Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1987, Qupperneq 6

Faxi - 01.01.1987, Qupperneq 6
MINNING Emil Jónsson fyrrverandi forsætisráðherra og alþingismaður Reyknesinga F. 27. OKTÓBER 1902 D. 30. NÓVEMBER 1986 Nú þegar Emil Jónsson er kvaddur hinstu kveðju, kemur margt upp í hugann hjá þeim, sem þekktu hann og störfuðu með honum í áratugi. Emil fæddist í Hafnarfirði 27. október 1902. Foreldrar hans voru hjónin Jón inúrarameistari þar Jónsson bónda í Sólheimum í Hrunamannahreppi Jónssonar og Sigurborg Sigurðardóttir bónda á Miðengi á Vatnsleysuströnd Ámasonar. Hann lauk burtfarar- prófi úr Flensborgarskóla vorið 1917 og stúdentsprófi í Mennta- skólanum í Reykjavík vorið 1919. Þá um haustir, tæpra seytján ára að aldri, hóf hann nám við verk- fræðiháskólann í Kaupmanna- höfn. Lokaprófi þar lauk hann í janúar 1925. Hánn var aðstoðar- verkfræðingur bæjarverkfræð- ingsins í Óðinsvéum á Fjóni 1925—1926, bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði 1926—1930 og bæjar- stjóri þar 1930—1937. A árinu 1937 var hann skipaður vita- og hafnamálastjóri og fékk lausn ffá því embætti snemma árs 1959, en hafði þá gegnt embættinu með nokkrum frávikum vegna annarra starfa, einkum sem ráðherra. Hann var samgöngumálaráðherra 1944—1947, viðskipta-, iðnaðar- og samgöngumálaráðherra 1947—1949, utanríkisráðherra vegna veikindaforfalla nokkrar vikur 1956, forsætisráðherra frá því í desember 1958 fram í nóv- ember 1959, sjávarútvegs- og fé- lagsmálaráðherra 1959—1965, utanríkisráðherra 1965—1970, utanríkis- og félagsmálaráðherra 1970-1971. Bankastjóri Lands- banka íslands var hann 1957—1958. Hátt í fjóra áratugi átti hann sæti á Alþingi, var þingmaður Hafnfirðinga 1934— 1937, 1942-1953 og 1956-1959, landskjörinn þingmaður 1937- 1942,1953-1956 og á sumarþing- inu 1959 og loks þingmaður Reykjaneskjördæmis 1959—1971. Hann var forseti neðri deildar á sumarþinginu 1942 og forseti sameinaðs þings 1956-1958. Alls átti hann sæti á 44 þingum. Auk þeirra starfa, sem nú hafa verið talin, kom Emil Jónsson víða við sögu í félags- og þjóðmál- um. Hann átti frumkvæði að stofnun iðnskóla í Hafnarfirði árið 1926 ojg var skólastjóri hans til 1944. I miðstjórn Alþýðuflokks- ins var hann 1930-1952 og 1954—1971, formaður flokksins 1956—1968. Bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði var han 1930—1962 og stjórnarformaður Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar 1931—1957. Hann var formaður skólanefhdar Flens- borgarskólans 1930—1945, í stjóm Landssambands iðnaðar- manna 1933-1945, í stjóm skipu- lagsnefndar atvinnumála frá 1934 og formaður hennar frá 1935. Hann var í stjóm Sparisjóðs Hafn- arfjarðar 1935—1957 og í Lands- bankanefnd 1936—1957. Stjórn- arformaður Raftækjaverksmiðj- unnar í Hafnarfirði var hann um áratugi frá stofnun hennar 1936. Hann var i fiskimálanefnd 1938—1939, í skipulagsnefnd bæjar, kauptúna og sjávarþorpa 1938-1944 og 1950-1957, kosinn 1944 í milliþinganefnd í sam- göngumálum Suðurlandsundir- lendisins, skipaður 1946 í endur- skoðunarnefnd laga um verðlagn- ingu landbúnaðarafurða og fleira og kosinn í togaranefnd 1954. í Norðurlandaráði átti hann sæti 1955—1959, í Þingvallanefnd 1957—1972, í úthlutunarnefnd at- vinnuaukningarfjár 1959—1961 og í stjóm atvinnubótasjóðs, síðar atvinnujöfnunarsjóðs, 1962—1967. í bankaráði Seðlabanka íslands var hann 1968—1972. Emil Jónsson átti sér glæsilegan námsferil og langan og fjölbreyti- legan starfsferil. Ungur var hann kvaddur til starfa í heimabæ sín- um, Hafnarfirði, og naut bæjarfé- lagið þar góðrar menntunar hans, ósérhlífni og úrræða á erfiðum tímum sem þá vom. í huga flestra mun þar hæst bera heiðarleika hans, staðfestu og frá- bærar gáfur. Allra þessara hæfi- leika Emils naut Alþýðuflokkur- inn og þjóðin öll í ríkum mæli í þeim margþættu verkum, sem hann lagði hug og hönd á að leysa. Alla tíð lagði hann mesta áherslu á að rétta hlut þeirra, sem minna mega sín og oft með ráðum, sem leitt hafa til varanlegra umbóta, þótt sum hver væm umdeild í upphafi. Lengst mun Emils þó trúlega minnst fyrir að mynda minni- hlutastjórnina árið 1958, þegar fráfarandi forsætisráðherra lýsti því yíir að óðaverðbólga væri skollin á og samstaða væri engin um stjórn landsins. Þá reyndi mikið á staðfestu Emils og þá naut 6 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.