Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 16

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 16
 lifandi komin og ekkert að skafa utan af hlutunum frekar en fyrri daginn. Við fórum inn í eldhús og hún lok- aði vandlega öllum hurðum, trúlega veitti ekki af því að halda kuldanum úti því húsið var komið til ára sinna. Magga hafði ekkert breyst. Fallegu gulleymalokkarnir héngu enn í eymasneplunum og kjóllinn var snyrtilegur, hvít golftrevjan var tandurhrein og munnurinn á sínum stað. Hún hellli upp á könnuna, tók hníf og disk og bar sig til við að leggja meðlæti á borðið. Ég afþakk- aði og sagðist hafa áð undir hlöðu- veggnum á Sjónarhóli og væri því vel haldin. Margt bar á góma. Ég spurði og hún svaraði og rúmlega það. ,,Á elliheimili! Nei, þeir hlæja bara að mér ef ég bið um pláss, enda þurfa margir þess meira en ég. Ég stend þó ennþá í lappimar staflaus. Held- ur vildi ég þó vera á Hrafnistu því þar þekki ég marga. l>aö er helst hjartað sem angrar mig, annars líð- ur mér vel.“ Hún amma þín bless- unin. Aldrei hef ég fyrirhitt eins góða manneskju og hana „Ellen- sínu“ ömmu þína. Prjónar hún enn?“, Já, hún amma mi'n prjónar enn. „Aldrei hef ég skilið þetta rex hjá mörgum Reykvíkingum út í hann Davíð borgarstjóra. Hann Davíð hefur sko gert marga góða hluti. Þama lagði hann nýjar lagnir í öll Þingholtin og líttu bara á allar framkvæmdimar í Sætúninu." Á meðan hún hrósaði Davíð otaði hún í sífellu að mér brauðhnífnum orð- um sínum til frekari áherslu. Ég, helmingi yngri manneskja en Magga, vissi lítið um afrek Davíðs og hlustaði því með andakt á lofræð- una. Frá borgarstjóranum barst talið að sþönsku veikinni 1918, landa- merkjadeilum við nágrannana og rysjóttu tíðarfarinu undanfamar vikur. Hún sagðist reyndar hafa far- ið út um morguninn og hent tuggu í hrossin tvö sem einn dóttursonur- inn átti. Bömin höfðu lagt að henni að vera ekki að paufast utan dyra í hálkunni og hún fór eftir því, — að mestu. Þennan klukkutíma sem ég stóð við hringdi síminn tvisvar. Fyrst var það Rúna á Auðnum sem spurði Möggu hvort hún væri alveg búin aö gleyma sér, - hvort hún væri hætt að hugsa til sín. , ,Ég skal segja þér það að ég reyndi mikið að ná í þig í gærmorgun, - eða var það í fyrra- dag? Síminn var bara alveg dauður, fékk aldrei són. Þetta er nú meira andsk... tíðarfarið, allt á kafi í snjó (sem var nú ekki alveg rétt). Stór- furðulegt hvað rafmagnið hangir í þessari ótíð og það er sko honum Leif ísakssyni að þakka, fyrrver- andi sveitarstjóra. Ég held ég muni öll djö.... lætin sem urðu hjá Voga- búum þegar hann ákvað að leggja peninga í línuna. Ég get sagt þér það, Rúna mín, að þessa dagana sætum við hér á Ströndinni í svart- asta rafmagnsleysi ef hann Leifur ísaksson hefði ekki látið laga lín- una, það er eitt sem víst er.“ Svo hringdi dóttursonurinn sem átti hrossin til þess að spyrja um h'ð- an ömmu sinnar. Annar dótturson- ur hennar hélt að mestu leyti til í Knarramesinu en var í vinnu á Keflavíkurflugvelli á daginn. Hún hlaut að eiga góð bamaböm og það var gott ða hún var ekki ein í húsinu um nætur. Yngsta bamabamið sem bjó á Hellum, strákur á 14. ári, bankaði og skaust með írafári í gegn um eld- húsið og alla leið inn í stofu á snjó- ugum kuldaskónum. Hann kom til þess að sækja peninga fyrir ýmsu smálegu sem hann