Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 24
t.t. nýútskrifaður nemandi úr
skólanum og hefur gegnt þessu
starfi frá ársbyrjun 1985 en lætur
nú af störfum í haust. Ekki hefur
verið gengið frá ráðningu í hennar
stað þegar þetta er ritað. Auk
skólaritaranna tveggja er bók-
haldari skólans, Valtýr Guðjóns-
son.
Húsvörður er Maríus Sigur-
jónsson og hefur hann yfirumsjón
með ræstingu og viðhaldi skóla-
húsnæðisins. Ræstingafólk er:
Ólöf Bjömsdóttir, Sigurbjörg Þor-
steinsdóttir, Elín Júlíusdóttir,
Ásthildur Einarsdóttir og Helga
Þorkelsdóttir.
Félagslíf
Mannlíf og félagslíf em tengd
órofaböndum. Án mannlífs er
ekkert félagslíf og án félagslífs er
enginn skóli. En félagslíf er mis-
jafnt frá einum skóla til annars og
einum árgangi til annars. Félagslíf
nemenda veltur fyrst og fremst á
þeim sem til forystu veljast í það
og það skiptið, hvort þeir em virk-
ir og fái íjöldann með sér. Því hef-
ur félagslíf verið misgott á þessum
tíu ámm og nemendur mis virkir.
Forsvarsmenn félagslífs nemenda
er stjóm Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðumesja (NFS) og
sjá þeir um skipulagningu alls fé-.
lagslífsins. Þeim til aðstoðar er
einn úr föstu starfsliði skólans og
er hann nefndur félagsmálastjóri.
Síðustu ár hefur félagslífið eflst
mjög og er það fyrst og fremst því
að þakka að til forystu hefur valist
vel virkt og dugandi fólk. Klúbbar
og félög innan nemendafélagsins,
sem vom einungis nafnið tómt
em nú virk á ný og bjóða upp á
fjölbreytta dagskrá. Má þar nefna
málfundafélagið Kormák, skák-
klúbb FS, ferðafélag FS,
skemmtinefnd, íþróttafélag FS,
bridgeklúbb, ljósmyndaklúbb,
kór FS og leikfélagið Vox Arena,
svo að nokkuð sé nefnt. Þrátt fyrir
lægðir í félagslífi hafa ákveðnir
dagskrárliðir fests í sessi. Má þar
nefna liði eins og busavígslu, árs-
hátíð, tónlistarhátíð og íþróttahá-
tíð. íþróttamót em í gangi allan
veturinn og einnig hefur verið far-
ið í ferðalög og hafa tvær ferðir
orðið að hefð í starfsemi nem-
endafélagsins. Það er Þórsmerk-
urferð, sem farin er hvert haust í
kring um mánaðamót
september/október, svo og
skíðaferð í janúar/febrúar. Ferðir
þessar hafa notið mikilla
vinsælda meðal nemenda,
einkanlega skíðaferðin, en í
skíðaferðimar fara iðulega um og
yfir 100 nemendur. Einnig má
geta samvinnu á sviði íþróttamála
við Fjölbrautaskólann á Akranesi
og Fjölbrautaskóla Suðurlands,
en þessir skólar skiptast á heim-
sóknum. Þá má að lokum geta
starfsemi tveggja félaga. Leikfélag
NFS hefur fært upp alls þrjú leik-
rit og nú síðast í vetur sem leið.
Starfsemi málfundafélagsins hef-
ur verið öflug og hefur FS komið
sér upp vel frambærilegu liði
ræðumanna sem att hefur kapp
við alla bestu ræðumenn fram-
haldsskólanna s.l. tvö ár í svo-
nefndri MORFIS keppni og staðið
sig vel. Síðastliðna tvo vetur hefur
svo öflug skemmtinefnd starfað
og hefur hún staðið fyrir opnu
húsi vikulega, þar sem boðið er
upp á félagsvist, bingó o.s.frv.
auk þess sem hún stendur fyrir
böllum, sem haldin em mánaðar-
lega.
Félagslífið er nú svo blómlegt að
nýnemar hafa haft það á orði að
þeir hafi aldrei kynnst öðm eins.
Er þetta ánægjulegur vitnisburð-
ur, því óþarít er að fjölyrða um
gildi þess sem gott félagslíf hefur,
jafnt fyrir skólann í heild sinni,
sem og þá einstaklinga sem til-
búnir em að leggja til starfskrafta
sína. Það eitt sér að vera þátttak-
andi og gefa þannig af sjálfum sér
er ómetanleg reynsla sem hvorki
verður metin til fjár né eininga.
Margt dugandi fólk hefur starf-
að í stjóm nemendafélagins í
gegnum árin og væri of mikið að
ætla að telja það allt upp. Þó má að
öðmm ólöstuðum geta tveggja
skömnga, sem báðar gegndu
starfi formanns, þeirra systra
Köllu Bjargar og Eddu Rósar
Karlsdætra. Óhætt er að fullyrða
að báðar störfuðu af miklum
krafti og lögðu óeigingjarnt starf
að mörkum. Edda Rós var for-
maður veturinn 1984—85 og lagði
gmnninn að því kraftmikla starfi
sem nú er. 1 stjórn nemendafé-
lagsins síðasta vetur sat einnig
prýðisfólk. Formaður var Hafliði
Sævarsson, sem sat í stjórn með
Eddu Rós og
haldið hefur uppi merki þeirrar
stjórnar. Hann mun einnig sitja í
stjóm næsta vetur, sem gjaldkeri.
Varaformaður var Thyggvi Braga-
son, ritari Georg Georgsson,
gjaldkeri Guðni Gunnarsson og
meðstjómandi Ámi Ragnar Lúð-
víksson. Stjóm nemendafélagsins
veturinn 1986—87 verður þannig
skipuð: Formaður, Guðmundur
Karl Brynjarsson, varaformaður,
Margrét Þórarinsdóttir, ritari
Bjami Thor Kristinsson og gjald-
keri Hafliði Sævarsson. Með-
stjómandi verður kosinn í upp-
hafi haustannar.
BRUnflBúi opnctr í Vogum
Ó BRUnflBÚT bœtii enn þjónustu
sína á Suöumesjum.
Nú opnum viö ÍO. septembei n.k.
skiifstoíu í Vogum.
Á mánudögum og mlövikudögum írá 14.00-17.00
mun starísmadur okkar vera til viötals á skriístofu
hreppsins, Vogageröi 2.
Aö sjállsögöu mun skriistoía okkar í Kellavik
annast þjónustu aöra daga viö Vogabúa.
...................................mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm..
ÖLL ALMENN TRYGGINGAEP JÓNUSTA
.™Ga*ít«2ilSÍD
_ BRimflBÚT
\c3kT -AFÖRYGGISÁSTÆÐUM
UMBOÐ VOGUM
228 FAXI