Faxi - 01.03.1989, Side 30
góöan endi, að Mariane Danielsen
sigli áður en langt um líðúr fullfermd
um hið bláa haf.
Aíariane Danielsen
Eins og kunnugt er, þá strandaði
danska flutningaskipið Mariane
Danielsen í vetur skammt utan við
innsiglinguna í Grindavík. Skipið var
á leið úr Grindavíkurhöfn og öllum að
óvörum beygði skipið skyndilega upp
í land og tók niðri stuttu síöar. Ekki
urðu nein meiðsl á skipsverjum, en
skipið sat gikkfast. Mun skiptstjórinn
hafa verið ölvaður og þvi fór sem fór.
Tkyggingafélag skipsins taldi litlar
líkur á því, að hægt væri að bjarga
skipinu, og því fór svo að Guðlaugur
Guðmundsson, verktaki í Vogunum,
keypti skipið á danskar kr. 1.000.,
eða liðlega 7 þúsund íslenskar. Hefur
varla í annan tíma slíkur farkostur
farið fyrir minna fé. Þrátt fyrir margar
hrakspár tókst Guðlaugi og hans
mönnum að ná skipinu á flot og var
það dregið tii hafnar í Njarðvík. Er
þaö ætlun Guðlaugs, að skipið verði
þétt og síðan dregið til Póllands, þar
sem gert verður við það. Er ekki ólík-
legt, að þetta björgunarafrek fái það
Dagana sem björgun skipsins jör fram var sérstuklegu störstreymt. I’essi mynd er
tekin vid Kefiavíkurhöfn á sama tíma. Þarna er verid a<) hífa a/la úr Irilluhút upp
á vörubílinn. Svo mikit) var flööid, a<) þa<) flœöir yfir bryggjuna sem vörublllinn
stendur á.
V
Séra Óla/ur Skúlason kjörinn
nœsti biskup yfir íslandi
Nú í sumar lætur herra Pétur Sigur-
geirsson af biskupsdómi fyrir aldurs
sakir. Nýverið fór fram kjör eftir-
manns hans og fékk séra Ólafur
Skúlason, dómprófastur og vígslu-
biskup, yfirburða fylgi kjörmanna.
Hinn nýkjömi biskup er sem kunnugt
er uppalinn hér í Keflavík, sonur
þeirra merku sæmdarhjóna Sigríðar
heitinnar Agústsdóttur frá Birtinga-
holti og Skúla Oddleifssonar, braut-
ryðjanda í umsjónamannsstarfi við «
bamaskólann í Keflavík, sem andað-
ist í hárri elli í byrjun þessa árs.
Oryggisbók -Trompbók
SPARISJÓÐURINN
í KEFLAVÍK
Suðurgötu 6, sími 92-15800
Njarðvík, Grundarvegi 23, sími 92-14800
106 FAXI
j