Faxi - 01.01.1988, Blaðsíða 24
ÍÞRÓTTIR
Að þessu sinni munum við fjalla
um handbolta og fimleika. í hand-
boltanum hafa skipst á skin og
skúrir, en mikill baráttuhugur er í
leikmönnum. Fimleikafélagið hefur
nýlega haldið aðalfund sinn og við
skyggnumst í skýrslur og reikn-
inga.
Efst í deildinni
Að íslandsmótinu í handbolta
hálfnuðu er karlalið ÍBK í efsta sæti.
Handknattleikur nýtur nú á ný vax-
andi vinsælda á íslandi einkum
vegna góðrar frammistöðu lands-
liðsins. Er skemmst að minnast
góðrar frammistöðu þess í Heims-
bikamum sem leikinn var í Svíþjóð
á dögunum, en þar voru sjálfir
heimsmeistaramir af velh lagðir.
Góður áhugi hefur verið hjá hand-
boltafólki í Keflavík og em menn
staðráðnir í að hefja þá íþrótt til vegs
og virðingar.
Einn af þeim mönnum sem mikið
hefur starfað að þeim málum er
Marel Sigurðsson og hefur Faxi
beðið hann að fjalla í stuttu máh um
það sem hefur gerst á þeim víg-
stöðvum.
Góður lesandi þegar þessar línur
em ritaðar er handboltavertíðin
hálfnuð og staða hinna ýmsu flokka
nokkuð óljós, en ég ætla að fara
gróflega yfir það helsta sem gerst
hefur fram að þessu. Mfl. karla
leikur í 3ju deild í ár undir stjóm
Hauks Ottesen þjálfara frá Reykja-
vík. Þegar mótið var hálfhað var hð-
ið eitt í efsta sæti deildarinnar með
einu stigi meira en næsta lið og er
það vel viðunandi. Strákamir settu
sér eitt takmark fyrir mótið, en það
var að vinna sér sæti aftur í annarri
deild að ári en hðið lék í þeirri deild
síðastaleiktímabil. Keflavfkurliðið í
ár er mjög sterkt það er skipað ung-
um leikmönnum sem eiga vafalaust
eftir að gera góða hluti í framtíðinni
því meðalaldurinn er aðeins 20,6 ár.
Eins og áður sagði er liðið í mjög
góðu formi í ár sem sést best á því að
liðið sigraði í Bikarkeppni Suður-
nesja annað árið í röð á mjög svo
glæsilegan hátt, en þar léku bæði
U.M.F.N. og Reynir sem leika í ann-
arri deild og em í efri hluta deildar-
innar þar. Mfl. kvenna er nú í 3ja til
4ða sæti í annarri deild kvenna og
verður að segjast eins og er að sá ár-
angur er ekki eins og menn höfðu
vonast eftir miðað við hvað liðið hef-
ur marga góða einstaklinga í sínum
röðum. Það er eins og stúkumar nái
ekki að stilla saman strengi sína
nema í einum og einum leik, því inn
á milh koma mjög slakir leikir hjá
þeim, það vantar meiri stöðugleika
í leiki þeirra. En Gísh Jóhannsson
þjálfari þeirra og stúlkumar em
staðráðin í því að gera betur eftir
áramótin og víst er að það em marg-
ir leikir eftir ennþá og því engin
ástæða til að örvænta um að stúlk-
umar nái ekki sama takmarki og
strákamir það er að vinna sér sæti í
efri deild en þær em í núna, það er
sæti í fyrstu deild á næsta ári. Þessir
tveir flokkar okkar em í mestu bar-
áttunni ár, báðir ætla upp um deild.
Báðir flokkar hafa alla burði til að
ná þessu takmarki en til þess þurfa
þeir stuðning frá áhorfendum sem
því miður hafa látið sig vanta á leiki
þeirra til þessa í vetur. Vil ég nú
vekja athygli þeirra sem áhuga hafa
á, að H.R.K. tók þá ákvörðun að
selja ekki inná leiki sína í vetur hjá
neinum flokk. Því er ókeypis á alla
leiki hjá Í.B.K. í Keflavík í vetur og
ætti fólk því að láta sjá sig á leikjum
hðanna nú eftir áramót og hvetja hð-
ið í þeirri baráttu sem framundan er
í vetur og hjálpa þeim þannig til að
ná settu marki. Þá væri gaman að
sjá foreldra mæta meira hjá yngri
flokkunum og hvetja syni sína og
dætur í leikjunum, en í yngri flokk-
unum hefur árangurinn ekki verið
nógu góður. Það má eflaust rekja þá
ástæðu til þess að jafhaldrar þeirra
á Reykjavíkursvæðinu hafa öllu
fleiri æfingatíma en unglingamir
hjá okkur, samt em margir mjög
efnilegir einstaklingar sem ættu
með réttri kennslu og þjálfun að
getanáðlangtíþessariíþrótt. Þósvo
að árangur í yngri flokkunum sé
ekki nógu góður er einn flokkur
sem staðið hefur sig frábærlega
fram að þessu en það er 4. flokkur
stúlkna undir stjóm Freys S.
Sverrissonar, þær gerðu sér lítið fyr-
ir og sigmðu í deildarkeppni 4ða
flokks sem fram fór í Keflavík í vet-
ur og urðu þar með deildarmeistar-
ar í það skiptið. Það sem gerir ár-
angur þeirra eftirtektarverðari er að
þama léku þær gegn jafnöldmm
sínum frá ýmsum stórliðum af
höfuðborgarsvæðinu, þær eiga eftir
að leika í nokkmm keppnum eftir
áramót og em gallharðar á því að
vinn íslandsmótið í sínum flokki og
víst er að þær eiga að geta það, því
þær em allar mjög efnilegar og eiga
eftir að láta mikið að sér kveða í
framtíðinni. Góðir lesendur það
hefur verið stiklað á stóm um það
sem gerst hefur í handboltanum nú
fyrir áramót, en það er mikið eftir
og margir hörkuspennandi leikir
eiga eftir að fara fram í Keflavík áð-
ur en yfir líkur. Agæti lesandi, því
ekki að kíkja upp í hið glæsilega
íþróttahús okkar Keflvíkinga næst
þegar leikur er hjá Í.B.K. og hvetja
heimamenn til sigurs. Handknatt-
leiksráð Keflavíkur býður ykkur öll
velkomin til leiks ykkur að kostnað-
arlausu.
Mikill áhugi og
uppgangur hjá
fimleikafélaginu
FK hefur nú starfað í þrjú ár. A
aðalfundi þann 9. nóv. sl. kom fram
að fjárhagur félagsins er í góðu lagi,
rekstrarafgangur nam kr. 171.231.-
oghrein eign kr. 293.665.- í skýrslu
félagsins er stiklað á stóm um starf-
ið á árinu og fer skýrslan hér á eftir.
Stjóm EK. var þairnig
skipuð 1986 -1987.
Formaður:
Margrét Einarsdóttir.
Aðalstjóm:
Guðlaug B. Matthíasdóttir varafor-
maður, Jóhanna Gunnarsdóttir
gjaldkeri, Ingibjörg Oskarsdóttir
ritari, Laufey Kristjánsdóttir með-
stjómandi.
Ung hnáta að gera œfingar u ndir stjórn
Kiargrétar Gunnluugsdóttur.
24 FAXI