Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1988, Blaðsíða 22

Faxi - 01.01.1988, Blaðsíða 22
Skúli Magnússon: Sjóslysaannáll Keílavíkur 25» hluti .. r «»» : . ,-y Flutningaskipid Katla. 1964 Tvö skip hætt komin í Keflavíkurhöfn Skömmu fyrir hádegi, föstudag- inn 31. jan. 1964, var lokið við að skipa út í m.s. Kötlu 9.721 tunnu af saltsíld. Alls var farmurinn þrettán hundruð lestir. Katla lá við hafnar- garðinn. Klukkan 11,35 voru land- festar leystar og skipið sigldi frá garðinum á hægri ferð. En nær samstundis stöðvaðist vélin og komst ekki í gang. Stafaði það af lofti sem komst á eldsneytiskerfi vélarinnar. Austan strekkingur var á, fimm vindstig, og stóð vindur upp Prentum allar gerðir af eyðublöðum fyrir tölvur. Reynið við- =skipt.in Grágás hf. Vallargötu 14 - Keflavík Sími 11760, 14760 ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA áhöfnina. Lánú Katla f löt fyrir vindi. Hefur hún því enn ekki verið komin fyrir garðsendann. Skipið hóf strax að reka undan vindi, en stutt er upp í fjöruna. Vír var strax kastað frá Kötlu aftanverðri og var hann festur við garðinn. En vírinn slitnaði. Um leið voru bæði akkeri skipsins látin falla og gátu haldið framhluta skips- insfráfjörunni. í sama mund kenndi skipið grunns að aftan, rak hælinn i grjótið. Var stefni Kötlu þá komið i stefnu á garðsendann. Vélþáturinn Eldey, lá áður utan á Kötlu við garðinn, en færði sig er Katla fór frá. Eldey var með vél í gangi. Skiþverjar voru um borð í beitningaskýli, að undirbúa róður. Á bryggjunni fylgdust menn með því sem fram fór. Dreif lika að fjölda manns sem fylgdist með ofan af bakkanum. Kölluðu nú nærstaddir menn til Eldeyjarmanna og bentu á hvernig komið væri. Leystu þeir strax festar og bökkuðu Eldey á fullri ferð út að Kötlu, sem nú lá með skut í fjöruborði en stefni til hafs. Liðu vart meira en fjórar til fimm mínútur frá því Eldey lagði úr höfn þar til taug var komin á milli skip- anna. í fjarveru skipstjóra, var stýri- maður Eldeyjar, Henrý Kristjáns- son, um þorð. Fyrsti vélstjóri, Haflið S. Kristjánsson, var á leið niður á bryggju, er Eldey bakkaði frá. Lóðs- báturinn flutti hann yfir í Eldey. Er Eldey bakkað að Kötlu, hentu Kötlumenn kastllnu með vlr, yfir til Eldeyjar, en línan slitnaði er byrjað var að draga. Nær samstundis hentu Kötlumenn nýrri nælon- trossu yfir I Eldey. Náðist hún og var fest. Setti Eldey nú á fulla ferð, en ekki hreyfðist Katla. Var enn bætt hestöflum við vélina og mjakaðist Katla þá út. Síðan var kraftur vélar- innar aukinn til hins ýtrasta. Fór Katla þá að smá mjakast úr fjörunni. Eldey togaði út afturenda Kötlu upp í vindinn. Var þetta mun erfiðara, en ef skipið hefði verið tómt. Þegar óhappið átti sér stað var vélbáturinn Vilborg KE 51, nýlega komin til hafnar. Vél bátsins var í gangi og fór skipstjórinn, Grétar Helgason, óumbeðið, Eldey til að- stoðar. Enda virtist um tíma svo að Eldey tækist ekki að draga Kötlu út. Er Vilborg kom að Kötlu aftanverðri, köstuð Kötlumenn taug yfir í Vil- borgu. Hugleiddi Grétar í fyrstu, að toga í með Eldey, en sá að þess þurfti ekki. Fór Vilborg þá aftur upp að þryggju og taugin var fest við bryggjuna. Aftur hélt Vilborg út og beið nú átekta við stefni Kötlu. Var nú skammt í útfallið og mátti björg un Kötlu ekki dragast öllu lengur. Er Grétar sá, að skrúfa Kötlu var komin í gang, hélt hann aftur að bryggju. Er Katla var laus hófu menn þar um borð, að draga skipið i átt að garðinum á tauginni, sem Vilborg flutti þangað. En ekki hafði vindan á Kötlu undan togum Eldeyjar, sem nú var komin á fulla ferð. Var taug- inni þá sleppt frá garðinum. Var Eldey nú búin að snúa Kötlu og voru bæði skipin komin út fyrir garðinn. Þá var kl. 11,58 og vélar Kötlu komnar í gang. Björgunin sjálf tók því rúmlega tuttugu mínútur. Sneri Katla nú við með aðstoð Eld- eyjar og hélt þegar til Akraness. Þá varkl. 12,11. Vildi þásvotil, aðtaug- in á milli skipanna, losnaði frá Kötlu og lenti í skrúfu Eldeyjar, áður en Eldeyjarmenn gátu losað hana hjá sér. Fór taugin í skrúfu Eldeyjar og rak nú bátinn í átt að landi. Hélt Katla áfram ferð sinni, en lét Kefla- vlkurradíó vita hvernig komið var. Vilborg var með vél í gangi, hélt þegar út og dró Eldey að bryggju. Síðar kom í Ijós, að Katla var óskemmd. Andri Heiðberg, kafari, skoðaði skipið, og fann einungis nokkrar dældir á kjölplötu að aftan- verðu. Aldrei sannaðist hvort þær væru vegna strandsins. Síðar höfðaði Jóhannes Jóhann- esson, mál fyrirsína hönd og áhafn- ar Eldeyjar, fyrir Sjó- og verslunar- dómi Keflavíkur, gegn Eimskipafé- lagi Reykjavíkur h.f., sem átti Kötlu. Var málið dómtekið 28. janúar 1965. Krafðist Jóhannes greiðslu björgunarlauna. En gagnaðili taldi að hér væri um aðstoð að ræða. Krafa Jóhannesar var m.a. byggð á hinu háa matsverði Kötlu og farms þess, sem i henni var við strandið. 1 Eldey KE-37. 22 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.