Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1989, Side 3

Faxi - 01.03.1989, Side 3
40 ára afmæli KEFLAVÍ KUR Þann 1. apríl s.l. héldu Keflvíkingar hátíðlegt 40 ára afmœli bœjarins. Dagana á undan hafði verið nokkur hláka og snjórinn sem hafði gert mörgum íbúum bœjarins gramt í geði að undanförnu var smátt og smátt að hverfa. Þá hafði að vísu komið ýmislegt upp undan snjónum sem síst aföllu var til þess fallið að fegra umhverfið. Höfðu því starfsmenn bœjarins og íbúarnir tekið til hendinni við að þrífa og snyrta. Því var það mjög velkomið, þegar aftur tók að snjóa nóttina fyrir afmœlið og þegar íbúarnir vöknuðu um morguninn blasti við hið fegursta veður og fannhvít mjöllin sem lá yfir öllu gafbœnum hreinan og fallegan blœ. Eins og greint var frá í síðasta blaði Faxa, þá var margt gert til að minnast afmælisins. Verður nú hér á eftir sagt frá því helsta sem á boð- stólum var. Listaverkasýning í Fjölbraut Þann 19. mars var opnuð í Fjöl- brautaskólanum sýning á vegum Listasafnsnefndar Keflavíkur. Til sýnis voru 41 af þeim listaverkum sem eru í eigu Keflavíkurbæjar. Þar mátti sjá málverk eftir nokkra af mestu meisturum landsins, s.s. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Erró, Asmund Jónsson o.fl. Þá voru sýnd verk 19 Keflavíkinga, bæði málverk og höggmyndir. Þess utan var sýn- ing á verkum bama úr Myllubakka- skóla. Sýningin var listavel sett upp og endurspeglaði þá listhefð sem skapast hefur í bænum, sérstaklega með tilkomu Baðstofunnar, fyrst undir leiðsögn Erlings Jónssonar og nú síðast undir handleiðslu Eiríks Smith. Ekki verður hér farið nánar út í að lýsa sýningunni, því þá hæfni sem til þarf skortir þann er þetta rit- ar. Samt má segja frá því, að mörg verka heimamanna sómdu sér fylli- lega meðal meistaranna. Var þetta upphaf hátíðarhaldanna sérlega glæsilegt og nefndinni til sóma. Hátíðarfundur bœjarstjórnar Bæjarstjóm Keflavíkur kom saman á Flughóteli til hátíðarfundar klukkan tíu að morgni sjálfan af- mælisdaginn. Aðeins eitt mál var á dagskrá, að minnast afmælisins og kjósa nýjan heiðursborgara. Forseti bæjarstjómar, Anna Margrét Guð- mundsdóttir, stýrði fundinum og minntist afælisins. Ennfremur lagði hún fram tillögu, um að Valtýr Guð- jónsson, fyrrverandi bæjarstjóri Keflavíkur, yrði kjörinn heiðurs- borgari. Var Valtýr síðan kjörinn annarheiðursborgari Keflavíkur. Sá hinn fyrri er Ragnar Guðleifsson. Fer hér á eftir ávarp og greinargerð Margrétar, er hún flutti við þetta tækifæri. í dag em 40 ár liðin frá því að Keflavík fékk kaupstaðarréttindi. Lög um bæjarstjórn Keflavíkur vom samþykkt á Alþingi íslendinga þann 22. mars 1949 og tóku gildi 1. apríl sama ár. Til bráðabirgða var fyrst um sinn ákveðið að hrepps- nefnd Keflavíkurhrepps færi með stjóm kaupstaðarins eða þar til sveitarstjómarkosningar hefðu far- ið fram að ári liðnu. Hreppsnefnd sú sem sat við völd þá var skipuð þeim: Sæmundi G. Sveinssyni, Ragnari Guðíeifssyni, Jóni Tómas- syni, Valtý Guðjónssyni, Elíasi Þor- steinssyni, Ólafi E. Einarssyni og Valdimar Bjömssyni. Ragnar Guð- leifsson gegndi starfi oddvita og samkvæmt bráðabirgðalögum skyldi oddviti gegna störfum bæjar- stjóra. Fyrstu sveitarstjómarkosn- ingar eftir gildistöku laganna fóm hins vegar fram 29. janúar 1950. Nýkjörin bæjarstjóm hélt sinn fýrsta fund 22. feb. 1950. Fyrstu bæjarstjómina skipuðu þeir Ragnar Guðleifsson, Valtýr Guðjónsson, Steindór Pétursson, Guðmundur Guðmundsson, Jón Tómasson, Ingimundur Jónsson og Ólafur Þorsteinsson. Fyrsti bæjarstjóri okkar Keflvíkinga var Ragnar Guð- leifsson en Valtýr Guðjónsson var fýrsti forseti bæjarstjómar svo og formaður bæjarráðs. Frá því að fyrst var kosið til bæjar- stjómar árið 1950 hafa bæjarbúar kosið 10 sinnum fulltrúa í bæjar- stjóm. Þau 40 ár sem liðin em hafa 38 einstaklingar átt sæti í bæjar- stjóm þar af 4 konur. Frá upphafi og fram til kosninganna 1966 vom bæj- arfulltrúar 7 en þá var þeim fjölgað í 9 og hefur svo haldist fram til dags- ins í dag. Mig langar til þess að geta sérstaklega þeirra manna sem hvað lengst hafa setið í bæjarstjóm fýrir okkur Keflvíkinga en það em þeir: Ragnar Guðleifsson, Valtýr Guð- jónsson, Tómas Tómasson, Ólafur Bjömsson og Hilmar Pétursson. Þessir heiðursmenn hafa lagt sitt að mörkum ásamt öðmm bæjarfull- trúunum að gera bæinn okkar að því sem hann er í dag — góður bær. Á tímamótum sem þessum er okkur hollt aö staldra við og líta um öxl yfir farinn veg. Ýmislegt hefur á dagana drifið þessi 40 ár sem of langt mál væri að rekja hér í stuttu ávarpi. Sögu bæjarins rifjar hver bæjarbúi með sjálfum sér enda er saga bæjarins umfram allt saga mannlífs í bænum - saga þess fólks sem bæinn hefur byggt - saga sjó- manna og fiskverkunarfólksins - saga þeirra er mddu brautina. Stórstígar breytingar hafa átt sér stað, Keflavík hefur gjörbreyst hvað varðar atvinnuhætti og afkomu. Þróunin hefur verið ör, uppbygg- FAXI 79

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.