Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 35
heldur í efnahagslegu og verklegu
tilliti, eða félags- og menningar-
legu, þeir sýna þannig ást sína á
ættjörðinni best í verki. Góður ár-
angur í héraði skilar þjóðfélaginu
bestum arði. Héraðið okkar,
Keflavík og Suðurnes öll, er ær-
inn vettvangur að starfa á og
ánægjulegur.
Ég hef lengi verið því marki
brenndur, að líta á Suðumesja-
svæðið sem eina heild, enda þótt
hér séu 7 sveitarfélög. Ég er þeirr-
ar bjargföstu trúar, að með sam-
eiginlegu átaki geti þessi sveitar-
félög lyft Grettistökum, eins og
þau hafa raunar gert.
Við emm oft minnt á það, að af-
rakstur hinnar miklu atorkusemi
okkar íslendinga sé ekki nægur,
og kerfið okkar sé alltof dýrt.
Þetta á m.a. rætur að rekja til mis-
vægis í stjórnsýslunni, annars-
vegar ofurþunga miðstýringar
ríkisvalds og fjármagnsvalds — og
á hinu leitinu vanmegnug sveitar-
félög vegna smæðar þeirra. Þjóð-
inni er nauðsyn, að efla, stækka
og styrkja sveitarfélögin í land-
inu, svo þau geti orðið verðugt og
sterkt mótvægisafl gegn mið-
stýrðu ríkisvaldi. Stjórnun sem
flestra mála, er varða hagsmuni
héraðanna, þarf að flytjast heim.
Fólkið í héruðunum þarf að fá
sem flest sinna mála í sínar eigin
hendur. Þá verður þunginn í fram-
vindunni meiri. Og þetta þarf að
gerast áður en hin dreifðu héruð
verða mannauð.
Við, fólkið, erum eins og undir-
aldan, fömm ekki fram með ógn-
vekjandi skrautsýningum brot-
sjóanna, eins og ég man þá í
Grindavík, heldur er undiraldan
sá þungi, sem þó ræður heildar-
ferðinni, óháð þeim skyndiat-
burðum, sem brotsjórinn veldur.
Ég hef óbilandi trú á því, að við
hér í Keflavík og á svæðinu okkar
hér um Suðurnes, eigum bjarta
framtíð fyrir höndum. Hér er gott
að búa, og hér hafa stórstígar
framfarir orðið á nánast öllum
sviðum. Það er búið vel að æsku-
fólkinu okkar, íþróttamannvirki,
fjölbrautaskóli þar sem við höfum
átt því iáni að fagna að hafa flutt
menntun og þekkingu heim í hér-
að, grunnskóli, tónlistarskóli.
Bærinn hefur hlotið sérstakt lof
þeirra sem um þessi mál fjalla hjá
skólayfirvöldum. Ibúðir aldraðra
hér fyrir augum okkar við Suður-
götu hafa allstaðar hlotið verð-
skuldaða athygli.
AÐSENT BRÉF TIL FAXA
Esther Ólafsdóttir lýkur háskólanámi í píanó- og orgelleik og
semur athyglisverða ritgerð tun íslenskan tvísöng. Ur bréf dr.
Ama Hólm.
Esther Ólafsdóttir, dóttir Ólafs
Sigurðssonar og Steinunnar Erl-
ingsdóttur til heimilis að Skóla-
vegi 7 í Keflavík hefur nýlokið M A
námi við Andrews háskólann í
Michigan í Bandaríkjunum.
MA nám Estherar var í tónlistar-
sögu og orgelleik, en 1985 lauk
hún háskólanámi (Bachelor of
Music) í píanóleik og orgelleik.
Með náminu í vetur var Esther
fastur organleikari í borginni St.
Joseph sem er nærliggjandi borg
við Andrews háskólann.
