Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1986, Side 8

Faxi - 01.10.1986, Side 8
Rafveitustjóri Sœvar Sörensson til vinstri, afhendir Margeiri Jónssyni andlitsmynd hans steypta í kopar, fyrir langt og gott starf í þágu rafveitunnar. Milli þeirra er IngvarHallgrimsson, sem einnigútti sœti íncfndinni. Myndinagcrði Erlingur Jóns- Framkvæmdasjóður Rafveitu Keflavíkur til þjónustu- og húsnæðismála aldraðra Síðasti fundu rafveitunefndar Kcfkmkur. Arinbjöm Ólafsson, Sœvar Sörensson, Ingvar Hallgrímsson, Margeir Jónsson, Ingólfur Iialldórsson og ÓlöfMagnúsdóttir. Myndir: Heimir Stígsson. Þegar Rafveita Keflavíkur var sameinuð Hitaveitu Suðumesja eins og allar aðrar rafveitu á Skag- anum — kom í ljós að eignir Raf- veitu Keflavíkur vom orðnar all- miklar. Nokkrar umræður urðu um ráðstöfun þeirra. Á síðasta fundi Rafveitunefndar vom reikn- ingar Rafveitu Keflavíkur lagðir fram og einnig var þar samþykkt tillaga til bæjarstjómar varðandi eignimar. Fundargerð Rafveitunefndar var svohljóðandi: Fundur haldinn í Rafveitunefnd Keflavíkur 15. maí ’86 kl. 4 í húsakynnum Rastar h/f. Þetta er síðasti fundur nefndar- innar þar sem nefndarmenn telja störfum hennar að ljúka. Á fundinum vom ennfremur Sævar Sörensson fyrrv. Rafveitu- stjóri og Ambjörn Ólafsson skrif- stofustjóri. 1. Endurskoðandi er að ljúka uppsetningu ársreikninga Raf- veitunnar fyrir árið 1985. Helstu niðurstöður em sam- kvæmt upplýsingum hans: Raforkusala 63.000.000 Heildartekjur alls 67.000.000 Hagnaður ársins 3.800.000 Eignir 15. maí ’86 Innist. í banka 12.548.888 Verðbréf 2.708.138 Víxlar 3.576.121 Viðskiptamenn Útistandandi 8.594.816 rafmagnsreikn. 1.854.473 kr. 29.282.436 Brunabótamat á Vesturbraut 12, Kefl. kr. 13.697.000 Alls kr. 42.973.436 Formaður rajveitunefndarMargeir Jónsson ajhcndir Guðjóni Stefánssyni formanni bœjarráðs sfðustu fundargerð og reikninga nefndarinnar. Við sameiningu Rafveitu Kefla- víkur við Hitaveitu Suðurnesja óx eignarhlutur Keflavíkur í Hita- veitunni úr 20% í 38,68%. 2. Rafveitunefnd hefur töluvert rætt um ráðstöfum eftirstandandi eigna R.K. Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundinum: Þegar Hitaveita Suðumesja hef- ur nú tekið við öllum rekstri og búnaði rafveitnanna á svæðinu samþykkir rafveitunefnd að leggja til eftirfarandi við bæjar- stjóm Keflavíkur: ,,Nú þegar Rafveita Keflavíkur hættir verði eignum hennar varið til þjónustu við aldraða og mynd- aður sjóður sem ber nafnið Fram- kvæmdasjóður Rafveitu Keflavík- ur til þjónustu- og húsnæðismála aldraðra." Nefndin fór á fund bæjarráðs með niðurstöður ársreikninga 1985 og fyrmefnda tillögur. Guð- jón Stefánsson formaður bæjar- ráðs, þakkaði starfsmönnum raf- veitunnar og rafveitunefndar- mönnum, vel unnin störf á liðn- um ámm. Rafveitustjóri afhenti Margeiri Jónssyni, formanni nefndarinnar andlitsmynd af honum mótaða úr kopar sem þakklæti fyrir farsælt starf fyrir rafveituna á liðnum ár- um. Áð lokum þakkaði Margeir Jónsson samnefndarmönnum og starfsfólki Rafveitunnar fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum ár- um. Ingvar Hallgrímsson þakkaði samnefndarmönnum sínum fyrir gott samstarf þó að stundum hafi gustað. Sævar Sörensson þakkaði nefndarmönnum gott samstarf og stuðning á liðnum árum. Fleira ekki gert, fundi slitið. Margeir Jónsson, Ingvar Hall- grímsson, Ólöf Magnúsdóttir, Sæv- ar Sörensson, Arnbjörn Ólafsson, Ingólfur Halldórsson. í lok fundarins fór rafveitu- nefndin á fund bæjarráðs og af- henti fundargerðina og reikning- inn. Bæjarráð gerði í því tilefni eftirfarandi bókun: ,,I dag eru merk tímamót í sögu Keflavíkurbæjar. Eftír langt og gifturíkt starf Rafveitu Keflavíkur sem lauk með sameiningu rafveitn- anna á Suðurnesjum við Hitaveitu Suðumesja skilar rafveitunefnd nú lokauppgjöri sínu til bæjarsjóðs. Bæjarráð færir núverandi rafveitu- nefnd svo og öllum þeim sem starf- að hafa í rafveitunefnd frá upphafi, rafveitustjórum sem veitt hafa fyrir- tækinu forystu og öllu starfsfólki sem unnið hefur hjá Rafveitunni fyrr og síðar, þakkir fyrir giftu- drjúgt starf í þágu bæjarbúa. Það hefur einkennt störf stjórnenda og starfsmanna Rafveitunnar frá upp- hafi, að veita bæjarbúum sem traustasta og besta þjónustu en jafn- framt hefur verið gætt fyllsta að- halds og aðgæslu í rekstri og fjár- málastjórn fyrirtækisins. Bæjarráð tekur heilshugar undir tillögur raf- veitunefndar um ráðstöfun þeirra fjármuna sem hún skilar nú af sér.“ Bæjarstjórn staðfesti síðan hug- myndina og fól formanni rafveit- unnar, bæjarstjóra og bæjarlög- ' manni að semja reglugerð fyrir sjóðinn. A 212 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.