Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1987, Qupperneq 21

Faxi - 01.01.1987, Qupperneq 21
OSKAR m X \, f 0jVs*, AXEL /V V- ' o \v;-, Víkmgar í Vesturheimi w Bræðumir Óskar og Axel Niku- lássynir eru mörgum Keflvíking- um að góðu kunnir. Báðir léku þeir í mörg ár með liði ÍBK í körfu- bolta og gerðu þar garðinn fræg- an. Ég held, að ekki sé á neinn hallað, þótt fuflyrt sé, að Axel hafi verið einn litríkasti og skemmti- legasti körfuboltamaður landsins á þeim tíma. Óskar hóf æfingar og keppni nokkru seinna en Axel, en hann var í stöðugri framför og sýndi alltaf skemmtilega takta í leik sínum. Fyrir nokkrum árum lögðu þeir bræður land undir fót og fóm vestur til Bandaríkjanna til náms. Hvað Axel snertir, þá vakti einnig fyrir honum að stunda sína íþrótt, enda hafði þáverandi þjálfari landsliðsins, Jim Dooly, milli- göngu um að útvega skólavist. Nú um jólin vom strákarnir í jólafríi í Smáratúninu, þannig að okkur á Faxa þótti tilvalið að taka við þá viðtal. Við byrjuðum á því að spyrja þá, hvenær þeir hafi fyrst farið vestur um haf. Það var haustið 1983 sem Axel fór utan, en ári seinna fór Óskar þangað í heimsókn, leist svo vel á aðstæður, að hann hóf sjálfur nám vorið 1985. Faxi: Hvenær var það sem þið fómð vestur um haf? Axel: Ég fór utan haustið 1983 eftir hvatningu Dooly eins og þú nefnir, en næsta haust kom Óskar í heimsókn. Honum leist svo vel á sig, að hann kom sjálfur út næsta vor, þ.e. 1985. Faxi: 1 hvaða námi emð þið? Óskar: Það má víst kalla það dagskrárgerð og fjölmiðlafræði það sem ég er að nema, fyrst og fremst í tengslum við sjónvarp. Ég reikna með að ljúka þeim hluta sem ég er í nú vorið 1989. Axel: Ég hef nú lokið BA prófi í hagfræði. Ég fékk styrk til fram- haldsnáms og er nú að lesa fyrir MA-próf í stjórnmálafræði. Ég reikna með að ljúka því í desem- ber á þessu ári. Faxi: Segið okkur nú frá þátt- töku ykkar í íþróttum á þessum tíma. Axel: Þú mátt trúa því, að þegar ég kom út og fór að æfa körfuna, þá fékk ég meiriháttar áfall. Hér heima var ég vanur að vera inná í öllum leikjum mest allan tímann, en þarna þótti gott, ef ég fékk að leika í tvær, þrjár mínút- ur. En þetta átti eftir að breytast, t.d. var ég í byrjunarliðinu og í 19 leikjum á þriðja ári mínu með lið- inu. Lítilsháttar kynntist ég amer- ískum fótbolta, en mest hélt ég mig við körfuna. Að undanfömu hef ég lítið getað leikið vegna bak- veiki. Óskar: Ég var nú lítið í körf- unni, en ég var notaður í ameríska fótboltann sem svonefndur ,,kicker“. Það felst í því að koma inn í leikinn einstaka sinnum og sparka boltanum. Það þótti víst gott að nota íslenska fætur í það, en annað gerði ég ekki. Ég hef sem sagt einbeitt mér að náminu. Að vísu höfum við verið að leika okkur í keppni hjá WMCA (KFUM). Faxi: Hvernig hefur gengið að kynnast fólkinu þarna vesturfrá? Báðir: Það hefur verið vand- ræðalítið. Við búum í litlum bæ, East Stroudsburg í Pennsylvaníu, og fólk er almennilegt, en kannski er ekki eins auðvelt að komast að því og okkur linnst hér heima. Á þessu höfðu þó bræðurnir mis- munandi skoðanir, en við fömm ekkert út í það. Faxi: Hafið þið kynnst einhverj- um Islandsvinum? Óskar: Það eru gömul hjón sem ég bý hjá og þau eru mjög hrifin af íslandi. Þau höfðu komið til Ís- landS fyrir um fimmtán ámm. Þau áttu úrklippur, lopapeysur og mikinn áhuga á landinu. Einnig er ungur kennari við skólann sem er hreint og beint ástfanginn af landinu og hefur hann komið hér og ætlar aftur í sumar. Faxi: Finnst ykkur fólk vita mikið um ísland? Axel: Nei, a.m.k. ekki unga fólkið, en það hefur áhuga. Við höfum t.d. mikið lent í því að flytja fyrirlestra um landið og við höfúm komið okkur upp góðu safni af litskyggnum til að sýna við þau tækifæri. Þessa fýrirlestra höfum við flutt í skólum í ná- grenninum, á Rótarýfundum og víðar. Nu var komið undir lok þessa viðtals og við biðjum þá Óskar og Axel að segja frá fyrirætlunum sínum í náinni framtíð. Óskar sagðist hafa áhuga á að taka fram- haldsnám í New York í kvik- myndun og leikstjórn. Einnig hef- ur hann áhuga á að líta aðeins á Evrópu, en að því loknu lægi strikið beint heim. Axel hefur áhuga á að líta nánar á alþjóðavið- skipti, en hann setur sömuleiðis kúrsinn að Íslandsströndum að því loknu. Faxi þakkar þeim bræðrum við- talið. Við óskum þeim alls hins besta í framtíðinni. Við bendum jafnframt á, að lesendur blaðsins hefðu örugglega gaman af að fá nokkrar línur frá þeim við tæki- færi. h.H. FAXI 21

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.