MA ritgerð Estherar fjallaði um
efnið „Structure and Modality in
Icelandic IXnsöngur, Collected by
Bjarni Þorsteinsson, 1880—1904
(Éormgerð og tóntegund í íslensk-
um tvísöngvum, safnað af Bjarna
Þorsteinssyni, 1880—1904) og
þótti svo fróðleg að hún var sam-
þykkt til flutnings á árlegri ráð-
stefnu Michigan Academy of
Science, Arts and Letters við
Michigan Central University í
Mount Pleasant, Michigan.
Esther verður við nám við
Strassborgarháskóla í Frakklandi
næstaár. Esthererfædd 1.12 1962
í Keflavík. Hún lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja 1981 á tónlistarbraut og var
jafnframt nemi í Tónlistarskólan-
um í Keflavík. Þar hafði hún num-
ið píanóleik frá barnsaldri.
fe Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Vélvaröarnám
Fyrirhugað er að halda uppi kennslu í námi
vélavarða á vorönn 1987.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans sími
3100.
Skólameistari
,,Æskan, ellinnar samtíð,
við cigum öll samleið — og
framtíð"
kvað Einar Benediktsson.
Bærinn okkar fær vaxandi orð
sem fallegur og snyrtilegur bær,
menningar og menntabær.
Allt er þetta auðvitað fyrst og
fremst að þakka ótrúlegu fram-
taki bæjarbúa.
En auðvitað blasa óunnin verk-
efni við. Gott má lengi bæta, og sí-
fellt nýjum þörfum og óskum íbú-
anna að mæta. Við getum verið
þakklát á meðan svo er. Það sýnir
að dauð hönd stöðnunarinnar
hefur ekki heltekið bæinn okkar.
I starfssömum bæ, þar sem dugn-
aður og þekking einstaklingsins
er ekki drepin í dróma, verður
aldrei verkefnaskortur.
Samstarfsverkefni sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum eru mjög
margvísleg og fer þeim fjölgandi.
Ég nefni hér aðeins Hitaveituna,
sem er eitt glæsilegasta mannvirki
hér á landi, og er okkur öllum til
stórsóma. Að ógleymdu Bláa lón-
inu og öllum þeim framtíðar-
möguleikum, sem því tengjast.
Þær draumsýnir eiga eftir að ræt-
ast, og fyrr en margan grunar. En
hér er því miður ekki stund til
þess að fjalla nánar um þær fram-
tíðarsýnir. En framtíðin er okkar.
En ég legg áherslu á, að þar er
áframhaldandi gott samstarf
sveitarfélaganna lykillinn, á með-
an ekki vinnst nægjanlegt fylgi
fyrir sameiningu þeirra í eitt
sterkt og áhrifamikið sveitarfélag.
Það hefur verið mér sérstök
ánægja, að hafa fengið tækifæri til
þess að taka þátt í því mikla og
ævintýralega framfarastarfi, sem
hér hefur verið að gerast síðustu
áratugi, með setu minni í bæjar-
stjórn.
Ég vil nota þetta tækifæri, til
þess að þakka ykkur, Keflvíking-
ar góðir og sem mál mitt heyra,
fyrir það mikla traut, sem ég hef
ávallt notið og fyrir alla velvild
mér sýnda, og fyrir þann mikla
stuðning, sem ég hefi notið í þeim
störfum, sem mér hafa verið falin
fyrir bæinn okkar.
Það er von mín og ósk, að okkur
eigi eftir að auðnast að gera góðan
bæ enn betri, svo ég grípi til slag-
orða kosningarbaráttunnar, og
manneskjulegri, þar sem við, íbú-
arnir, getum ávallt búið við bestu
kjör í starfi, í námi og við leik.
Ég óska nýkjörinni bæjarstjórn
allra heilla í störfum fyrir bæinn
okkar.
Keflvíkingar, ég óska okkur öll-
um árgæsku og farsældar á ókom-
inni tíð. Guðsblessun fylgi okkur
öllum.
Gleðilegan þjóðhátíðardag.
FAXl 239