Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1989, Síða 20

Faxi - 01.03.1989, Síða 20
Til er mjög góð lýsing á húsi þessu og mat frá 9. sept. 1895. Hefur Magnús látið gera það, í því skini að fá lán hjá Landsbankanum upp á 3.500 kr., með veði í húsinu. Einnig er til veðbókarvottorð fyrir eignina, frá 2. sept. 1895, og er það fengið í sama tilgangi. Lýsingin fer hér á eftir: „Samkvæmt útnefningu Sýslu- mannsins í Kjósar- og Gull- bringusýslu dags. 2. september þ.a. höfum við undirskrifaðir gjört nákvæmt yfirlit og þar eptir virðingargjörð á húseign Magn- úsar Zakaríassonar Verslunar- manns í Keflavík sem er eins og hjer segir. Iveruhús 12 ál lengd 10 al breidd með kjallara undir hálfu húsinu sementadur utan oginnan. 3)4 ál undir lopti alinn- rettað uppí og niðrí og bigt úr Svenskum viði. 2 stófur niðrí og 5 Yi ál á hvem veg hæð undir lopt 4 álin forstofa með klæðaskáp og götudyr á gabli kokkhús ók al lengd 4 al breidd og Eldavjel með leirrörum steift utanum með múrsteini og kalkí mat- reiðsluhús 2)4 al 4 al vídd með 2 skápum og 4 híllum uppi á lopti 2 herbergi 5 al lengd 4 al vídd hitt 4 al 1. 4 al v. 2 smá kames innrettuð og 2 geimslukómpur og 2 obnar fylga. Niðri stór og vandadur annar uppi á lopti. Húsið er klætt utan með 1)4 tm Svenskum borðum og lístað og gablar eins, svo kemur pappi utan á binding tvöfalt afsvalt senadur svo innan á binding panel svo pappi þar innan. Þak- ið skorsuð úr tommuborðum og jámklæðt og herbergin uppí inn- rettuð uppa sama máta og niðri skúr fylgir 3 al 1.3 al v. Klæddur með plægdum klædningsbord- um með jámþaki. Fjarlægd ffa næstu húsum 30 al nú að öllu þessu nákvæmlega athugðu að húsið er níbigt alt úr nýum viði og í alla stadi vandað og vel til þess lagt. Stendur á góðri lód í Keflavík lódin er 50 al lengd og 34 al breidd. Að þessu öllu nakvæmlega athúgudu að húsið hefur góda lód stendur á hagan- legu plássi bigt úr níum vidi og í allastadi vel unnið og vel til þess lagt þá metum við ofan- skrifada húseign með adur skrifudum kostum á 6000, Sexþúsund krónur. Virdingargjörð þessa höfum við gjört eptir bestu þekkingu og samvisku og emm reidubúnír að staðfesta með eidi ef krafist verdur. St í Keflavík 9 Septembr 1895 Einar Jónsson Tfeitur Pjetursson“. Á neðri hæð þessa húss var skól- inn síðan til húsa, en uppi var útbú- in íbúð. Ekki hefur tekist að fá upp- lýst hvenær hætt var að kenna í þessu húsi, en þó er ljóst að það var eftir 1911. Það ár var hins vegar tek- ið í notkun fyrir skólann nýtt og stórglæsilegt steinhús. Það hús er á homi Skólavegar og Suðurgötu og er enn þá kennt þar. Meðan skólinn var við Íshússtíg, var einu sinni gert hlé á kennslunni þar. Þetta var haustið 1902, en þá var Skólinn, en svo var húsið jafnan nefnt, notað vegna skarlatsóttar sem gekk í Keflavík. Á meðan var kennt í G.T.-húsinu, sem áður var kennt í. Fast skólahald í Keflavík 1889-1904 Fast skólahald hefur verið í Kefla- vík ffá 1889 og er ætlunin að gera því nokkur skil hér á eftir, ffam til ársins 1904. Skólaárið 1889—90 vom eftirtald- ar greinar kenndar: kver, biblíu- sögur, lestur, skrift, réttritum., reikningur, landaffæði, náttúm- fræði og danska. Þessar greinar em kenndar allt til 1904. Auk þessa em eftirtaldar greinar kenndar: saga, árin 1895—96 og 1896—97 (seinni veturinn með biblíusögum); sálm- ar veturinn 1893-94, en ekki til prófs; og bindindisffæði, árin 1897-98, 1901-01, 1901-02, en ekki til prófs. 1889—90 var kennt ffá 10—15 dag- lega, líklega 6 daga vikunnar. Sagt er ffá því að skipt hafi verið í tvær deildir, en ekkert nánar er vikið að þessari deildarskiptingu. Um kennslustundafjölda eða vægi 1) í sumum skýrslum er talað um íslensku, en ekki minnst á réttritun og mun um eina og sömu grein vera að ræða. 96 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.