Faxi - 01.01.1987, Blaðsíða 28
HANDKMTTLEIKUR í KEFLAVÍK
ER Á UPPLEIÐ
Handknattleikur hefur verið
stundaður nokkuð lengi í Kefla-
vík og þar hefur gengið á með
skinum og skúrum. Eftir nokk-
um öldudal, þá hefur gengið all
vel á undanfömum ámm og síð-
asta keppnistímabil var eitt hið
allra besta.
Einn er sá maður, sem mestan
þátt á í því að svo vel hefur tekist
til, en það er Gísli H. Jóhanns-
son. Gísli var formaður í Hand-
knattleiksráði ÍBK á tímabilinu,
en aðrir í stjóm með honum vom
Marel Sigurðsson, Guðbjörg
Ragnarsdóttir, Hafsteinn Ingi-
bergsson, Óskar Ásgeirsson,
Dagmar Róbertsdóttir, Einar Sig-
urpálsson og Margeir Elentínus-
son.
Stjórnin réði Theódór Sigurðs-
son til að þjálfa meistaraflokk og
2. fl. karla en aðrir þjálfarar vom
eftirtaldir:
Mfl. og 2. fl. kvenna Óskar Ás-
geirsson, 3. fl. karla Sigurbjöm
Gústavsson, 4. fl. karla Gísli H.
Jóhannsson, 3. fl. kvenna Freyr
Sverrisson, 5. fl. kvenna Her-
mann Hermannsson og Bergþór
Magnússonog4. fl. kvennaÓlafía
Bragadóttir.
>
Arangur liða í mótum
Hæst ber þar sigur meistara-
flokks karla í 3. deild. Þar með
vann liðið sér rétt til að keppa í 2.
deild og nú stendur yfir keppni
þar, eins og kemur fram síðar í
grein þessari. Stúlkurnar stóðu
sig einnig vel. Þær höfnuðu í
þriðja sæti í 2. deild og áttu oft £
skínandi góða leiki.
Alls sendi Handknattleiksráð 9
lið til keppni í íslandsmótinu og
komust tveir af yngri flokkunum
í úrslit. Það vom kvennaflokkarn-
ir og gekk þeim þokkalega í úr-
slitakeppninni.
Viðurkenningar til
leikmanna
Sú skemmtilega hefð hefur
komist á í hinum ýmsu íþrótta-
Björgvin Björgvinsson skorar úr hraðaupphlaupi enda koma Fylkismenn engum vömum við.
x-^ar sem ég hef rvú skilað af mér ritstjórrv Faxa í
hendur ágætum eftirmanni, Helga Hólm, vil ég þakka öllum.
sem lagt hafa mér lið á undanförnum árum með margvíslegu
efni í blaðið í myndum og greinum um fjölbreytt efni, veitt mér
mikilvægar ráðleggingar og ábendingar. sem hafa komið sér vel
leikmanni í fjölmiðlun.
Þá ber mér að þakka ágætt samstarf við blaðstjórn Faxa og
frábæran stuðning aðstoðarritstjórans. Kristjáns A. Jónssonar,
skólastjóra.
Að lokum færi ég auglýsendum og kaupendum blaðsins
þakkir. en þeir hafa gert blaðinu kleift að koma nokkuð reglu-
lega út í 46 ár.
Jón Tómasson.
28 FAXI