Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1987, Blaðsíða 15

Faxi - 01.01.1987, Blaðsíða 15
tekist að bjarga drukknandi áhöfnum. Sókrates hélt því fram, að ranglátt væri að dæma heilan hóp manna í einu lagi og skipti ekld máli, hvort þeir væru sekir eða saklausir. Efnislega er samtalið hér að framan tilbúningur að sjálfsögðu, en samt ágætt dæmi til skýringar á því hvers vegna þessi málsnjalli og lágvaxni maður með töfraljóm- ann á froskandlitinu markaði svo merkileg tímamót í menningar- sögu Vesturlanda. Hann hélt því ffam, að við ættum ávallt að hlýða rödd skynseminnar, því að allar dyggðir væru fyrst og síðast fólgn- ar í sigri skynseminnar yfir til- finningunum. Sókrates lagði ekki eingöngu áherslu á siðrænt gildi heil- steyptrar hugsunar, heldur varð hann jafnframt fýrstur til að ríða á vaðið og kenna þau fræði að marki. Hann var höfundur þeirr- ar kenningar, að sérhvert hugtak, sem um væri að ræða, bæri að skilgreina og skoða niður í kjöl- inn. Honum lét að hefja mál sitt á þessa leið: ,,Aður en við snúum okkur að sjálfum umræðunum, skulum við gera okkur ljóst, hvað það er í raun og veru, sem við ætl- um að tala um.“ Þetta sama hafði vissulega verið sagt áður í einka- samtölum, en Sólu'ates gerði það að kennisetningu. Fyrir daga Sókratesar höfðu þrjár kynslóðir grískra heimspek- inga rannsakað jörðina og stjörn- urnar allt þetta stórmerka blóma- skeið hyggjuvits og furðu miklla fræðistarfa og þannig lagt hom- steininn að þeirri lærdómsgrein, sem við nefhum náttúmvísindi. Sókrates fór einnig vísindalegar leiðir í rannsóknum sínum á „listinni að lifa“ í mannlegu sam- félagi. Þegar hann var uppi, teygði sig glæstur heimur grískra borgríkja og grískrar menningar umhverfis botn Miðjarðarhafsins, fram með ströndum Svartahafs og alla leið að landamæmm Rússlands, og gríski verslunarflotinn var einráð- ur á öllu Miðjarðarhafi. Undir for- ystu hinnar miklu verslunarborg- ar, Aþenu, höfðu Grikkir um þessar mundir unnið sigur á her- sveitum persneska stórkonungs- ins. Listamenn, skáld og heim- spekingar, stúdentar, vísinda- menn og kennarar streymdu nú til Aþenu úr ölum áttum. Alla leið frá Sikiley komu synir auðmanna til þess að slást í för með Sókratesi á gönguferðum hans og hlýða á sérstæð rökfræði þessa spekings. Og kennsla hans var ókeypis fýrir alla. Hann heimtaði aldrei eyris virði í laun af nokkmm manni. Allir þeir stóm heimspekiskól- ar, sem upphaflega risu af gmnni í löndum Grikkja og síðar í Róma- veldi, áttu rætur sínar að rekja til hans. Platon var lærisveinn hans, og Aristóteles var lærisveinn Platons. Arfleifð Sókratesar hefur flust frá kynslóð til kynslóðar allt fram á okkar dag. Kenningar Sókratesar hefðu máski ekki haft jafn mikil áhrif á umheiminn, ef reyndin hefði ekki orðið sú, að hann varð að deyja píslarvættisdauða vegna skoðana sinna. Það kann að þykja undar- legt tiltæki að dæma mann til dauða fýrir þá sök eina, að hann , ,barðis fýrir ótvíræðri skilgrein- ingu hugtaka“. En það verður ef til vill ekki svo óskiljanlegt, ef við hugleiðum, hvemig fara mundi fýrir mörgum hefðbundnum og viðkvæmum skilningi, væm rök- réttar afleiðingar hans dregnar miskunnarlaust fram í dagsljósið með aðferðum Sókratesar, svo nýstárlegar sem þær vom á þeim tíma. Þótt Sókrates væri einstak- ur friðsemdarmaður í augum ungra vina hans, hljóta þúsundir gamalla og skorpinna skrögga og jafnvel ábyrgðarfullra samfélags- vemdara að hafa álitið hann hættulegan friðarspilli og öfga- mann. 