Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 26
Stórkosdegur
árangur
körfuknatt-
leiksfólks
jon rsr. og /\xel Nikulússon fagna langþrúðum sigri. Þeir hafa báðir beðið hans (
um tfu ár. Máltœkið góða — þolinmæðin þrautir vinnur allar — sannar sig einn
ganginn enn.
Keppnistímabilið 1988—1989 verður örugglega lengi í minn-
um kaft hjá unnendum körfuknattleiks á Suðurnesjum. Enda
þótt árið á undan hafi veriðgott, þá slœr þetta keppnistímabil
allt annað út. Þá urðu NJarðvíkingar bikarmeistarar og ÍBK
stúlkumar unnu bœði Islandsmót og bikarinn. Þá unnust
fjöldinn allur af titlum í yngri flokkum pilta og stúlkna. En
lítum nú aðeins nánar á árangurinn í ár.
Reynir í úrvalsdeild
í vetur hafa lið ffá Suðumesjum
verið í toppbaráttunni í ðllum flokk-
um. Við skulum byija á því að líta á
fyrstu deildina. Lið Sandgerðinga
sigldi lygnan sjó lengi vel framan af.
Aðaldriffjöður liðsins er Sveinn
Gíslason og auk hans eru í liðinu
nokkrir ungir Sandgerðingar. Þá
höfðu þeir fengið til liðs við sig
ágæta leikmenn úr nágrannabyggð-
unum. Fyrstan skal nefna Jónas
Jóhannsson, miðheijann fraekna úr
UMFN. Hann bæði lék með liðinu
og þjálfáði það. Jón Guðbrandsson
og Jón Benediktsson úr ÍBK og Ell-
ert Magnússon úr UMFN léku einn-
ig með liðinu. Þegar líða tók á vet-
urinn vann Reynir hvem sigurinn á
fætur öðmm og stóð að lokum uppi
sem sigurvegari. Með sigri sínum
ávann liðið sér sæti í Úrvalsdeild á
næsta keppnistímabili og verður
þar með fjórða liðið af Suðumesjum
sem þar leikur. Bætist þá enn einn
góður heimavöllur við í körfuna, því
bestu leikimir hafa verið heimaleik-
ir Suðumesjaliðanna.
Kvennalið ÍBK í sérflokki
ÍBK stúlkumar endurtóku sama
leikinn og urðu bæði íslands- og
bikarmeistarar í meistaraflokki.
Þær vom með yfirburðalið og unnu
íslandsmótið með miklum ágætum.
í bikarúrslitunum lenti liðið í
nokkrum ógöngum gegn ágætu liði
IR. Við skulum aðeins líta nánar á
þann leik. Hann fór ffam í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík fimmtu-
daginn 30^ mars s.l. Nokkra fyrir
leikinn hafði Anna María Sveins-
dóttir, snúið sig nokkuð illa og gekk
því varla heil til skógar. Hún hóf þó
leikinn með félögum sínum. Þegar
sex mínútur vom liðnar af leiknum
féll Anna í gólfið eftir baráttu undir
körfu ÍR og var hún studd af leik-
velli og kom ekki aftur inná fyrr en
um miðjan síðari hálfleik. Þremur
mínútum síðar lenti Björg Haf-
steinsdóttir í samstuði við eina ÍR-
stúlkuna og var hún borin af
leikvelli. Nú vom góð ráð dýr. TVær
bestu stúlkumar famar af vellinum
og andstæðingamir í miklum ham.
En þá kom í ljós styrkur liðsheild-
arinnar. Þær stúlkur sem nú urðu
að bera hita og þunga leiksins vom
þær Kristín Blöndal, Marta Guð-
mundsdóttir, Bylgja Sverrisdóttir,
Maigrét Sturlaugsdóttir, Eva
Sveinsdóttir og Svandís Gylfadóttir.
Segja má að þær hafi tvíeflst við
mótlætið. Sérstaklega átti Marta
góðan leik. Hér lék hún sennilega
sinn besta leik ffam til þessa. Hún
skoraði í allt 29 stig, var geysiömgg
í vítaköstum, tók fjölda frákasta og
barðist eins og ljón í vöminni.
