haraldsdóttir og
Asgrímur Kristjánsson. Hannólst
upp á Þórshöfn. Fór síðan í Kenn-
araskólann og lauk þar námi og
gerðist skólastjóri við Stóru Voga-
skóla 1972. Hann var frá upphafi
í undirbúningsnefnd að stofnun
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
ritari nefndarinnar, og síðan í
skólanefnd til dauðadags. Hreinn
var einstakur öðlingsmaður sem
gott var að starfa með. Hann hafði
mikinn áhuga fyrir vexti og við-
gangi þessa skóla og skólamálum
yfirleitt. Við minnumst hans með
þökk.
Hjalti Pálmason Grindavík
nemandi á viðskiptabraut lést af
slysförum þann 14. jan. sl. Hann
var fæddur í Grindavík þann 12.
des. 1966. Foreldrar hans voru
Stefanía Björg Einarsdóttir og
Ólafur Þór Valgeirsson. Hann ólst
upp í Grindavík og stundaði þar
öll störf til lands og sjávar þar til
hann hóf nám í Fjölbrautaskólan-
um 1982. Hjalti var mikill efnis-
maður sem mikil eftirsjón er að.
Ég vil biðja alla viðstadda að
heiðra minningu hinna látnu með
því að rísa úr sætum.
Tíminn líður hratt, það eru orð
að sönnu. Fyrir tæpum tíu árum
þann 13. sept. 1976 var þessi skóli
settur í fyrsta sinn. Margar ræður
voru fluttar við það tækifæri. í
þeim komu skýrt fram þær miklu
vonir er bundnar voru við þessa
skólastofnun. Vonir um glæsta
framtíð þessa skóla, og að starf
hans yrði áhrifaríkt á mörgum
sviðum. Áhrif hans á mannlíf á
Suðurnesjum til meiri þroska,
menntunar og framfara. Áhrif
hans til viðurkenningar á Suður-
nesjum, sem menntaðra og þrosk-
aðra samfélags en áður hafði verið
viðurlcennt. Ahrif hans til að þróa
verkmennt og listsköpun, í sam-
félagi sem hingað til hafði þurft að
sækja slfkt að. Áhrif hans í auk-
inni almennri framhalds- og end-
urmenntun á svæðinu. Því góðri
skólastofnun má líkja við stærð-
fræði. Þú gleymir aðferðinni við
að leysa dæmið, en sá aukni skiln-
ingur og þroski sem fékkst við
lausn þess situr eftir.
Og þegar við lítum til baka yfir
farinn veg þau 10 ár sem skólinn
hefur starfað, sjáum við að mikið
hefur áunnist á öllum sviðum. Al-
menn samstaða hefur verið um
skólann, og skólinn hefur verið
vel sóttur og nýtur álits. Kunn-
átta, menntun og þroski hafa auk-
ist þannig að á Suðurnes er ekki
lengur litið sem stað þar sem
brauðstritið yfirgnæfir menntun
og menningarlíf. Heldur er litið á
þau sem stað, sem taka þarf tillit
til þegar rætt er um menntun og
skólamál. Þennan árangur ber að
þakka. Á þessum tímamótum í
starfi skólans vil ég fyrir hönd
skólanefndar þakka þeim aðilum
er staðið hafa að uppbyggingu
skólans. Ég vil þá fyrst og fremst
þakka skólameisturum þeim Jóni
Böðvarssyni og Hjálmari Árna-
syni þeirra miklu og giftudrjúgu
störf. Ég vil þakka kennurum og
öllum stjómendum skólans svo
og öllu starfsfólki. Ég vil þakka
sveitastjórnarmönnum skilning
og velvilja í garð skólans og ég vil
þakka skólanefndarmönnum
bæði fyrrverandi og núverandi
fyrir góð störf og ánægjulegt sam-
starf. Að lokum vil ég þakka þeim
fjölmörgu aðilum er stutt hafa
skólann með gjöfum og á annan
hátt.
Ég vil að lokum óska nemend-
um og aðstandendum þeirra er nú
útskrifast innilega til hamingju
með þennan áfanga.
Brekkustíg 38 - 2óO Njarðvík
Sími 92-4299
Paö er engin ryðvamarstöö rétt □
á Suðumesjum. rangt^
Gljái veitir 6 ára ábyrgö rétt
áryðvöm rangt □
Pú íerö auðvitað meö bílinn rétt X
íryðvömtilGljáa. rangt □
FAXI 211