Faxi - 01.10.1986, Side 15
fjarlægt, og örfáum dögum síðar
barst bréf frá oddvita Gerða-
hrepps, þar sem tilkynnt er aftur-
köllunbyggingarleyfis, um stund-
arsakir, eins og það er orðað í
bréfinu, sem urðu alls 22 mánuð-
ir. Var þetta allt vegna ófullnægj-
andi yfirráða yfir landi því sem
húsið stendur á. Fór nú langur
óvissutími í hönd, sem markaði
sín spor. Á þessu sama ári var
golfklúbburinn 20 ára og haldið
upp á það með glæsibrag og einn
þátturinn var reisugilli sem haldið
var með eftirminnilegum hætti,
þrátt fyrir að ský hafi dregið fyrir
sólu og myrkur í sálinni. Hér
verða ekki rakin frekar þau vand-
ræði sem við rötuðum í, enda er-
um við hér til að fagna og það af
margþættu tilefni eins og fyrr er
getið. í fyrsta lagi, er lokið ef svo
má segja 15 ára landvinninga-
stríði, með fullum sóma en
nokkrum stríðsskaðabótum og
hefur golfklúbburinn nú fullan
umráðarétt yfir öllu því landi sem
hann hefur tekið til nýtingar. í
öðru lagi er lokið að mestu fram-
kvæmdum við völl og hús.
Nú eru réttir 4 mánuðir síðan
hafist var handa, þar sem frá var
horfið fyrir tveimur árum. Bygg-
ingin rétt tæplega fokheld. Sam-
staðan gagnvart þessu verkefni
hefur verið stórkostleg, og er úti-
lokað að tekist hefði að koma
byggingunni á það stig, sem hún
er í dag, á svo stuttum tíma sem til
stefnu var, án hennar, enda liggja
að baki á annantug þúsunda sjálf-
boðaliðs vinnustundir.
Hlutirnir hafa gerst svo hratt
þessa mánuði að enginn tími hef-
ur verið til að gera sér fulla grein
fyrir íjárhagshlið þessa verks, en
það er alveg ljóst að klúbburinn
stendur eftir stórskuldugur. Ekki
aðeins vegna klúbbhússins, held-
ur einnig vegna kaupa á landi,
kemur áreiðanlega til með að
reyna á þolinmæði lánadrottna,
enda er hér um gífurlegar fjáríest-
ingar að ræða á aðeins tæpu hálfu
ári. Bjartsýnin er mikil og við trú-
um að við komumst fram úr þessu
án stóráfalla. Þegar við lítum hér
út um gluggana eða göngum út á
svalimar og virðum fyrir okkur
umhverfið og stórkostlegt útsýn-
ið, skynjum við hversu vel húsið
er staðsett, golfvöllurinn blasir
svo til allur við augum, flóinn svo
í beinu framhaldi og fjallahring-
LANDSMÓT í GOLFI MEÐ „ST7EL“
Frd Landsmótinu á Hðlmsvelli í Leiru. Mótshliðið fánum skrýtt. Pað sér varla
í hiðglœsilega nýja hús Golfklúbbs Suðurnesja /ýrir hílamergð ogfólksfföldinn
var að sama skapi ýmist dreijður um völlinn til að fylgjast með sinum uppá-
haldsgolfspilurum eða þá að það sat inni í velbúnum golfskálanum og naut
góðra veitinga og hvíldar eftir útivistina.
Þau hafa orðið fleyg orðin sem
Logi Þormóðsson lét falla fyrr í
sumar, að Golfklúbbur Suður-
nesja myndi standa fyrir lands-
móti í golfi ,,með stæl“. Að mót-
inu loknu er óhætt að segja, að
mótið fór hið besta fram og var á
alla lund mjög skemmtilegt.
Það var sem sagt dagana 28. júlí
til 3. ágúst sl. að haldið var í Leiru
Landsmót 1986 í golfi. Stjórn
mótsins var í höndum þeirra Loga
Þormóðssonar, Ómars Jóhanns-
sonar og Kristjáns Einarssonar.
Þeim til aðstoðar var aragrúi af
sjálfboðaliðum úr golfklúbbnum.
Er mér til efs, að áður hafi verið
haldið svo vel skipulagt lands-
mót.
