Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 32
Tómas Tómasson:
„Fegurrn mál á ei vezöld víð“
Þjóðhátíðarræða flutt í Skrúðgarðinum í Keflavík 1986
Góðir Keflvíkingar.
Það hefur verið sagt um okkur
íslendinga, að þegar við ræðum
atburði eða málefni, þá verði okk-
ur ætíð fyrst fyrir að reyna að
kryfja svo sem unnt er rætur
þeirra. Skoða fortíðina gaumgæfi-
lega. Það er sagt að liðna tíðin sé
okkur forvitnilegust, og þeim
mun forvitnilegri sem við getum
rakið söguna lengra aftur til grárr-
ar fomeskju. því hefur verið hald-
ið fram, að við séum svo upptekn-
ir af forsögunni, að við gleymum
gjarnan vanda líðandi stundar,
hvað þá að við gemm okkur rellur
af áætlunum til framtíðarinnar.
Mikilhæfustu menn þjóðarinnar
séu í okkar hugum ávallt þeir,
sem þegar hafa lokið jarðvist
sinni, og þá helst fyrir löngu. Það
besta af þjóðarmeiðnum séu ræt-
umar í jörðinni, og að þeim sé
hlúð. Laufskrúðsins og ávaxtanna
í nútímanum sé síður gætt.
Ég verð auðvitað að vera trúr
þessu ætlaða eðli þjóðar okkar,
enda á það varla nokkurs staðar
betur við en á þjóðhátíðardegi, að
líta aðeins um öxl.
Við eigum því sérstæða láni að
fagna, og getum þakkað það Ara
fróða, að eiga svo óyggjandi sögu
um landnám og byggð hér á landi,
að varla getur skeikað nema örfá-
um ámm um tímasetningu þess,
er fyrsti landnemi setur hér sam-
an bú í þeim tilgangi að festa hér
Tómas Tómasson.
rætur — stofnar til varanlegrar
byggðar. Að hér rís upp og stofn-
ast ný þjóð, nýtt ríki, nýtt þjóð-
veldi. Saga íslenskrar tungu, ís-
lenskrar menningar, íslenskrar
lífsbaráttu hefst, hefst með land-
námi Ingólfs Arnarsonar.
Saga landnámsins er á margan
veg sérstæð. Hér var landi ekki
rænt frá öðmm með valdi og
blóðsúthellingum — hér þurfti
ekki að útrýma frumbyggjum, svo
að þeir sem inn fluttu fengju oln-
bogarúm. Með ólíkindum var
einnig hversu gott og frumlegt
skipulag komst strax á það, með
hverjum hætti landnemarnir helg-
uðu sér land. Var það til þess að
ótrúlega lítið varð um árekstra
SÝNINGARSALUR OKKAR - GALLERÍIÐ - ER OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 13-19.
Mikiö
úrval
af
grafík
og
málverkum
effir
þekkt
listafólk
EINNIG POSTULÍN OG FLEIRA FRÁ ROSENTHAL
Innnömmun
Sueynnesjfl
Vatnsnesvegi 12 — Keflavík.
Sími 3598.
236 FAXI