ætlaði að kaupa fyrir ömmu sína suður í Vogum. Ég gat ekki stillt mig: „Veður strákur- inn svona inn á snjóugum skónum? „Ég held þaö sé í lagi“ sagði Magga um leið og hún týndi snjókleprana af gólfunum. „Hann er að sendast fyrir mig, blessaður." Ég bjóst til brottfarar eftir að hafa skoðað myndir af niðjunum á öllum aldri og hlustað á falleg onl um bamabamabömin. „Hvað liggur þér á? Dokaðu örlítið lengur." Nú var öll tortryggni úr Möggu og ég held hún hafi notið gestkomunnar, enda hafði ég ekki komið í heims- ókn til þess að troða henni um tær, þessari góðu konu. Ég hafði hvorki ætlað að deila við hana um landa- merki né lasta Davíð borgarstjóra, - eða Sjálfstæðisfiokkinn yfirleitt. Hún hélt útidymnum óþarflega lengi opnum á meðan ég festi á mig skíðin. Gestrisnin var söm við sig, það varð að fylgja mér úr hlaði þó svo að kólnaði í húsinu. Hægri þumalfingurinn varö aftur á milli þegar ég lokaði Knarrames- hliðinu á eftir mér en nú urðu engar girðingar á leið minni yfir í Breiða- gerði. Ég þræddi sjávarbakkana fyrir neðan sumarbústaðina og gaf mér tíma til þess að stoppa og telja álftimar á voginum. Þær vom sextán, fullorðnir fuglar og ungar. Sumarbústaðimir vom af öllum stærðum og gerðum og ég velti því fyrir mér hvað kæmi fólki til þess að velja sér sumarbústaðalandi hér í gróðurleysinu og grjótinu. Ef til vill var það nálægðin við sjóinn og þess- ar fallegu fjörur? Hver veit? Veggir gamla vindmylluhússins stóðu eins og klettaborg við veg- kantinn að Auðnum. Þetta var skrýtin bygging og minnti á lítið rammgert virki. Myllan var upphaf- lega ætluð til þess að mala þurrkuð fiskbein og var byggð af Strandar- bændum um 1918. Vinnslan gekk illa og myllan var lögð niður eftir örfá ár. Hundsgá heyrðist frá Auðnahlað- inu. Fj.... og ég sem var hrædd viö hunda. Þama kom æðandi á móti mér þessi líka stærðar hundur og geltigrimmilega. Éghugsaði: Beröu þig nú hetjulega og láttu sem þú sért hrifin afhundum. Sem beturfór var hann í bandi, en það var sama, ein- hvem veginn varð ég að komast að tröppunum. Hundurinn hringsnér- ist geltandi í kringum mig svo band- ið flæktist yfir og undir skíðin mín. Égsagði í gælutón: „Jæja, karlinn, greyið" en tautaði í huganum, örg: Steinþeginu og snáfaðu burt! Rúna kom fram í dymar og hast- aði á hundinn sem loks þagnaði en ég losaði mig úr snærisfiækjunni. Hún horfði ókunnuglega á mig. Ég kynnti mig og þegar það dugði ekki bætti ég við: „Dóttir hans Guð- mundar Björgvins og Lúllu, — í Vog- unum.“ Rúna hafði nokkuð látiö á sjá síðustu tvö árin. Hún lét heldur ekki vel af heilsunni, hafði gengið á milli lækna en þeir gátu lítið hjálp- að. Svona fer aldurinn og heilsu- leysið illa með fólk. Rúna var þó ekki nema sjötug og hafði alla tíð unnið á við fílefldan karlmann, sótt sjóinn, unnið í fiski, skorið túnþök- ur og margt fleira. Mér fannst sárt að horfa upp á þessa breytingu og hér var enginn brauðhnífur á lofti til þess að leggja áherslu á orðin eins og í Knarramesi. Köttur læddist eftir gólfinu og þef- aði af matarskálinni sem stóð í hominu við vaskinn. Rúna var mik- ill dýravinur og þegar hún veiktist og lagðist á spítala þurfti hún að láta lóga tíkinni sinni, þessu tryggðar- trölli sem hafði fylgt henni hvert spor í fjölda ára. Hún hellti upp á og bar fyrir mig indælar kökur. Það var lítið um