Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 36
SKÓLAR
A
SUÐUR-
NESJUM
Kennarar í Keflavík
til 1904
Claus Mohr (1761-1830). Heimilis-
kennari 1817,1818,1827,1828 og
1829.
Geir J. Bachmann: Heimiliskennari
1832-35.
Ögmundur Sigurðsson Sívertsen:
Heimiliskennari 1835-36.
Jón Hallsson: Heimiliskennari
1836-37.
Charles Emest Jacobsen: (1819— )
Heimiliskennari 1841-43.
Eggert Sigfusson: . (1840-1908)
Heimiliskennari 1863-65.
Kristín Egilsdóttir: (1864— )
Heimiliskennari 1885—86.
Guðrún Jónsdóttir: (1865- )
Heimiliskennari 1886-87.
Th.H. Thomsen: (1838- )
Heimiliskennari 1886—87.
Magnús Bjamarson: (1861— )
Baraaskólakennari 1887-88.
Guðlaug Arasen: (1855-1936)
Heimiliskennari 1887-89.
Bamaskólakenn ari 1889-90.
Guðrún Sveinsdóttir Skúlasen:
(1865- ) Heimihskennari
1889-90 og 1891-93.
Pétur Guðmundsson: (1858-1922)
Bamaskólakennari 1890—93.
Einar Þórðarson: (1867—1909)
Heimiliskennari 1890-91.
Sigurður Jónsson: (1872-1936)
Bamaskólakennari 1893-95.
Páll Hjaltalín Jónsson: (1871—1942)
Bamaskólakennari 1895—96.
Jens Pétur Thomsen: Bamaskóla-
kennari 1896—97.
Júlíus Snæbjöm Petersen: (1872—
1946) Bamaskólakennari 1896—
97 og 1900—05. Sveitakennari í
Keflavík 1898-99.
Helgi Guðmundsson: (1873-1938)
Bamaskólakennari 1897—98.
Jón Þorvaldsson: (1876—1938)
Heimiliskennari 1897—98.
Einar Guðmundur Þórðarson:
(1863-1930) Heimiliskennari
1897— 98. Bamaskólakennari
1898- 1900.
Jón Jónsson: (1868-1947) Bama-
skólakennari 1903—04.
Marín Jónsdóttir: Bamaskólakenn-
ari 1904—05.
Niðurlag
Árið 1872 taka fyrstu skólamir á
Suðumesjum til starfa þ.e. í Garði
ogá Vatnsleysuströnd. Fljótlega eft-
ir það kemur vísir að skólahaldi í
Kcflavík eða 1876. í Keflavík er svo
óreglulegt skólahald allt fram til
1889, en þá hefst með vissu fast
skólahald.
Skólahaldið fyrir 1889 fór líklega
fram í leiguherbergjum, en 1889 fær
skólinn leigða aðstöðu í nýju húsi
stúkunnar Vonarinnar. Það segir í
einni skýrslu skólans frá þessum
ámm, að húsnæðið hafi verið mjög
gott. Haustið 1897 flytur skólinn í
sitt eigið húsnæði að Ishússtíg 3, og
var þar enn 1904.
Kennslubækur sem notast var við
fyrstu árin, vom oft af skomum
skammti og oft virðast þær komnar
ffá kennaranum. Sama er að segja
um kennsluáhöld, en þau vom eng-
in fyrstu ár skólans, en kennaramir
áttu eitthvað sjálfir. En síðar keypti
skólinn öðm hvom ýmis kennslu-
gögn og fór þetta stöðugt batnandi
og einnig er ljóst að kennslubókum
á boðstólum landsins, hefur fjölgað
um aldamótin.
Skólahald samhliða föstu skóla-
haldi var til staðar í Keflavík.
Sveitakennsla fór ffam í Keflavík
1898—99, fyrir böm sem ekki höfðu
efni á að ganga í reglulega skólann
og er það eflaust vegna aflaleysis,
sem átti sér stað á Suðumesjum
þessi ár.
Einkakennsla var einnig í Keflavik
eftir að reglulegi skólinn tók til
starfa, enda var ekki skylda að
sækja skólann. Og Jóna Sigurjóns-
dóttir var 1903-04 með einkaskóla
fyrir stúlkur.
Með útdrætti þessum fylgir
hvorki tilvitnunar- né heimildar-
skrá. Þeir sem áhuga hafa á að
kanna sannleiksgildi ritgerðarinnar
geta hins vegar nálgast hana á bóka-
safni Kennaraháskóla íslands en
heiti hennar er „Ástand og þróun
fræðslumála í Keflavík fram til
1904.“
Það er von okkar sem þessa rit-
gerð tóku saman að fólk hafi haft af
henni gagn og gaman.
Kristinn Hilmarsson.
Framhald í næsta blaði
BÍLASALAN
HÚSINU
TRAUST OG HEIÐARLEG BÍLASALA.
VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR BÍLA
Á SÖLUSKRÁ.
Miöstöö bílaviöskipta
d Suöurnesjum
112 FAXI