Margrét átti einnig ffábæran leik.
Skoraði hún þriggja stiga körfur á
þýðingarmiklum augnablikum og
var einna hörðust í vamarleiknum.
Kristín stóð sig mjög vel í hinu erf-
iða hlutverki leikstjómanda.
Eftir miðjan síðari hálfleik komu
þær Anna María og Bjöig aftur í
leikinn, Björg var þó varla nema á
annarri löppinni. Þær sýndu á síð-
ustu mínútum leiksins, hversu ffá-
bærar þær em. Bjöig sendi hveija
stoðsendinguna á eftir annarri til
Önnu inn á miðjuna og Anna skor-
aði eða fékk vítaköst. Það ríkti mikil
ánægja hjá liðinu og fjölmennum
hópi stuðningsmanna, þegar loka-
flautan gall við og ÍBK stóð uppi
sem sigurvegari. Lokatölur leiksins
urðu 78 stig gegn 69. Anna María
var síðan kjörin besti leikmaður ís-
landsmótsins.
Njarðvík varði
bikarmeistaratitilinn
Þegar besti maður UMFN undan-
farin ár, Valur Ingimundarson,
gekk til liðs við Tindastól í haust, þá
vom margir sem spáðu UMFN mis-
jöfnu gengi. Ekki rættust þessar
spár, því Njarðvík vann sinn riðil í
úrvalsdeildinni með miklum yfir-
burðum. Samt fór það svo, að í
sjálfri úrslitakeppninni fataðist
þeim flugið og þeir töpuðu fyrir KR
og misstu af lestinni annað árið í
röð. Þeir léku aftur á móti til úrslita
í bikamum og þar unnu þeir ÍR í
framlengdum leik með 78 stigum
gegn 77. Að loknum mótum vetrar-
ins var Tfeitur Örlygsson kjörinn
leikmaður ársins og var hann vel að
þeim titli kominn, því hann er frá-
bær körfuknattleiksmaður og hefur
allar hliðar leiksins á sínu valdi.
Verður gaman að fylgjast með hon-
um í ffamtíðinni.
En UMFN vann einnig til annarra
titla á íslandsmótinu. Fyrir nokkr-
um ámm var tekin upp keppni í
svonefndri Lávarðadeild. Þar leika
menn sem em orðnir 30 ára og
Sigurður Hjörleifsson, landsliðsþjálfari
kvenna, afhendir Kristínu Blöndal
sigurlaunin ( 2. flokki. Silfurliðið frú
Njarðvík klappar sigurvegurunum lof (
lófa.
102 FAXI
eldri. Þessa deild vann UMFN með
nokkrum yfirburðum. Þama má sjá
marga þá leikmenn sem hafa gert
garðinn frægan með liði UMFN á
árum áður. Ég nefni Gunnar Þor-
varðarson, Þorstein Bjamason og
Stefán Bjarkason. Þá vann UMFN
einnig íslandsmótið í 1. fl. karla og
6. flokki pilta. UMFN átti síðan
nokkra flokka í bikarúrslitum yngri
flokkanna.
Úr fyrsla úrslitaleiknum við KR. ívar Webster, besti leikmaður KR-inga ber höfuð
og herðar yfir andstœðinga sína (orðsins fyllstu merkingu. Sigurður Ingimundar-
son má sín hér lítils. Áhorfendur létu sig ekki vanta og áttu stóran þátt (sigri IBK.
Grindvíkingar í stórsókn
Mikill uppgangur hefur verið í
körfunni í Grindavík á síðustu ár-
um. Meistaraflokkur karla stóð sig
vel og munaði ekki nema hárs-
breidd að liðið kæmist í úrslita-
keppni úrvalsdeildar. í liðinu em
nokkrir leikmenn sem hafa sýnt
miklar framfarir í vetur og hafa
Guðmundur Bragason og Jón Páll
Haraldsson verið valdir í landsliðið
sem leikur á Polar Cup. Guðmund-
ur er sennilega sterkasti miðherji
landsins um þessar mundir.