Golfklúbbur Suðurnesja hefur á
undanförnum árum verið í stöð-
ugum uppgangi og hefur nú verið
tekinn í notkun frábær 18 holu
völlur ásamt mjög góðu klúbb-
húsi. Eru nú aðstæður mjög góðar
svo ekki sé meira sagt. Svo vel er
til hagað með staðsetningu húss-
ins, að þaðan má sjá til allra
brauta vallarins, þannig að áhorf-
endur geta vel fylgst með keppni
frá sjálfu húsinu. Var þetta óspart
notað á meðan mótið stóð yfir.
Leiran á sér merkilega sögu og
hefur golfklúbburinn gert henni
hátt undir höfði með því að golf-
brautirnar bera heiti eftir bæjum
og öðrum örnefnum. Ein brautin
heitir til dæmis Gapastokkur. Það
vill svo til, að það er nafn með
rentu, því sú braut er ein sú erfið-
asta og hættulegasta á vellinum.
Þetta landsmót var hið fjöl-
mennasta sem haldið hefur verið,
en alls voru keppendur 247 tals-
ins. Er nú svo komið, að óhjá-
kvæmilegt verður að skipta slíku
móti á fleiri golfvelli í framtíðinni,
því þessu fylgir óeðlilega mikið
álag, bæði á starfsmenn og kepp-
endur. M.a. þurftu sumir kepp-
endur að hefja leik kl. sex að
morgni. Allt mótið var veður hið
fegursta. Hið landsfræga ,,Suður-
nesjaveður", þ.e. rok og rigning lét
sig alveg vanta og reikna ég með,
að fáir hafi saknað þess.
Hér á eftir verður nú getið helstu
úrslita og minnst á ýmislegt ann-
að, er áhugavert þykir. Heildarúr-
slit hafa birst í dagblöðum þannig
að aðeins verður stiklað á stóru
hér. Þess er fyrst að geta, að ís-
landsmeistarar urðu að þessu
sinni mjög ungir golfleikarar. í
kvennaflokki sigraði Steinunn
Sæmundsdóttir og í karlaflokki
Úlfar Jónsson. Steinunn háði
harða baráttu allan tímann, en
Úlfar stakk sína keppendur af
snemma á síðasta keppnisdegi.
Keppendur af Suðurnesjum
gerðu góða hluti á þessu móti.
Yngsti keppandi mótsins, Karen
Sævarsdóttir úr GS, varð íjórða í
meistaraflokki og verður það að
teljast mjög góður árangur hjá 14
ára telpu. Er hún líkleg til mikilla
afreka í framtíðinni, enda á hún
ekki langt að sækja það, því for-
eldrar hennar eru báðir góðir golf-
leikarar. Sigurvegarar í öðrum og
þriðja flokki voru báðir úr GS.
Högni Gunnlaugsson í þriðja
flokki og Máni Ögmundsson í
öðrum. Þá varð Gylfi Kristinsson
þriðji í meistaraflokki.
ÚRSLITi
Meistaraflokkur karla:
Úlfar Jónsson GK 299
Ragnar Ólafsson GR 302
Gylfi Kristinsson GS 305
Meistaraflokkur kvenna:
Steinunn Sæmundsdóttir GR 342
Ásgerður Sverrisdóttir GR 346
Jóhanna Ingólfsdóttir GR 346
1. flokkur karla:
Jóhann R. Kjærbo GR 319
Peter Salmon* GR 321
Gunnlaugur Jóhannsson NK 322
Guðmundur Bragason GG 322
*Peter keppti sem gestur.
1. flokkur kvenna:
Alda Sigurðardóttir GK 341
Ágústa Guðmundsdóttir GR 375
Aðalheiður Jörgensen GR 346
2. flokkur karla:
Ögmundur M. Ögmundss. GS 334
Lúðvík Gunnarsson GS 334
Bernhard Bogason GE 336
2. flokkur kvenna:
Sigríður B. Ólafsdóttir GH 389
Björk Ingvarsdóttir GK 397
Kristine Eide NK 400
3. flokkur karla:
Högni Gunnlaugsson GS 342
Rúnar Valgeirsson GS 350
Jóhannes Jónsson GR 352
H.H.
Margt manna fylgist hérmeð Úlfari Jónssyni, 17 ára pilti lír Hafnarfirði, sem
varð íslandsmeistari, pútta á 16. flöt. Myndir J.T.
FAXI 219