Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1989, Side 12

Faxi - 01.03.1989, Side 12
 RAUÐSKINNA HIN NÝRRI — SR. JÓN THORARENSEN SUÐURNESMANNÁLL eftir Sigurð B. Sívertsen prest á Útskálum v 1762 var skoðanagjörð haldin á Útskálastað. 1766 dó Andrés Sigurðsson á Flankastöðum, meðhjálpari prests og merkismaður, 58 ára gamall. Hann var giftur Sesselju Nikulás- dóttur. t’eirra dóttir var Guðlaug, sem átti síra Bjöm Vigfússon í Garði. Ein systir hennar var Margrét, sem átti Jón bónda á Jám- gerðarstöðum, föður Jóns Danne- brogsmanns. Þetta ár deyði Þorsteinn Hákonar- son í Njarðvík, sem verið hafði lög- sagnari eða héraðsdómari í Gull- bringusýslu um fjögur ár. Hét kona hans Guðlaug Bjömsdóttir. Ingi- björg, dóttir þeirra, giftist síra Jóni, sem seinna varð prestur í Hvalsnes- þingum, og síðast á Landi, föður- bróðir Steingríms biskups, en Þor- steinn var bróðir V ilhjálms í Kotvogi og hafði verið alinn upp og komið til mennta af Eiríki Þórhallasyni og móðurmóður sinni, Margréti Guð- mundsdóttur, konu hans, en móðir hans hét Ingibjörg Guðmundsdótt- ir, kona Hákonar í Kirkjuvogi, sem þar dó hjá Vilhjálmi 1771. 1767 dmkknuðu í sjó á tveim dög- um á Suðurlandi, (ég veit ei hvar) fleiri en 80 menn. 1768 deyði Kort á Kirkjubóli. 1769 deyði síra Þorgeir í Fuglavík, 47 ára gamall, og hafði legið nokkur ár í hálfvisnu. Dóttir hans, Valgerð- ur, giftist Andrési í Króki, syni síra Egils á Útskálum, bróður Rósu, er átti síra Guðmund prest Böðvarsson á Kálfatjöm. Fyrri maður Valgerðar var Sæmundur hreppstjóri Berg- þórsson á Rafnkelsstöðum, sem deyði úr holdsveiki, og þeirra sonur var Jón Sæmundsson, sem dmkknaði í Króksósi. 1770. 16. mars varð skipstapi á Merkinessundi. Sexæringur fórst með 6 mönnum. Formaðurinn hét Nikulás, austan úr Flóa. Hann komst af ásamt nokkmm öðmm. Þetta ár gekk kláðasýkin og var innflutt, endaði eftir nokkur ár með niðurskurði. Drukknaði einn mað- ur af báti í Innri-Njarðvík. Þá urðu 10 eða 12 hundmð hlutir í Njarðvík- um. 1776. Skipstapi í Höfnum og Njarðvíkum í aprílmánuði. For- maðurinn, sem dmkknaði af Hafnaskipinu, var Þórarinn Þórar- insson, bróðir Orms á Hafnareyri. 1780. Skipstapi í Höfnum. F'or- maðurinn, Jón Jónsson, var inn- lendur, en skipið átti Vilhjálmur 88 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.