Faxi - 01.03.1989, Side 10
Samband sveitarfélaga á Suðumesjiun og Atvmnuþróunarfélag Suðumesja M.
gengust fyrir ráðstefnu um atvinnumál
þann 25. febrúar síðastliðinn undir yfírskiiftmni:
KEFLAVÍKURFLU GVÖLLUR
I ALÞ J OÐALEIÐ!
GEFUR ÞAÐ MÖGULEIKA
TIL ATVINNUUPPBYGGIN GAR?
Tildrög ráðsteínunnar eru annars vegar slæmt ástand í atvinnumálum sem dregið hefur þrótt
og vaxtarbrodd úr fýrirtækjum og heilum atvinnugreinum og hins vegar fólksfjölgun á
Suðumesjum sem krefst nýrra atvinnutækifæra.
EB 1992
Evrópubandalagið verður óðfluga
stærsta markaðsheild veraldar. EB
er nú stærsti viðskiptamarkaður
okkar íslendinga og því er okkur
nauðsynlegt að leita eftir samning-
um um viðskipti okkar og EB-þjóð-
anna, þegar þær í árslok 1992 af-
nema öll innbyrðis landamæri og
gerast ein viðskiptaheild.
Aðgerðir stjómvalda
Til umfjöllunar er nú frumvarp
um auknar heimildir til að flytja er-
lent fjármagn til atvinnufyrirtækja í
formi skammtfmalána. Einnig tek-
ur ísland nú þátt í umræðum um
þessi mál á vegum Norðurlanda-
ráðs.
Frelsi á að ríkja í viðskiptum okkar
við aðrar þjóðir. Sem skref í þá átt
þarf að afhema fleiri höft á fjár-
magnaviðskiptum en hér er vikið
að. Einnig þarf að búa svo um hnút-
ana að fyrirtæki og sjóðir atvinnu-
lífsins haS frclsi til lántöku erlendis
til langs tíma. Á sama hátt þarf að
ríkja frelsi til eignaraðildar, í sum-
um tilvikum meirihlutaeignar er-
lendra aðila í fyrirtækjum hér á
landi.
Hagstœð lega íslands
ísland er miðsvæðis milli megin-
landa Evrópu og Ameríku, og er
auk þess það Evrópuland sem á
hvað styst til Japans og þar með til
Asíu.
í Japan er mjög mikil fiskneysla
svo og umfangsmiklar fiskveiðar.
Neytendamarkaður er þar fyrir gíf-
urlegt magn sjávarafurða og mikla
fjölbreytni í afurðum.
ísland hefur til þessa verið mjög
lítill aðili á þessum markaði, en hef-
ur nú vaxtarmöguleika einkum ef
okkur tekst að nýta fleiri fiskstofna
og skeldýr en við hingað til höfum
gert. Hvað varðar fiskeldisafurðir
eigum við einnig sölumöguleika á
þessum markaði.
Aukin þátttaka íslendinga á Jap-
ansmarkaði ætti því að geta leitt til
viðskipta á fleiri sviðum, t.d. þar
sem við höfum tækniþekkingu um-
fram aðrar þjóðir á sviði fiskveiða og
fiskvinnslu og á sviði jarðhitavirkj-
unar svo einhver dæmi séu nefhd.
KeflavíkurflugvöUur -
Flughöfh
Við Keflavíkurflugvöll eru góð
tækifæri til að stunda fullvinnslu
sjávarafurða enda í næsta nágrenni
við fiskihafnir. Einnig er ávinningur
að vera í nágrenni við afskipunar-
höfii flugflutninganna. Þar má því
vinna afurðir úr hráefnum sem
safiia má saman af stórum svæðum,
eða að safha framleiðslu af öðrum
landshlutum til endanlegrar flokk-
unar, pökkunar og afskipunar til út-
flutnings um flughöfnina.
Fiskeldisafurðir okkar eru enn
sem komið er lítil hluti af okkar út-
flutningstekjum. Stórhuga fyrirætl-
anir eru þó hjá fiskeldismönnum og
því von á auknum flugflutningum
til markaðanna í austri og beggja
vegna Atlantshafs.
Ljóst má vera að uppbygging hent-
ugrar kæligeymslu í nágrenni Leifs-
stöðvar mun bæta starfsaðstöðu
þeirra sem stunda fiskútflutning
með flugi og einnig getur það skipt
sköpum fyrir væntanlegt markaðs-
og sölustarf á eldri sem nýjum
mörkuðum.
Fríiðnaðarsvœði við
Keflavíkurflugvöll
Geta verður þess sem fram hefur
komið í niðurstöðum skýrslu
Byggðastofiiunar um Frfiðnaðar-
svæði á Suðumesjum, og sem nefht
var á ráðstefhunni, að við bjóðum
ekki það sem ýmsir framleiðendur
sækjast venjulega eftir á slíkum
svæðum, þ.e.a.s. ódýrt vinnuafl eða
skattffíðindi. Einnig var bent á að
reynsla af frfiðnaðarsvæðum hefur
verið mjög misjöfn. Hefðbundið
86 FAXI