mannafenfir í Auðnahverfinu eins og víðar á Ströndinni. Höfðahúsið stóð autt og lá undir skemmdum og hjónin í Landakoti vom flutt til Reykjavíkur. Þó var alltaf einhver umgangur vegna refabúsins hans Kobba Áma og bústjórinn bjó á neðri hæðinni á Auðnum. Það var hann sem átti hundinn. Rúnu langaði ósköp til Reykjavík- ur til þess að hitta fólkið sitt en ekki gat hún farið með rútunni. Hún var vís með að gleyma því hvem hún ætlaði að heimsækja svo það varð víst að bíða uns færðin skánaði. Ég sá kíki á eldhúsborðinu og ég hafði líka séð kíki á borðinu hjá Möggu. Fólkið á Ströndinni horfði víst mikið út, í fásinninu, og það sást vítt yfir úr gluggum Auðna- hússins. Hún haföi séð til mín fyrir neðan Breiðagerðið og taldi mig vera einhvem af Bmnnastðarbræðmn- um að leita kinda. En þegar ég gekk heimtröðina þá fann hún enga lík- legri skýringu á gestakomunni en þá að hér hlyti mkkari að vera á ferð. Það kom glampi í þreytt augun og hún hlóð að þessari ágiskun sinni. Kolbeinn var að koma heim. Hann hafði skroppið suður í Vogasel að kaupa matvömr. Það var liðin tíð að vömr væm keyröar heim á hvern bæ. Áætlunarferöir heyrðu sögunni til en hægt var að komast í rútuna sem kom í Vogana með því að nota póstbílinn sem fór suður eftir alla virka daga. Kolbeinn kom inn með matvælin og póstinn og nú var ekki lengur læðst um gólf á Auðnum. Það gust- aði af Kolbeini þrátt fyrir 83 ald- ursárin og ég rétti ósjálfrátt úr bak- inu. Dimm og kraftmikil röddin var söm við sig þegar hann heilsaöi og mér fannst ég vera aö taka í hendina á hlýlegum tröllkarli. Hann hefði átt að vera prestur, þó ekki væri nema fyrir röddina, hugsaði ég, og lífs- spekin, sú var nú að mínu skapi. Rúna blaðaði með nokkmm áfaka í gegnum póstinn sem samanstóð af einu „gluggabréfi" KFUM blaði og Morgunblaðinu. Allt og sumt. Kannske hafði hún vonast eftir sendibréfi... Það var skemmtilegt að tala við Kolbein. Mestur hluti samtalsins snerist um Vestfiröi og sér í lagi Homstrandir en þangað hafði ég ferðast síðastliðið sumar. Kolbeinn ólst upp við Kaldalón í ísafjarðar- djúpi og þekkti því baráttu afdala- búansafeiginraun. „Hvemighefur þú það?“ spurði ég loks. Hann hafði aldrei haft það betra. Ég hváði: „Ekki einu sinni þegar þú varst 30—40 ára gamall?“ Nei, þetta vom bestu árin. Hann var áhyggjulaus og heilsugóður, og mátulega latur, en ætlaði þó að setja bátinn á flot með vorinu. Tíminn leið hratt og það var byrjaö að snjóa. Ég ætlaði að komast heim fyrir myrkur og þakkaði því þessu indæla fólki fyrir skemmtilega dag- stund. Þau stóðu bæði í dyrunum þegar ég gekk úr hlaði, hann stór og hraustlegur en hún lítil og veiklu- leg. Hundskrattinn sést hvergi. Sporin mín yfir Breiðagerði frá því fyrr um daginn vom svo til horfin. Álftimar kúrðu enn á voginum og Magga í Knarrarnesi fylgdist trú- lega með mér úr eldhúsglugganum. Áður fyrr, fyrir tiltölulega fáum ár- um, var fjörugt mannlíf á þessum slóðum, sjósókn, búfénaður, börn, skóli, skemmtanalíf og umferð, hvert sem litið var en nú hafði hljóðnað á Ströndinni... Þegar ég kom upp á veg stefndi ég beint á Amarbælið, fallegasta hól- inn í heiðinni. Hópur snjótittlinga fiaug yfir gaddfreðna jörðina og ég hélt heim með dálítinn söknuð í hjartanu - söknuð vegna einhvers sem var. 92 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.