Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 29

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 29
borðinu í lúkarnum. En í horninu út við þilið við lestina var vaskur og svört maskína. Það suðaði í svartri olíufíringunni og á hellunni var stór pottur með sjóðandi heitu vatni í. En við hliðina var kaffikannan og beið þess að hellt væri upp á. Uppi yfir héngu viskustykkin og bærðust aðeins í hitanum er steig upp af svörtum hellunum. En undir, í eld- hólfinu, logaði eldurinn með svæf- andi búmbi og hvæsi. Það var ylur frá svona maskínu. Innan skamms fyllti ilmandi kaffilykt lúkarinn og blandaðist saman við lykt af salti, rökum fötum og mat, sem þarna var geymdur. Ekki sakaði að fá ögn af kaffi út í eina af hinum þykku könn- um, ásamt dósamjólk að mestum hluta. Þetta var reglulegt sjóara- kaffi. Á miðju borði var bakki með kexi, vínarbrauði og smurðu rúg- brauði með kæfu. Kexið var vel þeg- ið, bleytt í kaffinu. En ungum manni var ekki nóg að sitja í lúkarnum. Hann vildi sjá meira af innri leyndar- dómum þessa báts, ekki síst stýris- húsið. Og honum héldu engin bönd. Og eftir dálítið suð var haldið aftur í bátinn og hann skoðaður. Fáir voru betri heim að sækja í lúkarinn, en skipstjórinn, Guð- mundur Kr. Hann var síbrosandi og glaðlegt viðmót hans er enn geymt í barnsminni annálshöfundar. Trú- lega hefur þetta góða skap bætt andann um borð. Faðir hans, Guð- mundur Kr. er fórst meö Geir 1946, þótti stundum harður í horn að taka, en gat þó slegið á létta strengi. Sjó- mennskavarönnuráárunum 1920 til 1930, en þrjátíu árum síðar, þeg- ar tímar kraftblakkar, radars, gúmí- báts og jafnvel lórantækja voru runnir upp. En eðli sjómennskunnar var hið sama: Vinna og aftur vinna. En ungur drengur, sem kom í heim- sókn i lúkar, til að fá kaffi og kex, hann skynjaði það ekki — ekki strax. Þess í stað var nóg að hlusta á sögur sjómannanna og fylgjast næstum daglega með bátum og skipum I höfninni. Þær sögur og þær bryggjuferðir eru kveikjan að þessum annál. Mbl. 8. aprfl 1971: „Fjórir bjargast — þriggja saknað“. 'I'íminn s.d.: , .Iiátur sökk, þriggja skipvcrja saknað“. bjóðviljinn s.d.: ,,Vélbáturinn Andri KE fórst í netaróðri út af Garðskaga44. 1 þessari frétt segir, að Andri hafi orð- ið fyrir áfalli við landtöku í Grinda- vík haustið 1970, sennilega án mik- illa skcmmda. Tíminn 14. aprfl: ,,Andraslysið“. ÞjóðvÍljinn s.d.: ,,Alda reið yfir Andra svo bátnum hvolfdi*4. Mbl. s.d.: ,,Þrír menn fórust með Andra KE 5“. Framhald í næsta blaði i Andri KE5 38 tonn smfdadur á Fásknldsfirdi. Ingvar Agnarsson Snæfellsjökull Bak við sævar breidu voga sefur sólin bjarta. Rodna fjöll og rósagliti sveipast bjartar brúnir. Sýnist sofa sindurbjartur, jöfur allra jökla. Glitrar sólin geislarúnum tind hinn fagurfáda. Heillaður ég horfi þögull á þá miklu mynd. ír sem straumar orkuþrungnir magni sál og sinni. Snœfcllsjökull um kvö/d, sédur frú Garöskagci. FAXI 105

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.