Faxi - 01.03.1989, Síða 31
Séra Ólafur ólst upp í faðmi fjöl-
skyldu sinnar að Vallargötu 19, gegnt
Keflavíkurkirkju, sem hann þjónaði f
forfollum um tíma á árunum 1959—
60. Þá er einnig ánægjulegt að minn-
ast þess, að hann var ritstjóri Faxa ár-
ið 1954.
Kona séra Ólafs er frú Ebba G.B.
Sigurðardóttir og eiga þau þrjú upp-
komin böm. Faxi fagnar biskupskjöri
séra Ólafs Skúlasonar og ámar hon-
um og fjölskyldu hans heilla á fram-
tíðarvegi.
•
Ytri-Njardvíkurkirkja 10 ára
Á sumardaginn fyrsta var þess
minnst með hátíðarguðsþjónustu og
kaffisamsæti að tfu ár em liðin frá
vígslu Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Keilusalur í Keflavík
Gunnar Sigurjónsson og Jóna
Magnúsdóttir hafa opnað í húsi Tbll-
vömgeymslunnar sex brauta keilusal.
Gunnar rak til skamms tíma Gunn-
arsbakarí, en í stað þess að setjast f
helgan stein, þá ákvað hann og kona
hans að fara ótroðnar slóðir hér á Suð-
umesjum og opnuðu keilusal. Keila
er mjög skemmtileg íþrótt sem er
hentug fyrir fólk á öllum aldri. Það er
ástæða til að óska þeim hjónum til
hamingju með fyrirtækið og er von til
þess, að keilusalurinn verði vinsæll
meðal bæjarbúa. Ef við þekjum Kefl-
víkinga rétt, þá mun ekki líða langur
tíma, þar til hér verður komið gott
keppnisfólk í þessari skemmtilegu
íþrótt.
Jóna Magmísdóttir og
Ounna r Sigurjónsson.
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
Verslunarfólk á Suðurnesjum
Orlofshús
Tekið verdur á móti umsóknum um
dvöl í orlofshúsum V.S. á skrifstofu fé-
lagsins ad Hafnargötu 28, Keflavík frá
og með þriðjudeginum 2. maí kl. 20.00.
Um er að ræða orlofshús í Svignaskarði,
Ölfusborgum og Miðhúsum við Egils-
staði og íbúð á Akureyri. Vikuleigan
kr. 6.000.- greiðist við pöntun.
Ath. Þeir sem ekki hafa fengið orlofshús
síðustu 5 ár hafa forgang til 10. maí.
FAXI 107