Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1989, Qupperneq 22

Faxi - 01.03.1989, Qupperneq 22
AFMÆLISSÝNING LEKFÉLAGS KEFLAVÍKUR Við kynntumst fyrst í Keflavík Leikhópur Leikfélags Keflavíkur ósamt höfundi og leikstjóra. Þau standa í öftustu röó til vinstri. Leikfélag Keflavíkur setti upp sérstaka leiksýningu í til- efni af 40 ára afmæli bæjarins og var hún frumsýnd 7. apríl í Félagsbíói. Undirritaður mætti á aðra sýningu leikhópsins og skemmti sér konunglega. Upphafsljóð leikritsins er á þessa leið: Mín kœra Keflavík, afklœkjum sögð varst rík, nú er hér bœr, sem okkur öllum er svo kœr. Landslagið liggur flatt, lognið það hreyfist hratt, og regnið hér, það kemur beint í andlit þér. íþróttir alls konar, eru hér stundaðar, einkum þó hlaup, um lífsins gœði og meira kaup. Búum nú besta sess, bœnum og verum hress, syngjum nú hátt, og leikum fram á rauða nátt. Ó, Keflavík mín kœr, kölluð varst bitlabœr, þá var það list, að byrja að œfa í bílskúr fyrst. Leikfélag líka er, lijundi í bœnum hér, menningarþel, góða kvöldið og gjörið svo vel. „Viö kynntumst fyrst í Keflavík" er í nokkurs konar revíustíl, þar sem týnd eru saman brot atvika og sögubrota úr bæjarlífmu þessi 40 ár. Höfundur verksins er Omar Jóhannsson. Ómar sem er fæddur árið 1951 á Seyðisfirði er uppalinn í Garðinum, en hefur átt heima í Keflavík síðan 1975. Eins og áður sagði eru í revíunni sýnd ósamstæð brot úr bæjarlífinu og eru þau tengd saman af sögu- manni verksins, sem reyndar er höfundurinn sjálfur. Var greinilegt, að hinir eldri áhorfendur könnuð- ust bæði við menn og málefni og hinir yngri höfðu gaman af að sjá hlutina í þessu ljósi. Að halda úti leikfélagi í ekki stærri bæ en Keflavík hefur ávallt verðið þrautin þyngri. Ef marka má af frammistöðu leikaranna í þessari sýningu, þá ætti framtíð félagsins að vera tryggð, a.m.k. næstu árin. bað er allstór hópur sem kemur fram í sýningunni. Það var nokkur blanda af reyndum og nýjum leik- endum og stóðu þeir sig allir með prýði. Góður vinur flestra Keflvíkinga á sjöunda og áttunda áratugnum var Gvendur þribbi. í gerfi Áma Ólafs- sonar birtist hann ljóslifandi á leik- sviöinu í Félagsbíó. Guðmundur var munnhörpuleikari af lífi og sál og æðsti draumur hans var að halda konsert í Félagsbíó. Nú hefur sá daumur ræst. Leikur Áma í þessu hlutverki var stórkostlegur. í revíurini em flutt lög eftir m.a. Jóhann Helgason og Gunnar Þórð- arson. Þessilögvom vel fluttafleik- endum við ágæta texta Ómars. Hljómsveitin átti sinn þátt í að skapa hið rétta revíuandrúmsloft. Hljómsveitina skipa nokkrir ungir menn og skiluðu þeir hlutverki sýnu óaðfinnanlega. Iæikstjóranum, Huldu Ólafsdótt- ur, hefur hér tekist vel upp í sínu hlutverki. Leiksviðið í Félagsbíói var stækkað á skemmtilegan máta með palli sem nær fram í salinn og vom innákomur leikaranna ýmist beint inn á sviðið eða inn á pallinn. Gaf þetta sýningunni mjög skemmti- legan svip og var geri á mjög fag- mannlegan hátt. Ég vil þakka Iæikfélagi Keflavíkur fyrir ánægjulega kvöldstund og vonast til, að hér veröi ekki látið staðar numiö. HH. 98 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.