'IVenns konar formlegar ákrærur vom bomar fram gegn honum: hann trúði ekki á guð- ina, og hann ,,spillti æskulýðn- um“. Ekki vitum við nákvæmlega nú til dags, hvað ákærendur Sókra- tesar meintu, en hitt er fullvíst, að ungu fólki þeirra tíma þótti vænt um þennan gamla mann. Ferskar hugmyndir hans höfðu sterkt að- dráttarafl, og hvatningarræður hans um gildi sjálfstæðrar hugs- unar drógu æskuna að knjám hans, en foreldramir óttuðust, að unglingarnir drykkju þar í sig byltingaráróður. Þessi skoðun fékk meðal annars byr í seglin, þegar einn lærisveina hans, ungi skapmaðurinn, Alkibiades, gekk í lið með fjandmönnunum í stríð- inu við Spartverja. Sókrates átti enga sök á því, en Aþenubúar, sem nú bjuggu við margháttað mótlæti, urðu að finna einhvem syndasel. Sókrates var leiddur fýrir al- þýðudómstól skipaðan 501 kvið- dómara og dæmdur til dauða með aðeins 61 atkvæðis meirihluta. Ef til vill hafa einungis fáir af við- stöddum trúað því, að hann yrði í raun og vem líflátinn. Hann hafði lagalegan rétt til að biðja um mild- ari refsingu og krefjast nýrrar at- kvæðagreiðslu. Meira en 30 með- limir dómsins hefðu án efa skipt um skoðun, ef hann auðmjúkur og knékrjúpandi hefði beðist vægðar, eins og þá var siður. En Sókrates vildi ekki víkja frá gmndvallarkenningum sínum. „Það er ein af óhagganlegum skoðunum mínum,“ sagði hann við nokkra lærisveina sína, er heimsóttu hann í fangelsið og reyndu að hvetja hann til að flýja, , ,að lögin beri að hafa í heiðri. Sú skylda hvílir á hverjum góðum þjóðfélagsborgara, eins og ég hefi svo oft sagt ykkur, að hann hlýði lögum borgar sinnar. Ég hefi verið dæmdur til dauða samkvæmt gildandi lögum í Aþenu, og þá er það rökrétt afleiðing af þeim dómsúrskurði, að ég verði að deyja.“ Æstum og angistarfullum vin- um hans hlýtur að hafa mislíkað slík rök. , ,Er þetta ekki að teygja rökrétt- ar afleiðingar helst til langt?“ spurðu þeir. En gamli maðurinn lét ekki bifast. Platon hefur lýst síðasta ævi- kvöldi Sókratesar í samræðubók sinni, Faidon. Sókrates eyddi þessari hinstu nótt, eins og svo mörgum áður, til þess að ræða heimspekileg efni við unga vini sína. Síðasta umræðuefnið var: Er líf eftir dauðann? Spekingnum bar að trúa því, en hann lét spurn- ingunni ósvarað og hlustaði íhug- ull á andmæli vina sinna. Sókra- tes hugsaði skýrt og skipulega til hinstu stundar og lét ekki tilfinn- ingarnar ná tökum á huganum. Hann ræddi óþvingaður um lík- umar fýrir öðm lífi eftir dauðann, þótt hann ætti að deyja að fáum stundum liðnum. Þegar stundin nálgaðist, söfn- uðust vinimir umhverfis hann og reyndu að vera þess albúnir að horfa á ástfólginn lærimeistara sinn tæma eiturbikarinn. Sókra- tes sendi sjálfur eftir honum, í sama mund og sólin hvarf að fjallabaki í vestri. Er fangavörður- inn kom með bikarinn, sagði Sókrates með hægð og rósemi í röddinni: „Þú veist allt um þessa athöfn, og þú ættir að segja mér, hvemig ég á að haga mér.“ „Drekktu fýrst jurtaeitrið, og því næst skaltu rísa úr sætinu og ganga um gólf, uns fætur þínir byrja að lamast“, sagði fangavörð- urinn. „Þá skaltu leggjast fýrir, og lömunin mun halda áfram til hjartans.“ Sókrates fór að þessum ráðum með ískaldri ró. Hann gaf sér að- eins tóm til að átelja vini sína fýrir grátklökkva og kveinstafi, alveg eins og það sem hann aðhefðist væri ekki rétt og skylt. Síðasta hugsun hans snérist um smá- muni, sem hann hafði gleymt. Hann lyfti ábreiðunni, sem huldi andlit hans og sagði: „Kríton, við skuldum Asklepíosi eirm fómar- hana. Borgaðu honum þessa skuld, og gleymdu því ekki.“ Þessu næst lokaði hann augun- um og dró ábreiðuna yfir andlitið á ný, og þegar Kríton spurði hann, hvort hann hefði fleira að segja, svaraði hann ekki. „Þannig andaðist hann“, segir Platon, sem lýsir banastund hans með ógleymanlegum orðum. „Hann — vinur okkar, sem var ráðhollastur, bestur og vitrastur allra þeirra manna, er við höfum kynnst.“ Verslunin NONNI & BOBBI ■ Hringbraut 92 - 230 Keflavík —1 Síllli 92-1580 VÖRUHÚS FJÖLSKYLDUNNAR HÓLMGARÐI Þú verslar bæði stórt og smátt, allt eftir þínum þörfum, en þú verslar örugglega ódýrt. Það sem upp á vantar, fæst við hendina. FAXI 15

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.