Yngri flokkar UMFG hafa og náð
mjög góðum árangri í vetur og tveir
flokkar urðu íslandsmeistarar, þ.e. í
Minni-bolta y. fl. og í 9. fl. pilta.
ÍBK loks íslandsmeistarar
í meistarflokki karla
IBK lék mjög vel í úrvalsdeildinni
í vetur og sigraði í sínum riðli. I úr-
slitakeppninni lék liðið fyrst gegn
Val og sló þá út í tveimur leikjum.
Úrslitaleikimir vom gegn KR og
verða þeir eflaust lengi í minnum
hafðir. KR hafði þá nokkmm dög-
um áður slegið UMFN úr úrslitun-
um og vom í mjög góðu formi. Léku
þeir mjög stífa pressuvöm sem kom
Kefivíkingar fagna íslandsmeistaratitlinum. Frá vinstri eru þeir Egill Viðarsson, Magnús tíuðfinnsson, Jón Kr. G(slason,
Alhert Óskarsson og Einar Einarsson. Jón hampar bikamum góða.
Bikarmeistamr ÍBK í 2. flokki kvenna — ekki hin klassíska uppstilling héma. Frá vinstri Ástrún Viðarsdóttir, Karen Sœvars-
dóttir, Sunneva Sigurðardóttir, EKnborg Herbertsdóttir, Eva Sveinsdóttir, Hilma Hólm, Kristín Blöndal, Jana Gudmundsdóttir
og Svanbjörg Jónsdóttir.
andstæðingum þeirra ævinlega í
mikinn vanda. Fyrsti leikurinn var
leikinn í Keflavík og vann ÍBK í jöfn-
um og spennandi leik með 77 stig-
um gegn 74. Annar leikurinn var
leikinn fyrir troðfullu húsi í íþrótta-
húsi Hagaskólans í Reykjavík.
Meirihluti áhorfenda vom Suður-
nesjabúar og komust færri að en
vildu. Þetta varð mikill baráttuleik-
ur sem KR vann. Það þurfti því
þriðja leikinn og fór hann fram í
Keflavík. Mikill áhugi var fyrir
þessum leik og vom um 1400 áhorf-
endur í húsinu. Hefur þar aldrei áður
verið svo mikill fjöldi á leik, enda
var stemmningin í húsinu geysigóð.
Ríkissjónvarpið var með beina út-
sendingu frá leiknum og var mikið
horft á hana um allt land.
Þessi leikur var mjög skemmtileg-
ur og spennandi. ÍBK lék afburða-
vel í fyrri hálfleik og leiddi með 15
stigum í leikhléi — 45-30. KR liðið
barðist mjög vel og um miðbik
seinni hálfleiks var munurinn orð-
inn aðeins eitt stig - 65-64. Var þá
farið að fara um stuðningsmenn
ÍBK, því á þessu tímabili skomðu
leikmenn KR hveija 3ja stiga körf-
una á fætur annarri. En okkar menn
stóðust prófið að þessu sinni. Þeir
sigu aftur ffam úr og unnu leikinn
við mikinn fognuð áhorfenda með
89 stigum gegn 72. Mesti styrkur
ÍBK felst í mikilli breidd. í sérhvert
skipti sem nýjum leikmanni var
skipt inná, þá fyllti hann fyllilega
skarð þess sem út af fór. Þjálfari
liðsins. Jón Kr. Gíslason, átti snilld-
arleik og hinn ungi Nökkvi Jónsson
einnig.
Yngra fólkið hefur ekki verið eft-
irbátar þeirra eldri. í allt er keppt
um 23 titla hjá KKÍ og um 80% af
öllum titlum vetrarins hafnaði á
Suðumesjum, þar af 12 hjá ÍBK, 2 í
Grindavík, 4 í Njarðvík og einn í
Sandgerði. Nokkuð gott, ekki satt.
HH.
FAXI 103