Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1988, Blaðsíða 6

Faxi - 01.01.1988, Blaðsíða 6
MINNING Guðmundur I. Guðmundsson fyrrverandi utanríkisráðherra og alþingismaður Reyknesinga Sýslumaður í Gullbringu og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Haftiarfirði. Þegar Guðmundur í. Guðmundsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra og alþingismaður Reyknesinga er kvaddur hinstu kveðju, kem- ur margt upp í huga þeirra, sem lengi áttu þess kost að starfa með honum, en svo varð um marga Suðumesjamenn. Guðmundur var fæddur í Hafnarfirði 19. júlí 1909. Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon skipstjóri og kona hans Margrét Guðmundsdóttir. Guðmundurlaukprófiílögfræði 1934. Með- an hann var við nám fór hann á síldveiðar með föður sínum á sumrin og kynntist því af eigin raun kjörum sjómanna sem hann síðar átti svo eftir að starfa mikið fyrir, sem og verkamenn. Hér verður aðeins vikið að fáu einu. Fjótlega eftir að námi lauk varð Guðmundur lögfræð- ingur Alþýðusambands íslands og í því starfi markaði hann djúp spor sem standa óhögguð enn í dag. Guðmundur varð formaður miih- þinganefttdar sem imdirbjó lögin um stéttar- félög og vinnudeilur 1937—38. Lög þessi voru mjög umdeild í upphafi, einkanlega af kom- múnistum, sem réðust óvægilega að Guð- mundi vegna þessara, ,þrælalega“ eins og þeir kölluðu lögin í upphafi. En lögin standa óbreytt ennþá og þótt nokkrar tilraunir hafi verið gerðar til þess að breyta þeim hefur það ekki tekist. Fyrst og fremst fyrir harða and- stöðu arftaka Kommúnistaflokksins, sem ekki hafa mátt heyra minnst á nokkrar breyt- ingar þessara laga, sem þeir á sínum tíma rægðu Guðmund mest fyrir. Mikil og margvísleg störf hlóðust á Guð- mimd, mörg tengd félags-málum og velferð al- þýðumanna og síðar mál tengd utanríkismál- um, sem urðu hans aðalstarf lengst æfinnar. Fyrstu almenn kynni af Guðmundi hér á Suð- umesjum voru þau, að hann tók að sér að beiðni Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavík- ur að sækja mál á hendur Útvegsmannafélags Suðumesja fyrir sjómenn er vom á vélbátum frá Keflavík og Njarðvík vetrarvertíðina 1940. í samningum við útvegsmenn var ákveðið að velja mætti um ,,premíu“ aflaverðlaun, sem þá vom kr. 1,75 fyrir hvert skippund, eða hlutaskipti. í vertíðarbyijun var séð fram á miklar hækkanir og þá ákvað verkalýðsfélagið að allir skyldu taka hlutaskipti. Þessu mót- mæltu útgerðarmenn og gerðu almennt bak- F. 19. júlí 1909 D. 19. des. 1987 samning við skipshafnir sínar um að vera upp á ,,premíu“. Mál þetta vann Guðmundur ffækilega og færði það sjómönnum á bátum í Keflavík og Njarðvíkum nær 80 þúsund krón- ur, sem skiptist eftir aflahlut þeirra. Þetta var mikið fé í þá daga, því þá var krónan króna. ,,Premía“ á hæstu bátum náði tæpast 2.000 krónum yfir vertíðina. Vorið 1942 þegar velja skyldi ffambjóðanda fyrir Alþýðuflokkinn til Alþingiskosninga í Gullbringu- og Kjósar- sýslu var Guðmundur einróma valinn og komst á þing sem landskjörinn, fyrstur Al- þýðuflokksmanna fyrir kjördæmið eins og það var þá. Þetta þótti mikill sigur því ffam að þeim tíma þótti nánast guðlast að kjósa annan en Ólaf Thors hér um slóðir. Guðmundur var þingmaður okkar, að undanteknum árunum 1949-53, til ársins 1965 þegar hann lét af þingmennsku og gerðist sendiherra. Guð- mundur varð utanríkisráðherra 24. júlí 1956 og gegndi því starfi til 31. ágúst 1965. Sýslu- maður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjar- fógeti í Hafnarfirði varð Guðmundur árið 1945. Oft gustaði um Guðmund, einkanlega þó í sambandi við vestræna samvinnu og vamar- mál, sem oft var deilt hart um. í þeim málum sem öðrum hafði Guðmundur hreinar og klár- ar skoðanir. Vegna þeirra varð hann oft fyrir óvægilegri gagnrýni og persónulegu níði, sem óhjákvæmilega snerti hann og alla fjölskyldu hans djúpt á stundum, þótt ekki flíkaði hann því. Alla tíð stóð Guðmundur fast á íslenskum málstað og með reisn, sem aflaði honum virð- ingar víða um lönd. Það kom í hlut Guðmund- ar sem utanríkisráðherra, meira en nokkurs annars, að marka störf og stefnu í baráttunni fyrir útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Sem þing- maður okkar kom hann fjölda mála í höfn. Hann útvegaði fyrstu peningana til þess að steypa Reykjanesbrautina, hans verk var stofnun Keflavíkurverktaka og svo mætti lengi telja, verk sem við njótum góðs af enn í dag. Það var gott að vinna með Guðmundi, hann var fljótur til ákvarðanatöku og fádæma ffam- sýnn svo sem dæmin sanna. í einkalífinu var Guðmundur mikill gæfu- maður, 19. september 1942 giftist hann eftir- lifandi konu sinni Rósu Ingólfsdóttur. Heimili þeirra var einstaklega fallegt og aðlaðandi, hlýjan geislaði á móti þeim, sem þar komu og ekki gat farið ffam hjá manni hversu innilegt samband þeirra var. Þau eignuðust fimm drengi, en einn lést ungur. Nú þegar leiðir skilja viljum við þakka Guð- mundi órofa tryggð og vináttu ffá því fyrst hann hóf störf fyrir Suðumesjamenn. Minn- ingin um hreinskiptinn og góðan dreng mun lengi lifa. Rósu og afkomendum þeirra sendum við samúðarkveðjur. Guð geymi þau og styrki. Ólafar Björnsson og Ragnar Gudleifsson. 6 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.