Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 8

Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 8
Veislugestir samankomnir í hinum nýja sal iþróttahússins. með ávarpi og fór hún nokkrum orðum um sögu bæjarins á liðnum fjörutíu árum. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, flutti sam- komunni ávarp og færði bæjarbú- um hamingjuóskir. Varð henni tíð- rætt um hinar miklu breytingar sem orðið hafa á Keflavík á seinustu ár- um. Kvað hún Keflavík sannkallað- an höfuðstað Suðumesja. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, flutti ávarp og minntist fyrri kynna sinna við Suðumesin. Flutti hún ánægjulegar fréttir um auknar fjár- veitingar til starfsemi Þroskahjálpar og sérkennsludeildar við Myllu- bakkaskóla. Bænum bárust ágætar gjafir sem vom afhentar við þetta tækifæri. Tómas Tómasson, sparisjóðsstjóri og fyrrum forseti bæjarstjómar, færði bænum málverk að gjöf frá Sparisjóðnum í Keflavík og var það málað af listamanninum Eiríki Nemendur í Myllubakkaskóla sýndu verk á sýningunni. Hér sést einn lista- mannanna. Smith. í ávarpi sínu minntist Tómas á samtvinnaða sögu bæjarins og sparisjóðsins. Hafa t.d. í gegnum tíðina sömu menn ávallt mikið kom- ið þar við sögu. Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, færði Keflavíkurbæ málverk að gjöf. Var það málað af Gunnlaugi S. Gísla- syni. Þá afhenti Oddur Einarsson, bæjarstjóri Njarðvíkur, sameigin- lega gjöf frá Njarðvík og Grindavík og var það málverk eftir Þorfinn Sig- urgeirsson. Að loknum ávörpum tók Björk Guðjónsdóttir við stjóm dagskrár- innar og kynnti hún síðan þau skemmtiatriði er fram fóm. Vom þau hin fjölbreyttustu og gerðu há- tíðargestir góðan róm að þeim. Stutt sýning bama úr Myllubakkaskóla vakti mikla kátínu og sáust gestir magir hverjir fella tár, svo mikið var hlegið. Þá vakti söngur Einars Júlíussonar og Ólafar dóttur hans mikla hrifningu. Sjö /ermefra rjómaterta Þegar dagskráin hafði verið tæmd var öllum viðstöddum boðið uppá veitingar í nýrri viðbyggingu við íþróttahúsið. Þar hefur ÍBK byggt á skömmum tíma nýjan fimleikasal. Starfsmenn Nýjabakarísins höfðu bakað tertu eina mikla, a.m.k. sjö fermetra að stærð og gerðu við- staddir henni góð skil. Var klukkan farin að halla í átta, þegar síðustu gestimir yfirgáfu húsið. Var það mál manna, að þrátt fýrir eilítið of mikinn ræðuflutning, þá hefði þessi hátíð heppnast afburða vel og verið bæjarstjóm og bæjarbúum öllum til mikils sóma. Tónlistarhátíð Dægulaga- og poppmúsíkhátíð var haldin í íþróttahúsi Keflavíkur laugardaginn 8. apríl. Hermann Gunnarsson, sá sprellfjörugi og skemmtilegi íþrótta- og sjónvaps- maður, var kynnir og rifjaði hann það upp, hvemig Keflavík varð vagga poppmenningarinnar með til- komu Hljóma, Júdas, Thibrots og allra hinna. Það vom þeir Rúnar Júlíusson og Magnús Kjartansson sem höfðu veg og vanda af því að koma þessari tónlistarhátíð á og eiga þeir miklar þakkir skildar. Þessir komu fram: Hljómar, Pandóra, Sing-Sing, María Baldursdóttir, Rut Reginalds, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíus- son, Jóhann Helgason, Einar Júlíusson, Magnús Kjatansson, Rúnar Georgsson, Finnbogi Kjart- ansson, Þorsteinn Eggertsson og Klassík. Ekki er ástæða til að tíunda hér frammistöðu hvers og eins. Allir stóðu sig frábærlega. Þó get ég ekki látið hjá liða að minnast á gítarleik Gunars Þórðarsonar og söng Rutar Reginalds. Bæði vom þau afburða- góð. Mjög margir, bæði ungir og gaml- ir, mættu á hátíðina og var ekki ann- að að sjá, að allir hefðu skemmt sér vel. Þó hefði mátt skapa betri stemmingu meðal áhorfenda, ef þeir hefðu allir verið á gólfinu fram- an við hljómsveitapallinn, en ekki uppi á áhorfendapöllunum. Við leggjum til, að svona tónlistar- hátíð verði haldin á hverju ári. KEFLAVÍKUR - TÓNLISTAR- FESTIVAL. Það væri liður í að við- halda þessari sérstöku Keflavíkur- hefð, því þá gæfist upprennandi tónlistarmönum gott tækifæri á að koma fram. 84 FAXI j

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.