Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 21

Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 21
Nemendurd tréidnadarbraut veturinn 1984-85 ásamt kennurum sínum, t.v. Stur- laugi Ólafssyni og t.h. Héðni Skarphéðinssyni. Nemendur á málmiðnabmut veturinn 1984—85. þrem vetrum. Á sama hátt gátu lakari nemendur svo og aðrir sem bjuggu við þannig aðstæður valið sér íjölda áfanga í samræmi við fyrri undirbúning, vinnuafköst eða getu og aðstæður. Þessir nem- endur gátu þannig áætlað sér lengri tíma til að ljúka sínu námi, eftir því sem hentaði í hverju til- felli. Slíkur sveigjanleiki var og er ekki til í bekkjaskipta kerfinu, því þar sigldu allir sömu leið, góðir nemendur og slakir, án nokkurs tillits til aðstæðna. Þannig gat t.a.m. góður nemandi tæplega flýtt sínu námi, nema að leggja óhemjumikið á sig. En áfanga- kerfið bauð upp á nýja mögu- leika, sem fáa hafði dreymt um áður, þ.e. að sameina undir einum hatti ólíkar námsbrautir og þann- ig nýta betur bæði húsnæði og spara í rekstur en þó stórefla menntakerfið um leið og færa menntunina út á iandsbyggðina, út í héruðin. Þessi nýi möguleiki var fjölbrautaskólakerfið. Frá skóianum í Hamrahfíð breiddust þessar hugmyndir út um iandsbyggðina og varð þunga- miðja þeirrar nýju skólamála- stefnu er fram kom á sjöunda ára- tugnum og nýtt fyrirbrigði fædd- ist, sem venjulega er nefnt fjöl- brautakerfi eða íjölbrautaskólar, byggt upp á áfangakerfi og átti eft- ir að gjörbylta menntakerfmu í landinu. Á áttunda áratugnum óx ísienska skólakerfið og dafnaði og þandi sig út um alla landsbyggð- ina og í dag skipta þeir skóiar tug- um um allt land sem byggja starf sitt upp á áfangakerfinu. Fjölbrautaskóli Suðurnesja byggði upp á því kerfi, sem þróað hafði verið í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Jón Böðvarsson, skólameistari, kom beint úr Hamrahlíðarskólanum, þar sem hann hafði verið einn af brautryðj- endunum sem ýttu áfangakerfinu af stað og hélt áfram á þeirri braut er hann tók við skólastjórn á Suð- urnesjum. Það voru fleiri fjöl- brautaskólar sem stofnaðir voru á næstu árum. Stjórnendur sumra þeirra komu úr Hamrahlíðarskól- anum s.s. Ólafur Ásgeirsson, f.v. skólameistari á Akranesi og Heimir Pálsson, f.v. skóiameistari á Selfossi. Einnig var Jón Fr. Hjartarson, fyrrum áfangastjóri úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja ráðinn skólameistari við Fjöl- brautaskóia Sauðári<róks. í upp- hafi mynduðu þrír skólar, Fjöl- brautaskóli Suðurnesja, Fjöl- brautaskólinn á Akranesi og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði undir stjórn Kristjáns Bersa Óiafssonar með sér samtök um gerð sameiginlegs námsvísis fyrir alla skólana þrjá, svo og stefnu- mörkun í hagsmunamálum þess- ara skóla. Samstarf þetta tókst með ágætum og þegar ijölbrauta- skólamir á Suðurlandi og Sauðár- króki vom stofnaði gengu þeir inn í þetta samstarf. Gerð námsvísis varð að föstum lið og brátt fóru ýmsir aðrir skólar að miða starf- semi sína við námsvísi þessara skóla, sem gjarnan vom nefndir , ,námsvísisskólarnir“. Skipta þeir skólar nú tugum sem miða starfsemi sína við þennan náms- vísi. Stærsta viðurkenningin á þessu starfi „námsvísisskól- anna“ fékkst á síðastliðnu vori, þegar Menntamálaráðuneytið gaf út samræmda námsskrá fyrir tvö fýrstu árin í öllum íramhaldsskól- um landsins. Námsskrá þessi tek- ur gildi nú í haust og er í grund- vallaratriðum byggð á námsvísi ,,námsvísaskólanna“. Þannighef- ur Fjölbrautaskóli Suðurnesja tekið þátt í brautryðjendastarfi, sem áhrif hefur haft á allt mennta- kerfi landsins. En hvað hefur þetta fjölbrauta- eða áfangakerfi upp á að bjóða? Uppbygging áfangakerfisins Áfangaskóli eins og Fjölbrauta- skóli Suðurnesja býður upp á margar námsbrautir sem ýmist em frá tveggja anna námi, t.d. iðnnám, fjögurra anna námi t.d. verslunarpróf o.fl., til átta anna náms, sem endar með stúdents- prófi. Námsbrautir þessar eru mismikið skildar eins og gefur að skilja, en hafa þó allar einn ákveð- inn kjarna, sem allir nemendur skólans, á hvaða braut sem þeir eru, verða að taka. Tökum sem dæmi tvær tiltölulega óskildar brautir, tréiðnaðarbraut og versl- unarbraut, sú fyrri er þriggja anna en hin síðari Ijögurra anna námsbraut. Á báðum þessum brautum em danska 103, stærð- fræði 103, íslenska 103, enska 103, sem grunnáfangar. Ef nem- anda snýst hugur um nám sitt á miðjum námstíma, þannig að hann t.d. teldi að iðnnám tréiðna hentaði honum betur en verslun- arnám, þá þyrfti hann ekki að byrja frá grunni þegar hann hæfi nám á nýrri braut, því grunn- áfangarnir sem að ofan eru taldir nýtast honum að fullu í hinu nýja námi. Þetta hefði ekki verið unnt samkvæmt námsuppbyggingu skólakerfisins áður, því námið var ólíkt og mat á námsefni var erfitt t.d. frá mennta-, verslunar-, eða iðnskóla. I áfangakerfinu merkir áfangaheiti, t.d. STÆ 103 eða ÍSL 103 það sama hvort sem það kem- ur fyrir í námsbrautarlýsingu fyr- ir iðnbraut húsasmíða eða fyrir stúdentsprófsbraut. Námsefnið er hið sama, kröfurnar hinar sömu og nemendum af hinum ýmsu brautum blandað saman í hópa. Á þennan hátt byggist áfangakerfið upp á smáum grunn- einingum sem síðan er hlaðið ofan á og utan um allt eftir því hvert stefnt er í námi. Lítum aðeins á þessi númer sem áfangakerfið byggist upp á. Fyrir ókunnugan kunna þessi heiti og númer sem að framan eru talin að virka framandleg og jafn- vel fráhrindandi, en þau eru þó lykillinn að þessu kerfi og því nauðsynlegt að menn þekki þau. Áfangakerfið hefur einnig verið nefnt hlítarkerfi vegna þess að nemandinn þarf að standast ákveðnar kröfur áður en hann l'ær að halda áfram. Þegar nemandi lætur skrá sig í t.d. stærðfræði 103 verður hann að fá 5 í einkunn til þess að geta haldið áfram í stærðfræði. Nemandinn hefur þá Nemendur á hársnyrtibmut veturinn 1984—85. FAXI 225

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.